Læknaneminn - 01.10.1987, Page 16
MYND 4. Lifrarfrumu-laminae sitthvoru megin við sinusoid. Canaliculi
biliferi sjást milli aðliggjandi fruma.
MYND 5. Góð mynd er hvernig microvilli fylla nánast út í holrúm cana-
liculi biliferi.
Samtengdum gallrauða er seitrað
út í canaliculi biliferi og blandast þar
gallinu. Seitrunin er, eins og upptak-
an, háð burðarpróteini en er að auki
orkukreQandi. Seitrunin, ekki upp-
takan eða samtengingin, er hraða-
takmarkandi þátturinn í ílutningi á
gallrauða úr blóði í gall. Samtengdur
gallrauði sem ekki kemst út í gallið
fer út í blóðið. Undir eðlilegum
kringumstæðum verður gildi hans
ekki hærra en sem nemur 4,0 míkró-
mólum á hvern lítra blóðs. Sam-
tengdur gallrauði bindst albúmíni
lauslega í blóði og skilst út í nýrum.
Þessi útskilnaður um nýrun kemur í
veg fyrir að styrkur samtengds gall-
rauða verði hærri en 500 míkrómól á
hvern lítra plasma, jafnvel þó að
gallstífla sé alger. Eins og gefur að
skilja þá er styrkurinn hærri ef
nýrnabilun er samfara.
Myndun og flæði galls
Þegar galiið myndast er það ísótón-
ískt við millifrumuvökva og hefur
svipaða elektrólýtasamsetningu.
Vatn, elektrólýtar (aðallega Na+,
Cl",Ca++ og HCO:i_) og lífræn efna-
sambönd mynda gall. Lífrænu efna-
samböndin eru samtengdur gall-
rauði (ein- og tvíglúkúróník gall-
rauði), fosfólípíðar (aðallega lesitín),
kólesteról og glycin og taurin tengdar
gallsýrur (Cholic- og Chenodeoxycholic-
syra). Þessir uppistöðuþættir gallsins
skiljast út í canaliculi biliferi og gall
verður til. Ut í gallið fer einnig fjöldi
efnasambanda sem hafa verið um-
breytt eða afeitruð í lifur. Það er
einnig forsenda eðlilegs frásogs á
fitusýrum og fituleysanlegum efnum.
Gall er basískt og mjög beiskt á
bragðið.
Smæstu hlutar gallveganna eru
canaliculi biliferi. Þeir myndast á mót-
um tveggja lifrarfruma. (MYND 4)
Ut í canaliculi ganga microvilli, sem
auka verulega flatarmál ganganna. í
þessu sambandi er tvennt mjög mik-
iivægt. Annars vegar innihalda
microvilli samdráttarpróteinið aktín
(míkrófílament) í miklu magni.
(MYND 5) Hins vegar er í himnum
þeirra hvatinn ATP-asi. Þýðing
þessa er mikil fyrir myndum galls
þar sem þarna fer fram flutningur á
gallefnasamböndum úr lifrarfrum-
um, yfir frumuhimnuna og þaðan út
í canaliculi. Þrýstingsmunur er ekki
fyrir hendi til að reka gallílæðið í
rétta átt, þar sem stöðuþrýstingur í
canaliculi er hærri en í lifrarsínusunum.
Því þurfa aðrir kraftar að koma við
sögu. Þeir eru annars vegar osmó-
tískir kraftar og hins vegar mekanískir
kraftar. Osmótískur kraftur myndast
við orkukræfa seitrun á gallsýrum út
í canaliculi af svokallaðri gallsýru-
dælu og seitrun á Na+ með Na+-K+-
dælu (gallsýru óháða dælan) en báð-
14
LÆKNANEMINN ^987-40. árg.