Læknaneminn - 01.10.1987, Page 38
TYGGIGÚMMÍ;
H vert stykki inniheldur: Nikótínresín-komplex 20%, samsvarandi Nicotinum 2 mg eða 4 mg.
Eiginleikar: Nikótín leysist hægt úr tyggigúmmíi og frásogast í munninum. Mesta blóðþéttni
verður eftir 30 mínútna tyggingu og er þá svipuð og 30 mínútum eftir að reykt er ein meðalsterk
sígaretta. Tilgangurinn er að draga úr fráhvarfseinkennum, þegar reykingum er hætt.
Ábendingar: Hjálpargagn til að hætta reykingum. Efnið má því aðeins nota að reykingum sé
algjörlega hætt.
Frábendingar: Meðganga. Brjóstagjöf.
Varúð: Nikótín veldur bráðum eitrunum hjá börnum og er efnið því alls ekki ætlað börnum.
Ber því að varast, að börn nái í tyggigúmmíið. Við slæma hjarta- og æðasjúkdóma verður að
varast áhrifnikótíns, þ.e. aukinn hjartsláttarhraða og hækkun blóðþrýstings vegna aukinnar
mótstöðu í blóðrásinni.
Aukaverkanir: Erting í munni, koki og vélindi. Munnsár. Meltingaróþægindi. Útbrot.
Skammtastærðir handa fullorönum: Yfirleitt á að nota tyggigúmmí með 2 mg/stk., en má
auka í 4 mg/stk., effráhvarfseinkenni eru mjög mikil. Hámarksskammtur er 12 stk. 2 mg/stk. á
dag. Draga berjafnt og þétt úr notkuninni og ekki má nota tyggigúmmíið lengur en 3 mánuði í
senn.
Pakkningar: Tyggigúmmí 2 mg/stk.: 105 stk. (þynnupakkað).
Tyggigúmmí 4 mg/stk.: 105 stk. (þynnupakkað).
Hverri pakkningu Nicorette skulu fylgja leiðbeiningar á íslenzku um notkun efnisins
og varnaðarorð.
G. ÓLAFSSONH.F./AB LEO