Læknaneminn - 01.10.1987, Side 40
un ensíma úr meltikornum (e. lysos-
ome), aukinni myndun „súperoxíð"
róttæklinga) og „mekanísku“ áhrif-
um (þ.e. með því að styrkja þau tök
sem átfrumur hafa á bráð sinni) sem
í þessu fólust. Nú hefur komið á dag-
inn að klofningarviðtakarnir miðla
ekki þessum lífefnafræðilegu áhrifum
en með því að auka samloðunar-
krafta milli baktería og átfruma,
stuðla þeir að aukinni samleitni
halahluta G mótefna og Fc-viðtaka í
frumuhimnu átfrumna og þannig
eru þessi áhrif til komin.3
Þriðja rannsóknartímabilið og
það sem stendur enn, hófst með ein-
angrun C3b/C4b viðtakans. Sá þýð-
ingarmikli áfangi byggðist á nýrri
tækni til þess að einangra, hreinsa og
auðkenna lífrænar sameindir í lágum
styrk. Nú hafa þrjár viðtakagerðir
fundist til viðbótar. Allir þessir við-
takar eru prótín sem sykruhópar
hafa tengst (e. glycoprotein). Vegna
þess að hver þessara viðtaka binst
fleiri en einum klofningarbindli (e.
complement ligand), eru þeir ekki
lengur nefndir eftir þeim klofningar-
þáttum sem þeir bindast heldur kall-
ast þeir: CRl, CR2, CR3 og CR4
(CR = Complement Receptor) og
eru tölusettir í þeirri röð sem þeir
uppgötvuðust. Ekki eru allir á eitt
sáttir um að CR4 sé sérstök viðtaka-
gerð. En hann er tiltölulega nýfund-
inn og frekari rannsóknir eiga eftir
að skera úr um það.
Um frumudreifingu þessara við-
taka og bindil-eiginleika vísast til
töflu 1. — Hér eftir verður umræðan
einskorðuð við CRl á rauðum blóð-
kornum.
D. Klofningarkerfið hef-
ur áhrif á þéttnirnælingar
á mótefnafléttum í blóð-
vatni
Ekki er hægt að segja skilið við
klofningarkerfið án þess að geta þess,
að þær aðferðir sem venjulegast eru
notaðar við mælingar á þéttni mót-
efnafléttna í blóðvatni, eru í grund-
vallaratriðum rangar. Slfkar mæling-
ar eru gerðar til að meta ástand
sjúklinga með fléttusjúkdóma. —
Þessar mæliaðferðir eru rangar því
þær taka ekki tillit til þeirra efna-
hvarfa, sem eiga sér stað milli mót-
efnafléttna, klofningarþátta og klofn-
ingarviðtaka eftir að blóðsýni eru
dregin. Við meðhöndlun sýnanna er
1 Kornfruma er þýðing Ensk-fslensku
orðabókarinnar sem Örn og Örlygur
gáfu út í Reykjavík 1984, á enska orðinu
granulocyte.
3 Blóðgleypill er þýðinga á enska orð-
inu Monocyte. (Helgi Valdimarsson.
nefnilega ekki komið í veg fyrir þær
breytingar á gerð mótefnafléttnanna
(sjá framar), sem verða í nærveru
klofningarþátta. Jafnframt eru allar
líkur á því að mótefnafléttur sem
bundnar eru CRl (á frumum) losni,
þegar klofningarþættir í sýninu eru
uppurnir, fyrir tilstilli þáttar I (sjá
aftar). Það er því ekki að undra, hve
illa hefur gengið að finna fylgni milli
niðurstaðna úr ofangreindum mæli-
aðferðum og raunverulegs gangs
Læknaneminnn mars 1974. (Sjá heim-
ildaskrá)).
3 Netfruma í eitli er þýðing á ensku
dendritic reticulum cell. (Helgi
Valdimarsson. Læknaneminn mars
1974. (Sjá heimildaskrá)).
TAFLA 1. Sýnir bindisértækni (e. ligand specificity) og sameindaþunga
fjögurra gerða klofningarviðtaka, sme bindast fastbundnum umbrots-
efnum C3. Þeir eru CRl, CR2, CR3 og CR4 og aftasti dálkurinn sýnir,
hvaða frumugerðir hafa þessa viðtaka í frumuhimnu sinni.
VIÐTAKA- BINDIL- SAMEINDA- VIÐTAKINN
GERÐ SÉRTÆKNI ÞUNGI HEFUR FUNDIST
CRl VIÐTAKANS VIÐTAKANS Á ÞESSUM FRUMUM
C3>C4b 4 undir- rauð blóðkorn,
>iC3b flokkar: kornfrumur',
C3i, C3c 160K, 190K B-eitilfrumur,
CR2 220K, 250K suraar T-eitil- frumur, blóðgleyplar2, „podocytes" í nýrum og netfrumur’ í eitlum
iC3b=C3dg >C3d 140K B-eitilfrumur
CR3 »C3b iC3b, S. tvær keðjur Stórkirnungar og
cerivisae, 165K a-keðja vefjagleyplar,
r.blk. úr 95 K þ-keðja kornfrumur, NK-
CR4 kanínum, S epiderm- idis frumur
iC3b=C3dg tvær keðjur: Stórkirningur og
>C3d 150K a-keðja vefjagleyplar,
95K (3-keðja kornfrumur, NK- frumur?
38
LÆKNANEMINN 41987-40. árg.