Læknaneminn - 01.10.1987, Page 55
36. Alþjóðaþing IFMSA
Áslaug Gunnarsdóttir læknanemi
IFMSA stendur fyrir International
Federation of Medical Students As-
sociation sem læknanemar frá 59
löndum eru aðilar að, þar á meðal
íslandi. Samtökin voru stofnuð stuttu
eftir síðari heimsstyrjöldina til að
auka skilning og samvinnu milli
þjóða. Aðalstarfsemin lengst framan
af hefur verið umsjón stúdentaskipta.
Síðustu árin hefur einnig verið að
þróast samstarf á sviði grundvallar-
heilsugæslu, flóttamannahjálpar,
verndar gegn kjarnorkuvá og lækna-
nemamenntunar.
Arlega hittast fulltrúar allra aðild-
arríkjanna og bera saman bækur sín-
ar og ræða hugmyndir um hvernig
efla megi starfsemi samtakanna og
kjósa nýja stjórn. 36. ársþing IFMSA
var haldið í ágúst síðastliðnum í Bel-
grad í Júgóslavíu. Fyrir hönd ís-
lenskra læknanema fór ég undirrituð
ásamt Hörpu Rúnarsdóttur sem
starfað hefur í stjórn Félags lækna-
nema. Ætlun mín er að greina frá því
helsta sem fram fór á ráðstefnunni og
möguleikunum sem íslenskum lækna-
nemum bjóðast til að taka þátt í starf-
semi IFMSA.
Kynningarkvöld
Fyrsta kvöldið var formleg setning
þingsins. Að loknum ræðuhöldum var
öllum boðið upp á snakk. Þetta virtist
dálaglegur hópur en lunginn úr hon-
um gufaði upp fljótt og örugglega.
Fyrr en varði voru aðeins eftir fulltrú-
ar nokkurra þjóða, -já þegar betur
var að gáð reyndust þriðja heims
krakkarnir vera þrautseigastir. Svo
sagði okkur hugur að mannshvörf
þessi hlytu að eiga sér einhverja skýr-
ingu sem kom og fljótt í ljós:
Arið áður hafði komið upp misklíð
vegna þess að nokkrar Evrópuþjóðir
töldu samtökin eyða of mikilli orku í
óarðvænleg viðfangsefni á kostnað
stúdentaskiptanna. Kom þá upp sú
hugmynd að stofna ný læknanema-
samtök sem einbeittu sér að stúd-
entaskiptum. Til að hanna hugmynd-
ina betur hittust þessar þjóðir síðan
aftur síðasta haust. Skýrsla var skrif-
uð sem ætlunin var að kynna þarna í
Júgóslavíu.
Þegar a hólminn var komið, var
sem eitthvert bakslag væri komið í
mannskapinn - margir vildu meina
að þeir hefðu aðeins viljað fylgjast
með - en ekki fylgja tillögunum eftir.
Um þetta var rætt fyrstu kvöld ráð-
stefnunnar á lokuðum fundum. Ann-
að kvöldið urðum við þess heiðurs að-
njótandi að vera boðið að koma líka.
Þeir sem þarna voru virtust margir
hafa persónulegar ástæður til að
stofna nýtt félag. Til dæmis hafði að-
alforsprakki byltingarinnar oft boðið
sig fram í embætti forseta IFMSA án
árangurs. Reyndar var hann kosinn
forseti þetta árið þegar hætt var við að
stofna þessi klofningssamtök sem var
þá greinilega líka alveg óþarfi.
Umræður
Sameiginlegar umræður allra þátt-
takendanna voru samfleytt í þrjá
daga. Aðafviðfangsefnin voru laga-
breytingatillögur sem flestar fólu í sér
að fleiri launaðir starfsmenn ynnu í
þágu félagsins á aðalskrifstofunni í
Austurríki.
Um þetta var rökrætt fram og til
baka. Að lokum kom einhver mætur
maður með þá athugasemd að vegna
lélegrar póstþjónustu víða í heimin-
um hefðu lagabreytingatillögurnar
ekki borist með nógu löngum fyrir-
vara til allra þátttakendanna og alls
ekki til sumra. Það þýddi að kosning-
ar væru ólöglegar og umræðurnar
féllu niður.
Millilandapólitík blandaðist óvænt
inn í umræðurnar einn daginn. Það
kom til vegna þess að kvöldið áður
hafði öllum verið boðið á sýningu á
myndum frá flóttamannabúðum víða
um heim, með upplýsingum um or-
sakir og þróun mála þar. Að baki sýn-
ingarinnar stóð flóttamannanefnd
IFMSA sem samanstóð af fulltrúum
frá Kuwait. Þegar við svo mættum á
tilsettum tíma var okkur sagt að töf
væri vegna óviðráðanlegra orsaka.
Kvisaðist út að ástæðan fyrir seink-
un sýningarinnar væri að ísraelar étt-
uðust að eitthvað kynni að sjást á
myndum af palestínskum flótta-
mönnum sem varpaði skugga á þjóð
þeirra. Þess vegna fór stjórn IFMSA
fyrst að „ritskoða" sýninguna.
Daginn eftir afsakaði einn mjög vel
máli farinn ísraeli hversu sýningin
hefði tafist af þeirra sökum. Síðan
bauð hann Kuwaitmönnum sættir og
allir urðu glaðir.
Vinnuhópar
Næstu tvo dagana voru starfandi
nefndir sem fjölluðu um stúdenta-
LÆKNANEMINN «987-40. árg.
53