Læknaneminn - 01.10.1987, Page 56
skipti, grundvallarheilsugæslu, flótta-
mannahjálp, læknismenntun og
kjarnorkuvá. Þar að auki var kjörin
endurskoðendanefnd til að fara yfir
bókhald IFMSA frá árinu áður.
Ég tók þátt í starfi stúdentaskipta-
og grundvallarheilsugæslunefndanna
og segi því lítillega frá þeim. Harpa
starfaði hins vegar með flóttamanna-
og læknismenntunarnefndunum.
Stúdentaskiptin
í byrjun kynntu allir sig og höíðu
stutta tölu um starfsemina í sínu
heimalandi og helstu uppákomur á
árinu.
Frá Fróni var það að segja að í sum-
ar kom hingað 21 skiptinemi frá ýms-
um löndum. Hver um sig dvaldi hér í
mánaðartíma og fylgdist með starf-
semi einhvers spítalanna á höfuð-
borgarsvæðinu á þeirri deild sem
hún/hann kaus helst. í staðinn gafst
jafn mörgum íslenskum læknanemum
kostur á að fara til annarra landa í
svipuðum erindagjörðum. Fæði og
húsnæði fá skiptinemarnir að jafnaði
sér að kostnaðarlausu og vil ég nota
tækifærið og þakka þeim sem gerðu
það mögulegt.
Fyrir þá sem ekki geta farið út sjálf-
ir er engu að síður skemmtilegt að
kynnast því fólki sem kemur hingað
og öllum er heimilt að taka þátt í
þeirri félagsstarfsemi sem tengist
skiptinemunum. Margir íslensku
læknanemanna sem heima sátu síð-
astliðið sumar voru skiptinemum inn-
an handar og kynntu þeim íslenskan
kúltúr. Meðal annars var farið í vel
heppnaða Þórsmerkurferð sem Full-
trúaráðið stóð fyrir í júlí. Skipti-
nemarnir okkar hittu einnig skipti-
nema á vegum Verkfræði- og raunvís-
inda- og Viðskiptadeildar á
þriðjudagskvöldum á Fógetanum og
kynntust þeim - misnáið reyndar.
Electiva var einnig á dagskrá en
það er einskonar afbrigði af stúd-
entaskiptum. Skiptineminn fær þá
Mark, áhugasamur fulltrúi Bandaríkjanna og Kleopatra, fyrrvarandi aðalritari
IFMSA storma áhugasöm á fund.
markvissa kennslu erlendis sem er svo
metin í hans heimalandi. Auðveldara
er að taka electiva í klíniska hluta
námsins þar sem meiri sveigjanleiki
er í kennslunni. Sums staðar er þó
einnig hægt að taka einhver verkefni
sem heyra undir preklíniska hlutann.
Ekki hafa íslenskir læknanemar farið
ennþá sem electiva-skiptinemar á
vegum IFMSA, en nokkrir hafa farið
til Bretlands sem er ekki aðildarþjóð
IFMSA. Vonandi eflast þessi skipti á
komandi árum en það er fyrst og
fremst undir áhuga okkar sjálfra kom-
ið.
Komið var inn á samskiptaörðug-
leika innbyrðis á milli stúdentaskipta-
stjóra sem háir bæði stúdentaskiptun-
um og electiva og tillögur um úrbætur
voru gerðar.
Grundvallarheilsugæsla
Sagt var frá starfsemi læknanema-
félaga sem tengist eflingu grundvall-
arheilsugæslu þar sem hún er fyrir
hendi. Miðast hún í flestum tilfellum
að því að gefa læknanemum kost á að
fara í sveitahéruð og sjá aðbúnaðinn
til læknisþjónustu (eða aðbúnaðar-
leysið), og hjálpa til efsvo ber undir.
Sömuleiðis þá er áhugi á að bæta
þjónustuna sem veitt er í fátækra-
hverfum stórborganna. Á ýmsum
stöðum gefst okkur tækifæri til að taka
þátt í þessari starfsemi og kynnast
lækningum við frumstæð skilyrði.
I Ankara í Tyrklandi er starfræktur
sumarskóli sem öllum er heimilt að
sækja. Þar eru grundvallaratriðin í
heilsugæslu kennd og nú stendur til
að færa út kvíarnar og leyfa þeim sem
áhug hafa á, að skólanum loknum, að
fara í frumstætt fjallaþorp í Tyrklandi
og spreyta sig.
f Bandaríkjunum er í gangi svo-
kallað „HIPTIC" verkefni. Það eru
3—4 vikna námskeið fyrir læknanema
annars vegar í fátækrahverfum stór-
borga og hins vegar á verndarsvæðum
Indíána í Appalachíafjöllum. Kostn-
aðurinn er US $ 200 fyrir fæði og hús-
næði en fargjaldið innan Bandaríkj-
anna er greitt.
Til Mexíkó gefst þeim sem lokið
54
LÆKNANEMINN %>87-40. árg.