Læknaneminn - 01.10.1987, Blaðsíða 57
Júgóslavneski læknirinn Dr. Zarko meðal íslensku fulltrúanna í boði bæjarstjórnarinn-
ar í Belgrad.
hafa 5. og 6. ári í læknisfræði og eru
spænskumælandi möguleiki á að fara
á 4 mánaða námskeið í grundvallar-
heilsugæslu. Sá galli er á gjöfNjarðar
að kostnaðinn verður hver og einn að
greiða úr eigin vasa.
Upp kom hugmynd um sameigin-
legt verkefni fyrir lækna-, hjúkrunar-,
landbúnaðar-, verkfræði-, viðskipta-
og dýralæknisnema í Þriðja heimin-
um. Hún felur í sér að eitthvað land
verður valið og haldið undirbúnings-
námskeið með tilliti til þess þar sem
land og þjóð verður kynnt og tungu-
málið hugsanlega kennt. 20-30
manns taka þátt í verkefninu og
skipta sér í litla hópa sem dreifa sér á
milli þorpa á ákveðnu svæði. Þar
kynnast þau íbúunum, glöggva sig á
vandamálum þeirra og koma með
hugmyndir um breytingar og bætur
þar sem þeirra er þörf. Reiknað er
með að þetta taki yfir að minnsta kosti
6 mánaða tímabil.
Nú stendur til að skipuleggja þessa
hugmynd betur næsta ár og fjöldi
fólks bauð sig fram til þess. Allir
IFMSA-meðlimir mega vera með, ef
þeir vilja, og það eru íslenskir lækna-
nemar sjálfkrafa ef þeir eru í Félagi
Iæknanema.
Að lokum
Síðasta kvöldið var hæfileikakvöld
þar sem allir gátu sýnt ágæti sitt til
einhvers annars en að tala. Daginn
eftir fengu málgáfurnar aftur að
blómstra, en þá voru allir þátttakend-
urnir samankomnir á ný. Til stóð að
kynna niðurstöður hverrar nefndar
fyrir sig en tíminn var of naumur
vegna þess að fyrst þurfti að sam-
þykkja ársskýrslur allra landanna og
fráfarandi stjórnar. Var það oft gert
með miklum semingi, sérstaklega
skýrsla gjaldkerans. Sami maður hef-
ur gegnt embætti gjaldkera IFMSA
undanfarin 3 ár og bækurnar hafa
aldrei stemmt hjá honum. Sem endra-
nær bauð enginn sig fram á móti hon-
um og hann var endurkjörinn.
Fyrir mig var þátttakan á ráðstefn-
unni stórkostleg reynsla þar sem ég
fékk tækifæri til að sjá hvernig svoköll-
uð alþjóðleg samskipti fara fram. Ég
gat hreinlega ekki haft á samviskunni
að gera það án þess að minnsta kosti
að gera tilraun til að miðla einhverju
af því til ykkar hinna. Ég valdi þann
kostinn að segja aðeins frá því sem
helst gæti komið íslenskum lækna-
nemum að einhverju gagni að vita
um, en fyrir vikið gerðist mikið meira
á þinginu sem engan veginn rúmast í
þessum greinarpistli. Sennilega hefur
til dæmis ekki komið nógu skýrt fram
hversu persónuleg og pólitísk mál
spila stóra rullu í samtökum sem hafa
það að stefnumiði að vera með öllu
óháð, og það gerir ekkert nema tefja
fyrir samvinnunni.
Vonandi vita einhverjir meira um
IFMSA eftir lestur greinarinnar en
áður og hafa líka áhuga á að efla fleira
en bara stúdentaskiptin í samvinnu
við samtökin.
Meðal þess sem læknismenntunarnefndin miðlaði
á ráðstefnunni.
LÆKNANEMINN ^987-40. árg.
55