Læknaneminn - 01.10.1987, Page 69
Arsskýrsla Félags
læknanema 1986-1987
Inngangsorð
Ágætu félagsmenn og læknanemar.
Nú fer annasömu starfsári félagsins
senn að ljúka, en þá láta gamlir emb-
ættismenn af störfum og nýir koma
þeirra í stað til að takast á við þau
margvíslegu verkefni sem komandi
starfsár ber í skauti sér. Þannig er
starfsemi félagsins viðhaldið ár frá
ári. Á aðalfundi er uppgjörið, tækifæri
til að ræða og gagnrýna starfsemi lið-
ins árs í þeim tilgangi að miðla ný-
kjörinni stjórn og embættismönnum
af fyrri reynslu.
Stjórnarskiptin fara nú formlega
fram á þessum aðalfundi í dag en há-
tíðlega í kvöld í hinni frægu og árvissu
stjórnarskiptaveislu sem haldin verð-
ur í Stúdentakjallaranum kl. 21.00.
Svo sem áður er öllum fráfarandi og
verðandi embættismönnum boðið til
veislunnar.
Allir þurfa á upplyftingu að halda
og þar kemur félagið oftlega til sög-
unnar með því að standa fyrir öflugu
félagslífi til að veita mannlegum þörf-
um okkar allra í félagslega viður-
kenndan farveg. Oft fer þetta út fyrir
farveginn og stundum algerlega úr
böndunum en Hansi og fleiri hafa haft
fyrir þessu ákv. formúlur í gegnum
tíðina. En að þessu sinni er það stjórn
og hópslysanefnd sem flautar til leiks.
Öll okkar hér lesa læknisfræði sem
er erfitt og torlesið fag, um það erum
við öll örugglega sammála. Leggja
þarf hart að sér en það þýðir ekki að
maður þurfi að loka sig af við lestur í
félagslegri einangrun. Hversu alvar-
lega sem það hljómar er lífið ekki búið
þótt maður sé að „læra til læknis“.
Læknar þurfa að vera félagsverur
og líta má því á eitt hlutverk félagsins
að þjálfa verðandi lækna í mannleg-
um samskiptum og gleðskap. Undan-
farin fimm ár hafa haft að geyma ann-
arsvegar suma leiðinlegustu og erfið-
ustu en hins vegar suma þá
skemmtilegustu og bestu daga sem ég
hef lifað. Hefur þetta ekki síst verið að
þakka þeirri fjölbreytni sem Félag
læknanema hefur haft uppá að bjóða:
böll, árshátíðir, ferðalög, íþróttamót,
vísindaleiðangrar bæði innan- og ut-
anlands, félagsfundir, fræðslufundir,
fúlafélagsfundir og aðrar almennar
helgar uppákomur í góðum félags-
skap læknanema af öllum árgöngum.
En öllu gamni fylgir nokkur alvara.
Félag læknanema er ekki bara grín og
gleðimannafélag, heldur mikilvægt
hagsmunafélag þar sem fulltrúar fé-
lagsins sitja í ráðum og nefndum
læknadeildar, svo sem deildarráði og
kennslumálanefnd en þar höfum við
tækifæri til að hafa áhrif á gang allra
mála er varða okkur beint eða óbeint.
Félagið stendur fyrir umfangsmik-
illi fræðslustarfsemi. Við skipuleggj-
um fræðslufundi um það nýjasta af
nálinni, gefum út merkilegt og virt
fagtímarit, Læknanemann, sem er
vinsælli meðal lækna og læknanema
en Andrés Önd meðal barna. Einnig
gefum við út fréttasnepilinn Mein-
vörp, sem greinir frá öllu ]dví helsta
sem er að gerast í félaginu dagsdag-
lega. Með nýauknum tölvukosti fé-
lagsins, en nú eigum við þrjár slíkar, á
ég von á að útgáfa þess eflist til muna
á komandi ári.
Af framangreindu og eftir lestur
ársskýrslunnar ætti að vera ljóst að
um umfangsmikla starfsemi er að
ræða. Félagið hefur dágóðum fjölda
embættismanna á að skipa sem allir
vinna að því sameiginlega markmiði
að stjarna félagsins og læknanema
skíni sem skærast.
Að þessu sinni er ársskýrslan öllu
viðameiri en verið hefur undanfarin
ár. Höfum við ákveðið að hafa skýrslu
þessa all ýtarlega, annarsvegar til að
gera félagsmönnum almennilega
grein fyrir störfum stjórnar og félags-
ins skólaárið 1986-87 og hins vegar
eins og áður er getið, að miðla nýkjör-
inni stjórn og embættismönnum af
fyrri reynslu. All ýtarlegar ársskýrslur
fyrri stjórna hafa um síðir verið birtar
í Læknanemanum en ekki fyrr en 6 og
uppí 12 mánuði eftir aðalfund sem er
að mínu mati allt of seint.
Oft ber svo við að mikil vinna hefur
verið lögð í ákveðin mál sem því mið-
ur hefur ekki tekist að ljúka af ýmsum
ástæðum. Með ítarlegri skýrslu frá-
farandi stjórnar ætti að vera auðveld-
ara fyrir nýkjörna stjórn að taka upp
þráðinn þar sem frá var horfið. Það er
von okkar að skýrsla þessi verði ein-
hverjum til gagns ogjafnvel nokkurs
gamans.
Virðingarfyllst, fyrir hönd stjórnar
Helgi H. Sigurðsson
formaður F.L.
67