Læknaneminn - 01.10.1987, Blaðsíða 74
allra í gegnum fulltrúa sína í Háskóla-
ráði, æðsta ráði háskólans.
Undanfarin ár hefur smám saman
verið komið á meiri og tryggari tengsl-
um milli Stúdentaráðs og deilda- og
skorafélaga. Því var á liðnum vetri
tekin sú ákvörðun í stjórn Stúdenta-
ráðs að boða til svokallaðra „for-
mannafunda" í framhaldi af þeirri
þróun sem hafði verið síðastliðinn
vetur. Það er staðreynd að með slík-
um reglulegum fundum er hægt að
stilla saman strengina í mörgum mik-
ilvægum málum og ekki síst fá fréttir
af starfsemi í öðrum deildum.
Fyrsti fundurinn í ár var haldinn
30. okt. Félag læknanema sendi að
sjálfsögðu fulltrúa. Það mál sem bar
hæst var „Drög að reglugerð Hátíðar-
nefndar 1. desember". Voru flestir
fundarmanna sammála um að kosn-
ingar lista eins og verið hefur undan-
farin ár til að skipuleggja hátíðarsam-
komur og stúdentadansleiki hafi
gengið sér til húðar.
Það hefur sýnt sig að flestir stúd-
entar hafa ekki áhuga að að gera 1.
des. að bitbeini tveggja pólitískra
fylkinga innan Háskólans á þessum
hátíðisdegi allra stúdenta. Heldur
ættu stúdentar að standa saman um
sameiginleg hagsmunamál og ein-
beita sér að því að halda dag þennan
hátíðlegan í stað þess að rífast um
„komma vs. kapitalista, Reagan vs.
Gorbatsjov, EI Salvador vs. Afganist-
an“ o.s.frv.
Stjórn Félags læknanema sam-
þykkti reglugerðina einróma. Fór þá
fulltrúi félagsins á næsta „formanna-
fund“ 6. nóv. með umboð stjórnar. Á
fundi þessum var reglugerðin sam-
þykkt með smávægilegum breyting-
um. Auk þess var strax dregið um
hvaða deildir skyldu skipa fulltrúa í
Hátíðanefnd 1. des. næstu þrjú ár.
í fyrra sáu fulltrúar frá lagadeild,
viðskiptadeild og heimspekideild um
hátíðahöldin og þótti takast vel. Mikil
aukning var á þátttöku stúdenta í há-
tíðarhöldunum frá fyrri árum. Fjöl-
mennt var á hátíðarsamkomunni í
Háskolabíói og 1. des. ballið á Borg-
inni sló öll met.
í ár 1. des. ’ 87 mun læknadeild,
tannlæknadeild og raunvísindadeild
eiga að skipa fulltrúa í hátíðarnefnd-
ina og á ég von á að vel takist til, en
eins og við öll vitum hefur læknadeild
alkunnu gleðifólki á að skipa.
Með þessu fyrirkomulagi gefst hin-
um almenna nemanda í H.í. kostur á
að taka þátt í skipulagningu hátíðar-
halda þessa merka dags stúdenta.
Vonast er til að þetta eigi eftir að auka
áhuga og þátttöku allra og orðiðjafn-
vel eins og í gamla daga þegar allir
stúdentar fóru út að skemmta sér.
Lesstofumálið
Vegna náins samstarfs félagsins við
Stúdentaráð H.í. á síðastliðnum vetri
fengum við veður af fyrirhugaðri sölu
Háskólans á lesstofu læknanema í
Tjarnargötu 39. Forsaga þessa máls
er að veturinn ’84—’85 stóð Háskólinn
fyrir skoðanakönnun um sætanýtingu
á lesstofum. Niðurstaðan var sú að
offramboð væri á lesplássi. Vegna til-
komu og opnunar Bókasafns Land-
spítalans í tengslum við Háskólann
taldi rektor læknanema ekki lengur
þurfa á lesaðstöðunni í Tjarnargötu
39 að halda og lagði sölu þess fyrir
háskólaráð.
Töldum við bókasafn Lsp. ekki
geta komið í stað lesaðstöðu TG, en
auk þess að vera aðstaða til lærdóms
hefur Tjarnargata 39 þjónað mikil-
vægu hlutverki í félagslífi læknanema.
Þar á meðal uppeldisstöðvar „Fúlafé-
lagsins11.
Var brugðið á það ráð að snara
saman greinargerð um lesaðstöðu
læknanema í heild þar sem við gagn-
rýndum vinnubrögðin við gerð könn-
unarinnar, gerðum grein fyrir sér-
stöðu læknanema varðandi lestrarað-
stöðu og mótmæltum kröftuglega
fyrirhugaðri skerðingu án þess að
önnur aðstaða kæmi í staðinn. Grein-
argerð þessi var send rektor og Há-
skólaráði sem síðan dró tillöguna um
söluna til baka um óákveðinn tíma.
Þar sem um lélegt húsnæði er að ræða
gæti orðið af þessu síðar. Því þarf fé-
lagið að hafa stefnu í þessum efnum
og tel ég því rétt að birta eftirfarandi
hluta greinargerðarinnar komandi
stjórnum til stuðnings.
Sérstaða læknanema
varðandi lestraraðstöðu
Við vekjum athygli á því að lækna-
nemar þurfa að lesa mikinn fjölda fyr-
irferðamikilla textabóka og atlasa
sem ávallt þurfa að vera við hendina.
Það er ávallt þörf á upprifjun grunn-
faga við lestur klíniskra greina í seinni
hluta námsins. Lokapróf byggist á
sameinaðri þekkingu allra grunn-
greina læknisfræðinnar sem þörf er á
til almennra læknisstarfa. Ómögulegt
er að flytja þennan bókakost með sér
milli staða dag hvern. Verða því að
vera til staðar aðstæður til geymslu
þessara bóka. Sameiginleg lesstofa
með föstum borðum, eða a.m.k. hill-
um, leysir þetta mál og gerir kleyfa
hina áralöngu hefð læknanema að
sameinast um notkun á dýrari bók-
um.
Ályktun
Mað framangreint í huga teljum
við ekki réttlætanlegt að skerða frekar
lesaðstöðu læknanema með sölu á
Tjarnargötu 39, nema að önnur að-
staða komi í staðinn. Bókasafn Lsp.
fullnægir ekki að svo komnu máli þörf
læknanema fyrir lespláss. Húsnæðið
að Tjarnargötu 39 er í mjög slæmu
ásigkomulagi, en þó teljum við að fyr-
irhuguð sala hennar sé ótímabær. Við
skorum því á Háskólaráð að fresta solunni
um óákveðinn tíma þar til séð verðurfram á
viðunandi lesaðstöðu í staðinn.
Tillögur
Við fögnum tilurð hins nýja bóka-
72
LÆKNANEMINN ^987-40. árg.