Læknaneminn - 01.10.1987, Síða 77
menn fúsir að vinna í þeim verkefnum
sem fyrir lágu. Þó að hver stjórnar-
maður hafi sitt sérsvið að hugsa um,
vinna menn saman að mörgum mál-
um. Þá er byrjað á að ræða málin á
fundinum, og allir vilja leggja eitt-
hvað til, og síðan gera menn mismikið
í að tala við fólk og sjá um aðrar út-
réttingar í sambandi við framkvæmd
mála. Dæmi um svona sameiginleg
verkefni eru: sala félagsskírteina,
samning símaskrárinnar, kynningar-
dagur Háskólans 19. okt., merki fé-
lagsins úr tini, Söngbók F.L., útvarp
og kælir útvegað á Suðurgötuna, les-
stofumál, etc. etc. Onnur mál sáu
menn um einir eða tveir til þrír sam-
an. Nákvæmari skýrslur af því sem
helst var á döfinni eru hér að aftan.
Fundargerðir eru allar til í félags-
heimilinu Suðurgötu 26b.
Oftast fór mikið meiri tími heldur
en sem svarar stjórnarfundasetunni í
að leysa málin og aðalvinnan hjá flest-
um okkar var fyrir utan stjórnarfund-
ina.
Ritari.
Félagsfundir
Aðalfundurinn og stjórnarskiptin
voru 4. október 1986. Félagsfundir
voru fjórir á starfsárinu. Auk þess var
kynningarfundur fyrir 1. árs nema og
kennslumálaráðstefna í febrúar.
Aðalíundurinn
Hann stóð samfellt í fimm tíma og
viðstaddir voru nær eingöngu emb-
ættismenn og verðandi embættis-
menn F.L.
* Ársskýrsla síðustu stjórnar var
rædd og samþykkt.
* Reikningar F.L. voru ræddir og
líka samþykktir.
* Ráðningargjöld voru ákveðin kr.
1000 fyrir læknastöðu á heilsu-
gæslu, en kr. 600 á spítala. Menn í
hjúkrunarstöðum greiði kr. 300 á
mán.
* Lagabreytingartillögur ýmsar tóku
lengsta tímann. Þeim var öllum vís-
að til næsta félagsfundar, nema
einni. Sjá um frávísuðu tillögurnar
í kaflanum um félagsfund 4. 12.
Samþykkt var tillaga frá stjórn um
sameiningu fræðabúrs og fræðslu-
nefndar. „Fræðslunefndin“ nýja er
eins mynduð og sú gamla var, en
tekur nú að sér að sjá um fræðabúr-
ið auk fyrra hlutverks. Formaður
hennar er áfram í stjórn.
* Kosnir voru embættismenn félags-
ins næsta árið.
* Nú hófust umræður um ýmis mál,
og má lesa um það í fundargerðar-
bók.
* Síðast var vísa félagsins kyrjuð.
Mæting félagsmanna á félagsfundi
var dræm í vetur, sem og undanfarna
vetur. Flestir voru 38 á febrúarfund-
inum. Meinvörp flytja reynda núorð-
ið mikið af vísdómi embættismanna
F.L., en þar heyrist ekkert frá öðrum
félagsmönnum. Og þó að úr því væri
bætt geta þau aldrei orðið eins góður
vettvangur skoðanaskipta og fjöl-
mennir félagsfundir. Auk þess marka
félagsfundir stefnu félagsins með til-
lögum sem þar eru ræddar og sam-
þykktar. Betri Meinvörp geta því ekki
komið í stað fámennari félagsfunda.
Krónískt fámenni á félagsfundum
steingeldir félagið og vegur að tilveru-
rétti þess!
4.12. 1987. Þessi fundur var upphaf-
lega auglýstur 27. 11. en var frestað
um viku.
Aðalmál fundarins voru lagabreyt-
ingartillögur, sem vísað hafði verið af
aðalfundi. Þar var gert ráð fyrir fækk-
un í stjórn F.L. og formannafundum
mánaðarlega. Að lokum var sam-
þykkt að fækka aðeins um einn mann í
stjórn, ritstjóra læknanemans, en
samt að halda formannafundina.
Aðrar lagabreytingatillögur komu
fram um að ráðningarstjóri sæti í
stjórn, að stúdentaskiptastjóri færi úr
stjórn og um Alþjóðanefnd F.L., sem
heíði umsjón með erlendum sam-
skiptum F.L. Tillagan um ráðningar-
stjórann var felld og hinar voru ekki
fullunnarsvo að fundurinn beindi því
til tillögusmiðanna að halda áfram,
sem starfshópur um máiið.
Næst varð umræða um atvinnu-
horfur lækna í tilefni af Málþingi L.í.
um sama efni 12. 12. Svartsýni frekar
ríkjandi á efri árum. Jón T.H. með
tillögu um gerð og framkvæmd skoð-
anakönnunar meðal Iæknanema á því
hvernig þeim líst á framtíðina og
hvernig þeir meta námið í deildinni í
þvísambandi. Starfshópur myndaður
á staðnum. Niðurstöður tilbúnar fyrir
málþingið.
Síðast voru umræður um fræðslu-
herferð landlæknis gegn AIDS og
hlutverk læknanema þar, sem virðist
ætla að verða stórt. Hans J. Beck,
læknanemi á 5. ári, sem einnig vinnur
á skrifstofu landlæknis hefur með
skipulagningu að gera hvað viðvíkur
læknanemum.
29.1. 1987. Aðalmálið var kosning
nýs ráðningarstjóra 5. árs. Guðni Ar-
inbjarnar náði kosningu, en þrír voru
í kjöri.
Næst var kynning á vegum hóp-
slysanefndar á fyrirlestri um sjúkra-
flug og kynningu á þyrlu landhelgis-
gæslunnar.
Síðast kynnti Gunnlaugur Sigfús-
son kennslumálaráðstefnu F.L. sem
verða mundi í febrúar.
Önnur mál voru engin frá félags-
mönnum og því virtist sem að allt
væri eins og best væri á kosið í deild-
inni. Enginn hafði yfir neinu að
kvarta.
19.2. 1987. Þetta var fjölmennasti fé-
lagsfundurinn í ár, fyrir utan aðal-
fund.
Numerus clausus var ræddur og
stefna félagsins ákveðin óbreytt, þ.e.
LÆKNANEMINN «987-40. árg.
75