Læknaneminn - 01.10.1987, Qupperneq 78
að mæla heldur með 6,5 í lágmarks-
einkunn í stað N.C. upp á 36.
Næst var heilmikil umræða um les-
stofumál. Til stóð að selja Tjarnar-
götu 39, en úr því varð ekki. Okkur
vantar almennilegt sameiginlegt hús-
næði sem væri um leið félagsheimili
og lesstofur. Þetta er í raun forsenda
þess að hægt sé að halda uppi raun-
verulegri félagsstarfsemi í deildinni.
Slíka aðstöðu eigum við að fá í bygg-
ingu 7, en okkar álma þar er ennþá
ekki nema grunnurinn.
Síðast hafið Jón Tryggvi framsögu
um hlutverk félagsfunda og lélega
mætingu félagsmanna. Tilveruréttur
félagsins? Umræður. Hvers vegna er
þetta svo?
19.3.1987. Tekið var vel undir tillögu,
sem heimilar ráðningarstjórum að
bjóða út sumarstöður, aðrar en
læknastöður, um leið og þær bjóðast.
Þetta þýðir að hjúkrunar- og
meinatæknastöður fyrir sumarið er
hægt að bjóða upp á ráðningarfundin-
um í apríl. Sama ráðningarröð gildir
og dregin er út á aðalráðningarfund-
inum fyrir sumarið. Ráðningarstjór-
um er heimilað að gera þetta svona ef
þeir teldu það henta.
Kennslumálanefndin kynnti hug-
myndir, sem læknadeildin hefur um
endurskipulagningu náms í lækna-
deild og eigin tillögur, sem ekki eru
samhljóma.
Helgi Sigurðsson kom fram með
hugmynd um auknar greiðslur lækna-
nema til félagsmála sem rynnu í end-
urbætur ýmsar, sem háskólinn á að
sjá um en gerir ekki. Hlaut ekki undir-
tektir.
Stúdentaskiptastjóri og ritari
greindu frá ferð sinni á þing IFMSA í
Portúgal um stúdentaskipti.
Sigríður Jakobsdóttir kynnti fyrir
hönd hópslysanefndar fyrirlestur um
acut medicin og hópslys mánud. 6.
apríl.
Ritari.
Deildarráðsfundir
Þá sátu 6 kennarar með atkvæðis-
rétt og tveir fulltrúar F.L. (formaður
og gjaldkeri) auk formanns kennslu-
málanefndar og kennslustjóra. Þeir
voru á tveggja vikna fresti og tóku um
tvo tíma hver.
Deildarráð er framkvæmdastjórn
deildarinnar, en verður að fá blessun
deildarfundar í flestum málum.
Þar var langmest rætt um lækn-
ingaleyfi, sérfræðileyfi, stöðuveiting-
ar, stjórnunarmál, byggingarmál og
annað í þeim dúr, en mikið minna um
mál sem snúa beint að stúdentum.
Helstu málin okkar voru aðstaða fyrir
stúdenta á LSP, lesstofumál, umræða
umN.C., möguleikaráaðö. árs menn
komist á Akureyri í klíník, fjarvera 5.
árs nema frá geðkúrsus og haustpróf
vegna þess, klúður með janúarpróf 1.
árs nema og styrkir til tölvukaupa.
Nánar er greint frá flestum þessara
mála annarsstaðar í skýrslunni.
Ritari.
Deildarfundir
Þar áttu að mæta um níu tugir
kennara og þrettán læknanemar.
Mæting læknanema hefur alltaf verið
nær hundrað prósent, en oft aðeins
þrír til fjórir tugir kennara mættir og
fundirnir stundum ólöglegir vegna
manneklu. Framvegis verða lækna-
nemar ekki nema 12, vegna þess að
lyíjafræði lyfsala er núna sérdeild og
ekki innan læknadeildar. Lyíjafræði-
nemar, hjúkrunarfræðinemar og
sjúkraþjálfanemar höíðu enga full-
trúa á fundinum. í vetur voru aðeins
tveir fundir, í nóvember og maí. Þar-
an er yfirstjórn deildarinnar og mark-
ast stefna hennar á þessum fundum.
Nánar er greint frá þeim málum
sem okkur varða mest, og þarna komu
til umræðu, annars staðar í skýrsl-
unni.
Ritari.
Símaskrá F.L.
1986—1987
Hún kom út aukin frá því sem áður
hefur verið. Lög félagsins og ráðning-
arreglugerðin voru núna með. Þótti
stjórninni þetta þörf nýjung og mælt-
ist hún vel fyrir. Auk þess var þarna
að finna símaskrána, lista yfir emb-
ættismenn, tímasetningu félagsfunda
og ráðningarfunda og opnunartíma
ljósrita, fræðabúrs og tölva.
Rit þetta er því orðið mun meira en
að vera bara símaskrá og tími til kom-
inn að gefa því nýtt nafn.
Meinvörp
Á vetrinum ’86-’87 voru gefin út
alls 9 tölublöð af Meinvörpum. Inni-
hald þeirra var mismikið, fór allt upp í
12 síður þegar best lét. Meðal efnis
var: Fréttir af aðalfundi 14. okt. ’86,
ráðningamál, vísindaferð í Stykkis-
hólm, stúdentaskipti, fræðslufundir, 6
greinar af kennslumálum, sagt frá því
helsta sem gerðist á félagsfundum,
skoðanakönnun meðal læknanema
um atvinnumál o.fl. o.fl.
Vinnslan fór þannig fram að fólk
skilaði inn greinum og orðsendingum
til ritara eða mín (ritstýra Mein-
varpa) og í sameiningu unnum við
svo úr efniviðnum. Einstaka sinnum
bættum við örlitlu spaugi inn í. Ljós-
ritun fór síðan fram á geðdeild Land-
spítalans. Upplag hvers tölublaðs var
300 eintök.
Anna Margrét Guðmundsd.
Vísindaleiðangurs-
söngbók F.L.
Hún var sett saman fyrir vísinda-
ferðina til Stykkishólms. Þar var rað-
að saman gamalkunnum drykkjuvís-
um, þjóðlögum og öðrum söngtextum
sem hæfa þótti í slíka ferð. Henni var
síðan dreift í rútunni. Mæltist þetta
mjög vel fyrir og var bókin mikið not-
76
LÆKNANEMINN ^987-40. árg.