Læknaneminn - 01.10.1987, Síða 81
Thor hf. og tapaði naumlega einum
færri. Er því spurningin hvort áfengi
og íþróttir fari ekki vel saman. Eftir
þróttmikið starf um veturinn dró af
nefndinni með vorinu og ekki varð af
frekara móthaldi.
F.h. íþróttanefndar,
Kári Logason, 5. ári.
Skýrsla Hópslysanefndar
fyrir skólaárið 1986—1987
í janúar 1987 íluttu Jón Baldursson
og Óskar Einarsson læknar á Bsp. er-
indi um þyrluvakt lækna og Land-
helgisgæslunnar. A eftir var farið og
þyrlan skoðuð og hjálmarnir mátaðir.
Mæting var góð, 30-40 manns. í apríl
flutti Jón Baldursson fróðlegt erindi
um aðkomu að slysstað. Farið var í
mikilvæg atriði sem allir læknanemar
þurfa að kunna. Góð mæting, aftur
um 30-40 manns. Einnig voru í vetur
heimsóttar aðalstöðvar Almanna-
varna ríkisins og þær skoðaðar og
kynnt starfsemi almannavarna. Mæt-
ing var slæm, 5 manns. Æskilegt væri
í framtíðinni að ofannefndum atrið-
um verði komið fyrir inni í kennslunni
í læknadeild, því að þau eru mjög
mikilvæg og hagnýt fyrir læknanema.
Fyrirhugað er að halda skyndihjálp-
arnámskeið í október, sem heíð er
komin fyrir og er aðallega ætlað 1., 2.
og 3. ári.
Ársskýrsla ráðninga-
stjóra
Á aðalfundi F.L. var Hjörtur
Oddsson kjörinn aðalráðningastjóri
en hann var af persónulegum ástæð-
um að láta af störfum í desember og
Gunnar Guðmundsson tók við til
bráðabirgða þar til undirritaður var
kjörinn á félagsfundi 29. jan. Kann ég
þeim bestu þakkir fyrir þeirra starf.
Veturinn ’86-’87 var nokkuð um
afleysingastöður fyrir læknanema eða
svipað og var veturinn áður, alls 31
staða sem voru 24 vinnumánuðir
(ekki talin með námsstaða á Isaíirði).
Skipting milli máanaða var þessi:
okt. nóv. des. jan. feb. mar. apr. maí
33633238
Allar þessar stöður tókst að manna
og flestallir sem vildu vinna gátu það.
Nokkrum 5. árs nemum sem tóku
sér frí til að vinna var meinað að fara í
vorprófog þurftu að fara í haustpróf-
CAVE.
Lengi vel leit illa út með læknastöð-
ur um sumarið en nokkuð rættist úr er
nær leið. Ástæðan fyrir óvissunni var
m.a. sú að kandidatar sem höfðp
löngu ráðið sig hættu við á síðustu
stundu vegna þess að þeir fengu betri
stöður. Framboð á vinnu var nokkuð
minna en sumarið ’86 mikið til vegna
breyttra skattalaga, menn tóku sér
minna sumarfrí, og aðrir framlengdu
stöður sínar út árið.
Heildarvinna um sumarið var sem
hér segir:
júní 49 vinnumánuðir
júlí 15 vinnumánuðir
ágúst 13 vinnumánuðir
sept. 7 vinnumánuðir
Af stöðum í júní voru tíu 3ja mán-
aða stöður og nokkrar tveggja mán-
aða, þannig að af þessum tölum er
ekki hægt að ráða hve margir voru í
vinnu í hverjum mánuði.
Hér má nefna að F.L. buðust 2
læknastöður í Svíþjóð í skiptum fyrir
eina hér heima en ekki var áhug
læknanema fyrir þessu, aðallega
vegna stutts fyrirvara og einnig vant-
aði endanlegt svar frá Socialstyrelsen
í Svíþjóð sem var þó góð von um að
gæíi sitt samþykki. Athuga þarf þetta
nánar með góðum fyrirvara fyrir
næsta sumar.
í heildina má segja að framboð á
læknastöðum hafi ekki verið nóg því
ekki fengu allir vinnu sem þess ósk-
uðu.
Hjúkrunarstöður sumarsins voru
geysimargar, aldrei eins margar áður
eða alls 177 vinnumánuðir, einungis
tókst að manna 61 mánuð þannig að
við þurftum að gefa margar góðar
stöður frá okkur og kom það mjög illa
við margan hjúkrunarforstjórann sem
við höfðum gefið góðar vonir um
mannskap. Af þessu má ráða að
breyta þarfreglum F.L. um ráðningar
í hjúkrunarstörf.
Meinatæknastöður í boði voru 29
vinnumánuðir og mannafli fékkst í 6
mánuði! Hvað gera læknanemar á
sumrin?
Ráðningar skólaársins gengu stórá-
fallalaust fyrir sig þó upp hafi komið
umdeilanlegt mál. Að lokum við ég
þakka Kristjáni Oddssyni og Magn-
úsi K. Magnússyni ráðningarstórum
4. og 3. árs gott samstarf á árinu.
Guðni Arinbjarnar.
Skýrsla Fulltrúaráðs
Að venju stóð Fulltrúaráð fyrir
skemmtan og upplyftingu handa les-
móðum læknanemum síðasta vetur,
sem og fyrri vetur.
Fyrsta verkefni fráfarandi ráðs var
vísindaferð. Undir gunnfána vísinda
og námfýsni var ekið í Stykkishólm. í
Hólminum stendur spítali til dýrðar
helgum Francisus, mynduglega rek-
inn af nunnum reglunnar. Þær buðu
hangiket og uppstúf, en læknarnir á
staðnum sýndu læknanemum spítal-
ann og heilsugæslustöðina, að
ógleymdum Árna fréttaritara Helga-
syni er söng gamanvísur við gífurleg-
an fognuð. Um kvöldið splæsti bæjar-
stjórn í kvöldverð ágætan. Er líða tók
á nótt var haldið til húsakynna læj-
ónsklúbbsins Kidda, þar sem dansinn
var stiginn fram eftir morgni. Um há-
degisbilið upphófst leit að bílstjóran-
um og fannst hann undir borði í eld-
húskróknum.
Jólaballið var haldið að Hótel Loft-
leiðum. Gleraugnakeppni var háð
með glæsibrag.
LÆKNANEMINN «987-40. árg.
79