Læknaneminn - 01.10.1987, Síða 82
Árshátíðin fór fram á Broadway og
fór í alla staði vel fram. Heiðursgestir
voru Stefán Ólafsson háls-, nef- og
eyrnalæknir og eiginkona hans.
Skemmtiatriði voru í höndum lækna-
nema sjálfra, enda óþarfi að leita
lengra eftir talentum. Happ var dreg-
ið á aðgöngumiða, ferð til Lundúna í
verðlaun.
Rétt er að geta Þórsmerkurferðar í
júlímánuði sem farin var að forgöngu
aðstoðarstúdentaskiptastjóra, en
undirbúin af fulltrúaráði. Skálavörð-
urinn í Húsadal heilsar orðið lækna-
nemum innvirðulega á götu, svo mik-
ils háttar þykir honum framganga vor
síðastliðin sumur.
Lokahnykkur starfsársins var
kynningarballið í Hreyfilshúsinu um
síðustu helgi. Að sögn þeirra sem
komnir eru aftur heim til sín tókst það
stórvel.
F.h. Fulltrúaráðs,
Hans Jakob Beck.
Fræðslunefnd
Samkvæmt 18. grein laga Félags
læknanema skal fræðslunefnd skipuð
6 mönnum, einum af hverju ári og
skal kosið til hennar á aðalfundi. Skal
förmaður vera úr seinni hluta náms-
ins og kosinn á aðalfundi. Fræðslu-
nefnd skal halda a.m.k. fjóra fræðslu-
fundi, sjá um bókakost félagsins, kvik-
myndasýningar og fræðabúr F.L. Um
fræðabúr er frekar kveðið á um í
reglugerð. Þess má geta að pantaðar
voru tvær mjög athyglisverðar bækur
frá U.S.A. Önnur heitir „Computers
in medicin“ og hin heitir „How to
choose a medical speciality“. Nú á
síðustu og bestu tímum á efni bók-
anna inn á lesborð ílestra læknanema.
Fræðslufundir síðasta vetrar voru
með eindæmum vel sottir. Fyrsti
fræðslufundurinn var haldinn 21.11.
’86. Þá fóru 36 gallvaskir læknanemar
til Svartsengis og hlustuðu þar á frá-
bæran fyrirlestur Jóns Hjaltalíns um
Psoriasis. Á meðan Jón Hutti fyrirlest-
urinn voru bornar fram kökur og kaffi
drukkið með. Eftir erindið fóru þeir
sem vildu í bað í bláa lóninu (hver
man ekki eftir Hans Jakobi Krókodíl
og KRÓKODÍLASUNDINU !!!).
Um kvöldið var svo farið í partý til
Ara „bara“ og dansað á Borginni
fram á nótt.
Næst var haldinn fræðslufundur
26.2. ’87. Þessi fundur var haldinn í
Odda. Fyrirlesarar voru tveir. Það
voru þeir Páll Skúlason prófessor við
Heimspekideild og Sigurður Árnason
onkolog með meiru. Um 80-90
manns hlustuðu á frábæran fyrirlest-
ur þeirra félaga. Páll fjallaði almennt
um siðfræði en Sigurður meira út frá
sjónarhóli lækna og læknanema. Eftir
fyrirlesturinn rigndi yfir þá spurning-
um og var fundurinn mjög líflegur fyr-
ir bragðið.
Síðasti fræðslfundurinn var sér-
stæður að því leyti að hann var hald-
inn í samvinnu við hjúkrunarfræði-
nema. Fundarefni var „Kynlífshegð-
un“ og fyrirlesarar voru Högni
Óskarsson geðlæknir og Hulda Guð-
mundsdóttir félagsráðgjafi. Fundur-
inn var haldinn í Hjúkrunarskólanum
við Eiríksgötu fyrir fullu húsi. Sama
var uppi á teningnum hér eins og á
hinum fundunum, fyrirlesarar stóðu
sig vel og eftir erindið voru þeir spurð-
ir spjörunum úr.
Síðast en ekki síst vil ég þakka
stelpunum í „búrinu“ og öllum
stjórnarmeðlimum fyrir stórskemmti-
legt og gott samstarf á síðasta vetri.
Með kærri kveðju frá formanni
Fræðslunefndar,
Stefán Hjálmarsson.
Skýrsla formanns
kennslumálanefndar F.L.
Eftirfarandi greinargerð fjallar um
það helsta úr starfi kennslumála-
nefndar F.L. og kennslunefndar
læknadeildar veturinn 1986-87. Þykir
mörgum hún vafalítið langhundur
hinn mesti en þannig þjónar hún þó
best hlutverki sínu sem fróðleikur og
stuðningur fyrir komandi kollega
mína.
Svo sem kunnugt er sitja í þeirri
kennslumálanefnd sex fulltrúar, einn
af hverju námsári og sitja þeir jafnan
einnig fundi kennslunefndar lækna-
deildar þar sem stúdentar eiga þrjú
atkvæði á móti sex atkvæðum kenn-
ara. Kennslunefnd hittist að jafnaði
tvisvar í mánuði en kennslumála-
nefnd F.L. fundaði nær vikulega í vet-
ur og stundum daglega enda var sam-
starfið þar bæði gott og skemmtilegt.
Breytingar á heildar-
skipulagi náms og
kennslu í læknadeild
H.í.
Það mál sem bar hæst á síðastliðn-
um vetri og tók hvað mestan tíma
nefndarmanna var tvímælalaust um-
ræðan um endurskipulagningu á
náms- og kennsluháttum í læknadeild
H.í. Það mál ætti að vera kunnugt
öllum þeim sem með málunum fylgj-
ast enda höfum við í kennslunefnd
notað hvert tækifæri til að koma því á
framfæri. Engu að síður munu nú
meginatriði þess máls rakin, enda
stórmál á ferðinni.
Sú umræða hófst þegar á fyrsta
fundi kennslunefndar Iæknadeildar í
haust er forseti deildarinnar, Ás-
mundur Brekkan, hóf máls á því sem
læknanemar hafa reyndar löngum
tönglast á, að tími væri til kominn að
huga að endurskipulagi náms í lækna-
deild. Er skemmst frá því að segja að
læknanemar í nefndinni tóku vel und-
ir þessa hugmynd Ásmundar og
ásettu sér að vera vel með á nótunum í
umræðunni frá upphafi. Höfum við
lagt mikla vinnu í að kynna okkur
þessi mál og hvernig slíku er fyrir
komið m.a. í löndunum í kringum
okkur og höfum við notið þar góðs af
80
LÆKNANEMINN 44987-40. árg.