Læknaneminn - 01.10.1987, Blaðsíða 83
norrænu samstarfi sem kennslu-
málanefnd F.L. tekur þátt í.
Þetta mál hefur síðan verið rætt á
nær hverjum einasta fundi kennslu-
nefndar læknadeildar enda skildi hún
hafa undirbúningsvinnu og yfirum-
sjón þessa máls á sinni könnu. Létu
stúdentar mikið að sér kveða í þessari
umræðu enda mikið til málanna að
Ieggja.
Um áramótin kom fram frumtil-
laga að endurskipulagi á námi í
læknadeild sem samin var af þremur
forsvarsmönnum deildarinnar. Stúd-
entar lögðu þar á eftir fram tvær til-
lögur sem unnar voru upp úr tveimur
síðustu kennslumálaráðstefnum F.L.
og afnefndarmönnum. Þessar tillögur
voru ræddar nokkuð og síðan kynntar
á deildarfundi Iæknadeildar 13. maí
sl. Helgi Valdimarsson kynnti þar til-
lögu „deildarinnar" en undirritaður
fór orðum um okkar tillögu og hvað
við sáum athugavert við fyrrnefndu
tillöguna. Var þar ennfrekari umræða
um málið og komu fram ný sjónar-
mið, einkum frá heimilislæknum.
Stúdentar báru þar upp tillögu um
vinnuhóp sem ynni að frekari tillög-
um sem í ættu sæti kennarar, læknar
utan úr bæ, fulltrúar FUL og F.L.
Var sú tillaga felld en í staðinn réð
deildin vinnuhóp sem skipaður er
þremur læknum af yngri kynslóðinni,
þeim Kristjáni Erlendssyni, Sigurði
Guðmundssyni og Guðmundi Þor-
geirssyni, og hafa þeir síðan unnið að
þessu máli í sumar.
Nýlega höfum við læknanemar svo
rætt við einn af þremenningunum og
fengið tillögur þeirra til umsagnar og
verður þetta mál sem gengið hefur
ótrúlega greitt væntanlega til lokaum-
ræðu og samþykktar nú á þessu eða
næsta ári. Fyrir þann tíma munu full-
trúar úr kennslumálanefnd kynna
nýjustu tillögurnar en eldri tillögur
hafa áður verið kynntar á kennslu-
málaráðstefnu F.L. og á félagsfundi
nú í vetur.
Þá var þetta mál til umræðu á
læknaþingi L.í. nú í september þar
sem undirritaður tók þátt í pallborðs-
umræðum og þannig höfum við reynt
að fylgjast með þessu máli á öllum
vígstöðvum. Þar var jafnframt til
kynningar læknadeildin við Mac-
Master háskólann í Kanada sem þyk-
ir forvitnileg og spennandi hvað varð-
ar kennslufyrirkomulag.
Verður spennandi að sjá hvað kem-
ur útúr þessu mjög svo mikilvæga og
athyglisverða máli sem ég held að
læknanemar ættu að fylgjast grannt
með og taka virkan þátt í . . . þó að
sitt sýnist hverjum um hversu miklu
þeir eigi að ráða í þessum efnum.
Óhætt er að fullyrða að í tillögum
vinnuhópsins fyrrnefnda fellst gagn-
ger breyting á náms- og kennsluhátt-
um í læknadeild, flest ef ekki allt til
bóta. Þar hafa séð dagsins ljós ýmis
atriði sem við höfum verið að minnast
á gegnum árin og barist fyrir s.s. fækk-
un fyrirlestra, valfrí tímabil, valnám-
skeið, tutorakerfi o.fl. o.fl. o.fl. (það er
næstum því að maður byrji aftur !!!)
Af fyrsta ári
Að vanda var töluvert rætt um
fyrsta árið í deildinn á fundum
kennslunefndar í vetur og komu þar
upp nokkur mál og verður hér aðeins
getið eins af þeim en það var um
margt sérstakt og alvarlegt.
Það kom upp í kjölfar jólaprófa er í
ljós kom að nemandi sem fengið hafði
falleinkunn í Innganginum haíði alls
ekki fallið heldur hafði vantað í prófið
hans tvær blaðsíður sem síðar voru
dregnar frá einkunn. Frétti viðkom-
andi nemandi ekki af þessu fyrr en
eftir mánuð er hann fékk að sjá prófið
sitt og hafði þá ekki mætt í tíma eða
hugsað um læknisfræði meðan hinir
voru á fullu. Tók þetta mál töluverð-
an tíma bæði í kennslunefnd og deild-
arráði en erfitt úrlausnar en að lokum
var gerður sérsamningur við viðkom-
andi nemanda um próftöku um vorið.
Kynningarnámskeið lækna-
deildar fyrir
nýstúdenta
í umræðum um fyrsta árið í lækna-
deild þar sem stúdentar í kennslu-
nefnd kvörtuðu undan þeirri ringul-
reið sem þar ríkir og hversu illa er
staðið að málum ársins, kom upp í
kennslunefnd tillaga (formlega borin
upp af Hannesi Blöndal) um kynn-
ingarnámskeið fyrir nemendur sem
eru að hefja nám í fæknisfræði. Slík
námskeið eru haldin í nær öllum
læknadeildum í löndunum umhverfis
okkur og tilgangur þeirra m.a. að taka
almennilega/vingjarnlega á móti ný-
stúdentum, kynna þeim námið og
námstilhögun. Tóku læknanemar í
kennslunefnd þátt í mótun þessa
námskeiðs og fluttu þar ásamt öðrum
kynningu á F.L. Sigurður Árnason
kennslustjóri sá síðan um framkvæmd
námskeiðsins sem haldið var í fyrsta
skipti nú í haust og þótti takast með
ágætum.
Kennsla í tölvufræð-
um og stjórnun
Undanfarin ár hafa læknanemar
óskað eftir kennslu í þessum tveimur
greinum og voru tillögur um slíkt nám
ræddar í kennslunefnd í vetur. Nám-
skeið í stjórnun sem L.í. hefur haldið
var boðið læknanemum og tóku sjötta
árs stúdentar þátt í því og greiddi
deildin hluta kostnaðarins. Jafnframt
samþykkir kennslunefnd ályktun þess
efnis að taka bæri upp kennslu í
stjórnun sem valnámskeið á fimmta
eða sjötta ári. Tillaga um námskeið í
tölvufræðum var samþykkt og var
Bárði Sigurgeirssyni faiið að sjá um
kennslu. Var gerð könnun á áhuga
læknanema og námskeiðið skipulagt í
framhaldi af því. Þegar allt var tilbúið
vantaði hins vegar peninga fyrir fram-
kvæmdinni og velktist málið milli
kennslunefndar og deilarráðs þar til
misserinu lauk og ekki varð neitt úr
LÆKNANEMINN W987-40. ái
81