Læknaneminn - 01.10.1987, Blaðsíða 85
í læknarimi sem haldin er samhliða
fundi Norrænu kennslunefndanna og
þangað munu væntanlega fara stúd-
entar og kennarar héðan. Hefur þetta
samstarf reynst okkur bæði gagnlegt
og skemmtilegt og einnig og ekki síður
er það fróðlegt fyrir okkur og ánægju-
legt að kynnast kollegum vorum á
Norðurlöndum. Má jafnframt segja
að þetta samstarf sé okkur hér uppi á
hinum einangraða klaka þar sem bara
er ein læknadeild nauðsynlegt, að
halda sambandi við og sjá hvernig
læknanámi á hinum Norðurlöndun-
um er háttað.
Pá ber þess að geta að samtökin
sjálfsem styrkt eru af Norræna Menn-
ingarmálasjóðnum greiða að mestu
fyrir ferðir okkar erlendis. Þau greiða
allan kostnað stjórnarmannsins og
hafa einnig tekið þátt í eða greitt fyrir
aðra íslenska stúdenta sem farið hafa
á árinu og þannig hefur hagur okkar
verið mikill samfara þessu samstarfi
og útgjöld lítil en töluverð vinna.
Almennt og allt hitt
Fer nú þessari langloku senn að
ljrika þó ennþá sé efiaust ekki allt upp
talið afvettvangi kennslumála síðast-
liðinn vetur. Starfið innan kennslu-
nefndar læknadeildar hefur verið
skemmtilegt og að mér finnst árang-
ursríkt í vetur. Þar hefur yfirleitt verið
unnið á mjúku línunum og umræðan
verið málefnaleg og skemmtileg. Einu
sinni lentu þó stúdentar í hörðu (þeg-
ar þess þurfti) við einn ónefndan
kennara í ónæmisfræði en því máli
lauk farsællega fyrir stúdenta styrkta
af örðum kennurum í kennslunefnd.
Er vonandi að hinn góði andi sem
innan kennslunefndar ríkti lifi áfram
- því þannig, með málefnalegri um-
ræðu og samvinnu, vinnast málin.
Þá er ógetið samstarfinu innan
kennslumálanefndar F.L. í vetur sem
hefur verið sérlega ánægjulegt en þar
sátu auk undirritaðs: Finnbogi (6.
ár), Ari Víðir (4. ár), Ólafur Þór (3.
ár), Kjartan (2. ár) og Hlynur (1. ár).
Þar hefur ríkt skemmtilegur starfs-
andi enda eru menn þar uppfullir af
áhuga og margir hafa unnið saman
nokkur ár á þessum vettvangi. Eru
allar líkur á að á þessu verði framhald
þar sem fiestir ef ekki allir sem störf-
uðu í nefndinni ætla sér að starfa
áfram saman næsta vetur. Tel ég það
mjög afhinu góða efmenn fórna sér til
þessara starfa meir en eitt ár því
þannig nýtist reynslan best en jafn-
framt fæst hæfileg endurnýjun sam-
hliða því eðlilega fiæði sem er í gegn-
um deildina er sumir útskrifast og
aðrir byrja.
Mig langar í lokin að þakka þessum
samstarfsmönnum mínum í kennslu-
málanefnd fyrir samstarfið og
ánægjuna, stjórn F.L. og ykkur hin-
um fyrir samstarfið, trrinaðinn og síð-
ast en ekki síst skemmtilegheitin sem
félagsstarfinu fylgdu.
Gunnlaugur Sigfússon,
formaður kennslumálanefndar F.L.
Athugasemd
vegna viðauka Helga Sigurðssonar við ársskýrslu
“einkunnir embættismanna“
Guðbjörg Birna Guðmundsdóttir læknanemi
Þegar hafa birst í Meinvörpum
mótmæli sem fram komu á aðalfundi
gegn umsögn H.S. um störf stúd-
entaskiptastjóra. Nú krefst H.S. að
þessar „einkunnir“ hans verði birtar
í Læknanemanum sem hluti af árs-
skýrslu og það þó margir séu því
mótfallnir. Það er því ill nauðsyn að
þurfa hér að svara fyrir þessi leiðin-
legu og beinlínis röngu ummæli þó
svo að þau séu varla svaraverð.
Hann segir: „. . . kom lítið nálægt
hinum daglega rekstri." Hvílíkt bull;
vikulega allt skólaárið kom öll
stjórnin saman og vann sameigin-
lega að ýmsum málum auk þess sem
einstökum verkefnum var skipt milli
manna. Þannig kom t.d. í hlut stúd.-
skiptastj. vinnsla símaskrár ásamt
ritara, gerð félagsmerkis etc, etc.
Annað: „Aðalstarfstími. . . apríl og
fram yfir sumartímann." Nei. Að-
alstarfstími stúdentaskiptastj. er allt
árið. Þessu starfi fylgja töluverð er-
lend bréfaskipti, bæði vegna stúd.-
skiptanna og IFMSA (Alþjóðasam-
tök Læknanema) og í mars var mikil
vinna í sambandi við stúd.-
skiptastj.ráðstefnu. Þegar í desember
var síðan hafinn undirbúningur að
sumarstarfinu.
. . . “dveljast erlendis í júní og
júlí. . . “ Athuga skal að 2
stúdenta-skiptastjórar eru starfandi
hverju sinni kosnir til 2 ára. Því tel
ég það skynsamlega ráðstöfun að
þeir hafi með sér verkaskiptingu yfir
sumarið til að þurfa ekki að vera
bundin í Reykjavík í tvö heil sumur.
LÆKNANEMINN ^987-40. árg.
83