Læknaneminn - 01.04.1991, Page 12
Mynd 5. Þriðja stigs bruni. Fjarlægður hcfur verið örvefur (eschar) sem annars gæli hamlað blóðstreymi niöur í útliminn
og valdið drepi.
Mynd 7.
(stasis), er til staðar. Þessu stöðnunarlagi má skipta í
tvennt, annars vegar lag sem verður blóðvana
fljótlega og hins vegar lag sem verður blóðvana 4-16
stundum eftir brunann. í kjölfarið á blóðþurrðinni
kemur svo brunabjúgurinn,sem safnast fyrir mest
fyrstu 24 klst., heldur áfram að aukast fyrstu 48 klst.
eftir brunann, en byrjar þá að renna úr. Orsakir
bjúgsins eru taldar vera, útvíkkun á forháræðum sem
eykur þrýsting í yfirborðs háræðunum, aukinn
millifrumu- og þarafleiðandi transendotelial
mícrovascular osmótískur þrýstingur, stífla í
fjærlægum venulum, sem eykur vökvaþrýsting í
nærlægum háræðum og loks aukinn leki á
Mynd 6.
10
LÆKNANEMINN 1 1991 44. árg.