Læknaneminn - 01.04.1991, Blaðsíða 35
Sjúkratilfelli
Sigurður B. Porsteinsson og Asbjörn Sigfússon læknar
Sjúkrasaga.
45 ára gamall kennari veiktist með háum hita,
39,5-40° ásamt kölduköstum. Hafði ennfremur
hóstakjöltur, höfuðverk og lítilsháttar ljósfælni. Hann
vár lagður inn á sjúkrahús þar sem gerð var
mænustunga, reyndist mænuvökvi eðlilegur,
ennfremur var lungnamynd hrein. Tvær bióðræktanir
voru teknar og ræktaðist úr einni anerobkolbu
Streptococcus milleri. Hann var í fyrstu
meðhöndlaður með ampicillini í æð og síðar
ceftriaxoni. Eftir 5 daga var sýklalyfja-meðferð hætt
vegna útbrota þótt hann væri enn með hita.
Rannsóknir á sjúkrahúsinu höfðu sýnt míkróskópíska
haematuriu og einnig sáust rauðblóðkorna cylindrar í
þvagi. Hann hafði enga kviðverki haft en fann fyrir
lítilsháttareymslum íhægri síðu. Þegar hérvar komið
við sögu var sjúklingur fluttur á lyflæknisdeild
Landspítalans til frekari rannsókna. Við kontu þangað
er fyrrgreind sjúkrasaga staðfest. Fyrra heilsufar var
að mestu ómarkvert. Haft háþrýsting í nokkur ár og
verið á lyfjum þess vegna. Hann hafði þindarslit og af
og til brjóstsviða sent hann tekur sýrubindandi lyf við.
Reykti áður en er hættur. Félagslegar aðstæður góðar.
Skoðun.
Skoðun við komu sýnir laslegan, fölleitan 45 ára
gamlan mann, vægt Ijósfælinn. Gefur góða sögu.
Hann er með hita, 38,2°. Lungna-hjartaskoðun er
eðlileg. Blóðþrýstingur 140/70 mmHg. Við skoðun á
kvið spennir hann kviðvöðva og virðist aumari hægra
megin. Líffærastækkanir finnast ekki með neinni
vissu. Ekki sleppieymsli. Ekkertóeðlilegt aðfinna við
þreifingu í endaþarm.
Rannsóknir.
Blóðstatus: hvít blk. 16,7, Hb 132, blóðflögur
411, deilitalning hvítra blóðkorna sýndi vinstri
hneigð. Sökk 70 mm/klst. Serum kreatinin 123
míkromól/1. Electrolýtar eðlilegir. Alk. fosfatasi 830
U/1 (80-280), ASAT 51 U/1 (0-40) gamma GT 354 U/
I (0-50) LDH 460 U/1 (0-450), CK 63 U/I (0-270).
Smásjárskoðun í þvagi var nú eðlileg, hvorki að sjá
rauðblóðkornnécylindra. Hjartalínurit: eðlilegt. Ekki
fundust yfirborðsmótefnavakar hepatitis B veiru né
mótefni. Mótefni gegn hepatitis Afundustekki. Engin
mótefni fundust gegn cytomegaloveiru. Ræktanir frá
blóði voru neikvæðar. Omskoðun af nýruin: eðlileg.
Ómskoðun af lifur skömmu eftir komu sýndi ómríka
lifur, en ekki annað athugavert. Þessi skoðun var
endurtekin rúntri viku síðar og sýndi þá vel
afmarkaðan ómsnauðan blett utan við gallblöðrustað.
Var þá gert lifrarskann og í frarnhaldi af því
hvítkornaskann afkviðarholi, sjámyndiránæstu síðu.
Tölvusneiðmynd af sama svæði sýnir að umræddur
blettur er vegna óreglulegs vökvafyllts holrúms.
LÆKNANEMINN 1 1991 44. árg.
33