Læknaneminn - 01.04.1991, Blaðsíða 48
En hver eru þá þessi lyf ?
1. Lvf sem binda gallsvrur
Cholestyramine
Colestipol
2. Nikótín svra (niacin)
3. Probucol
4. HMG CoA afoxara hindrarar
Lovastatin
Pravastatin
Simvastatin
5. Gemfibrozil
Aileiður klófíbrats
Gallsýrubindandi lyfin eru fyrsti valkostur til
lækkunaráLDL gildum. Þettaeru resin sem getaskipt
við önnur efni á anjónum. Þau eru ekki uppsoguð af
líkamanum, eru vatnssækin en þó óleysanleg í vatni.
Þau binda gallsýrur í mjógirninu og koma þannig í veg
fyrir enduruppsog gallsýranna í enda mjógirnisins
(terminal ileum). Þetta minnkar magn kólesteróls í
“umferð”, og samkvæmt því sem áður er frá sagt
(“down regulation”) veldur aukinni tjáningu LDL
viðtaka, þá sérstaklega í lifur. Við þessa atburði
minnkar svo magn LDL í plasma. Til að þessi lyf hafi
verkun þurfa LDL viðtakarnir að vera vel starfhæfir,
en þrátt fyrir þessa staðreynd geta flestir sjúklingar
með arfblendna ættgenga kólesterólhækkun nýtt sér
þessi lyf.
Aukaverkanir þessara lyfja eru helstar: Ógleði,
hægðatregða auk þess sem magn þríglýseríða í plasma
getur aukist.
Við ákjósanlegustu kringumstæður geta þessi
lyf ein sér lækkað LDL gildi um 25-35%, en eins og
síðar kemur fram eru lyf þessi oft notuð með öðrum
kólesteróllækkandi lyfjum.
Nikótín sýra lækkar bæði hækkuð VLDL og
LDL gildi. Þetta lyf er venjulega notað með
gallsýrubindandi lyfjum. Líkleg verkun nikótín sýru
er sú að minnka framleiðslu VLDL í lifur, og sem
afleiðingu af því magn LDL í plasma. Þetta gæti gerst
þannig að nikótín sýra hindri losun fitusýra úr fituvef
og þannig hafi lifrin minna úr að spila til myndunar á
lípópróteinunum. Eitt sér virðist nikótín sýra, við
ákjósanlegustu aðstæður geta lækkað LDL gildi um
20-35%. I þeim skömmtum sem nikótín sýra er notuð
til lækkunar á kólesteróli eru aukaverkanir algengar,
og margir geta því ekki nýtt sér nikótín sýru í þessum
tilgangi.
Meðal aukaverkana hér má nefna húðroða (e.
cutaneous flushing), einkenni frá meltingarvegi,
hækkun á transaminösum lifrar og þvagsýrudreyri (e.
hyperuricemia). Frábendingar við notkun þessa lyfs
eru þvagsýrugigt og meltingarsár.
Eitt það athyglisverðasta við þetta lyf er að það
virðist hækka HDL gildi. Slík verkun eykur, allavega
fræðilega séð, gildi nikótín sýru sem
kólesteróllækkandi lyfs.
Probucol er lyf sem ekki er “í fyrstu röð” til
meðferðar á hyperkólesterólemiu, heldur er notað
meðöðrumkólesteróllækkandi lyfjum. Rétteraðgeta
þess að þetta lyf er ekki skráð á Islandi. Probucol
lækkar LDL gildi, en í raun er óvíst á hvaða hátt það
gerist. I þessu sambandi er afar athyglisvert að svo
virðist sem þetta Iyf gagnist einstaklingum með
arlbreina ættgenga kólesterólhækkun. Þetta þýðir að
lyfið virðist ekki hafa verkun sína gegnum LDL
viðtaka þar sem LDL viðtakana vantar í arfhreinni
ættgengri hyperkólesterólemiu. Probucol virðist vera
tekið upp í lípópróteinin við myndun þeirra og breyta
þeim þannig að frumur “þekki” ekki lípópróteinin og
geti því ekki tekið þau upp.
Hjá sjúklingum sem meðhöndlaðir hafa verið
með probucol virðist einnig sem hreinsun (e.
clearance) LDL úr plasma gangi hraðar en ella.
Probucol virðist einnig geta komið í veg fyrir
oxun. í þessu sambandi er rétt að minnast þess er fyrr
var minnst á, að við æðakölkun er umbreytt LDL, m.a.
LDL sem hefur orðið fyrir peroxidation, tekið upp í
átfrumur æðaveggja. LDL sem einangrað het'ur verið
úr sjúklingum sem undirgengist hafa probucol
meðferð virðist vera þolið (e. resistant) fyrir oxun.
Aðaloxunarvari lókamans sem vinnur á
fituleysanlegu formi fæst eingöngu úr fæðunni og er
það E-vítamín. Það er flutt á lípópróteinum í blóði og
veldur skortur þess auknum líkum á skemmdum
þeirra (34).
46
LÆKNANEMIN N 1 1991 44. árg.