Læknaneminn - 01.04.1991, Page 15

Læknaneminn - 01.04.1991, Page 15
veldur meiriháttar vefjarskemmd. Hægt er að finna verulegt magn af endotoxínum í blóðrásinni 2 klukkustundum eftir áverka. Endotoxínin eru einn sterkasti vaki kerfasvörunar eftir áverka. Efnafræðileg gerð þeirra er liposaccaríð sem inniheldur eggjahvítuefni sem er í frumuhýði gram neikvæðra sýkla. I sameindinni er lipid A þáttur sem veldur eiturverkun sameindarinnar. Uppruni endotoxínanna getur verið sýking vegna yfirborðsskemmdar, vegna sýkingar frá lungum, en einnig kemur það til að við meiriháttar áverka bilar innyflavörn líkamans og endotoxín úr meltingarveginum síast inn í blóðrásina.Við þessa sögu koma einnig ýmis boðefni og hvatar svo sem prostaglandin, sérlega prostaglandin Ey lymphokín og monokín, en af þeim hefur interleukin-1 verið rannsakað einna mest, cachectin eða æxlisdreps þáttur (TNF) ereinnig inni íþessari mynd og fleiri efni hafa verið nefnd til sögunnar. Þessi efni eru ýmist hvetjandi eða letjandi fyrir ónæmiskerfið, en nái hinir letjandi þættir yfirhöndinni verður afleiðingin fjöllíffærabilun (mynd 10). Markmið nútíma brunameðferðareru þegar um er að ræða minniháttar brunasár að koma í veg fyrir sýki ngu og græða djúp sár eins fljótt og kostur er á. Við meiriháttar brunasár er fyrsta markmið að koma í veg fyrir lost, siðan að fyrirbyggja fjöllíffærabilun með aðstoð við ónæmiskerfi Iíkamans, en sú aðstoð er fólgin í því að hreinsa burt dauðan vef eins fljótt og hægt er, halda sýkingu í skefjum og stuðla að því með öllum tiltækum ráðum, að viðhalda eðlilegu vökvajafnvægi og orkubúskap. Síðari hluti greinarinnar birtist í næsta tölublaði og verður þá fjallað um meðferð brunasára. Háaleitis Apotek Háaleitisbraut 68, Austurveri Símar: 82100 Receptur 82101 Afgreiðsla LYF H JÚKRUNARVÖRUR SNYRTIVÖRUR LÆKNANEMINN 1 1991 44. árg. 13

x

Læknaneminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.