Læknaneminn


Læknaneminn - 01.04.1991, Qupperneq 17

Læknaneminn - 01.04.1991, Qupperneq 17
Drómasýki Helgi Kristbjarnarson læknir Drómasýki er röskun á stjórnun draumsvefns og vökuástands sem veldur oft óeðlilegri dagsyfju. Þessum sjúkdómi var fyrst lýst af franska lækninum Gelineau árið 1880. En árið 1957 lýstu Yoss og Daly því sem kallað er narcoleptic tetrade sem var dagsyfjuköst, skyndilömun (cataplexy), svefn- lömun, og svefnrofaofskynjanir (hypnagogic hallucinations). Aður fyrr var þessum sjúkdómi stundum ruglað saman við aðra dagsyfjusjúkdóma einkum kæfisvefn, en kæfisvefn er þrátt fyrir að vera margfalt algengari sjúkdómur tiltölulega ný uppgötvuð orsök dagsyfju. Algengi þessa sjúkdóms er ekki þekkt en er líklega mismunandi í mismunandi löndum. T.d. er talið að drómasýki sé fátíð meðal gyðinga en meðal Evrópubúa er áætlað að algengi sé um 0,5 prómill sem mundi samsvara því að hér á landi væruum250einstaklingarhaldnirdrómasýki. Mérer kunnugt um rúmlega 30 einstaklinga hér á landi sem haldnireru drómasýki og Iíklega er heildarfjöldi innan við 50. Talið er að drómasýki sé að hluta til arfgeng og líkur barns sem á foreldri með sjúkdóminn eru taldar vera 1/20 að fá hann líka. Vitað er að þeir sem fá drómasýki eru nær allir af vefjaflokki HLA-DR2 en tíðni þessa vefjaflokks er um 25% á Norðurlöndum. Algengast er að einkenni drómasýki komi fram um tvítugsaldur en að meðaltali tekur 7 ár frá því að einstaklingur fer að finna fyrir einkennum þar til læknir greinir sjúkdóminn. Ofsyfjan er mjög oft ranglega greind sem streita, taugaveiklun eða þunglyndi, sérstaklega ef skyndilömun er ekki til staðar og ef svefn að nóttu er verulega truflaður. Einkenni Einkennum er venjulega skipt í 4 aðaleinkenni og síðan 4 eða fleiri aukaeinkenni. Aðaleinkennin eru ofsyfja að deginum til, skyndilömun, svefnlömun og svefnrofaofskynjanir. Önnureinkenni geta veriðtíðar martraðir, truflaður nætursvefn og ósjálfrátt atferli. Ofsyfja að deginum Ofsyfja er langalgengasta og oftast fyrsta einkenni drómasýki. Hún byrjar sem syfja, þreyta og orkuleysi, en síðan getur þetta orðið tilhneiging til að sofna og jafnvel ómótstæðileg þörf fyrir að sofna. Þó að þessi sjúklega syfja sé fyrir hendi á hverjum degi er syfjan breytileg eftir tíma dagsins og frá einum degi til annars. Það er jafn ómögulegt fyrir sjúkling sem haldinn er drómasýki að verjast því að syfja og sofna, og það mundi vera fyrir heilbrigða manneskju að verjast svefni eftir svo sem sólarhringsvöku. Þvt miður er það þannig með þann drómasjúka að syfjan ásækir hann jafnt þótt hann sofi eðlilegan svefntíma á hverri nóttu. Venjulegaer þróun ofsyfjunnar hæg og stundum líða mörg ár frá fyrstu einkennum þar til þau verða alvarleg. Oftast byrjar þetta með smáaukinni syfju og tilhneigingu til að sofna við aðstæður þar sem hver og einn gæti fundið fyrir syfju, t.d. eftir máltíðir og á þreytandi fyrirlestrum og við þess háttar aðstæður, sérstaklega þegar manneskjan situr eða hallar sér útaf. Smám saman breytist syfjan og fer að koma í köstum, stundum við óþægilegar aðstæður, t.d. þegar fólk horfir á sjónvarpsþátt sem það hefur áhuga á, LÆKNANEMINN 1 1991 44. árg. 15
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Læknaneminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.