Læknaneminn


Læknaneminn - 01.04.1991, Qupperneq 21

Læknaneminn - 01.04.1991, Qupperneq 21
Einstaklingar sem þjást af drómasýki læra að ná tökum á skyndilömun með þvf að verjast tilfinningalegu uppnámi. A þennan hátt getur skyndilömun verið mjög tilfinningalega hemjandi. Greining Tvennt er það sem ávallt ætti að spyrja sjúkling um sem kvartar undan dagsyfju. Annað er hrotur, því að kæfisvefn er aðalmismunagreiningin við drómasýki þó stundum fari þessir sjúkdómar saman. Hitt eru martraðir, því nær allir drómasjúklingar kannast við að hafa martraðir. Ein ástæða þess hversu illa gengur að fá rétta greiningu er að einkenni koma oft hægt í Ijós og aukast hægt. Sjúklingarnir verða jafnvel sjálfir ekki alltaf varir við sjúkdóminn, en venjast einkennunum og aðhæfa líf sitt þeim. Þegar þeir loks leita læknis kvarta þeir venjulega undan þreytu eða því að þeir eigi erfitt með að halda sér vakandi, en nefna sjaldan önnur einkenni, þar sem þeir setja þau ekki í samband við þennan sjúkdóm. Rannsóknir Til að fá fram örugga greiningu er oftast nauðsynlegt að taka svefnheilarit og gera dagsyfjumælingu (multiple sleep latency test). Þetta er nauðsynlegt nema því aðeins að sjúklingur liafi greinileg einkenni um skyndilömun, auk sögu sem bendir á drómasýki. Sé svo, þarf ekki frekari rannsókna við þar sem ekki getur verið um neinn annan sjúkdóm að ræða. En jafnvel þegar greiningin er þekkt getur verið gagnlegt að taka svefnheilarit til að greina hvort um einhverja hliðarsjúkdóma er að ræða í svefninum, sem kynnu að hafa áhrif á hvaða meðferð er æskilegust. Þegar svefnheilarit og dagsyfjumæling eru gerð er æskilegt að sjúklingurinn sé lyfjalaus í nokkurn tíma áður. Síðan kemur sjúklingurinn að kvöldi á svefnrannsóknastofu og heilarit er tekið alla nóttina. Næsta dag eftir að sjúklingurinn er vaknaður er hann áfram á rannsóknastofunni og þá er, á tveggja tíma fresti, tekið heilarit og sjúklingi sagt að reyna að sofna. Oftast á sjúklingurinn auðvelt rneð að sofna að deginum til, jafnvel inni á rannsóknastofu og í ritinu sést venjulega að sjúklingurinn fellur strax í draumsvefn (REM). Þetta sést á því að hraðar augnhreyfingar byrja fljótlega eftir að sjúklingurinn sofnar og vöðvaspenna hverfur að mestu. Hjá heilbrigðum einstaklingum líða venjulega um 90 mínútur áður en fyrsta draumaskeiðið hefst. Til að staðfesta drómasýki þarf sjúklingurinn að sofna draumsvefni innan 15 mínútna í tvö skipti að minnsta kosti í slíkri dagsyfjumælingu. LÆKNANEMINN 1 1991 44. árg. 19
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Læknaneminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.