Læknaneminn - 01.04.1991, Side 26

Læknaneminn - 01.04.1991, Side 26
Mynd 1. a) Segulsvið umhverfis segul. b) Hlaðin ögn sem snýst, eins og t.d. róteind, myndar sams konar segulsvið og segulstál ef undan er skilið stærðarmunur, hleðsla pólanna og styrkur segulsviðanna. kjarnann, sjá mynd 1. Frumefni með þessa eiginlcika eru m.a. samsætur af vetni ('H), fosfór (3IP), flúor (l9F) og kolefni (l3C). Vetni hefur sterkast segulsvið afþessum frumefnum. a) Segulmögnun líkamans Líkaminn er nær þrírfjórðu hlutar vatn. Vatn er samsett úr frumefnunum vetni og súrefni og kemur vetni einnig fyrir í mörgum lífrænum efna- samböndum. Vetni er því algengt frumefni í líkamanum og jafnframt með sterkast segulsvið af áðurnefndum frumefnum, þess vegna er vetni notað til að fá fram segulómunar myndir. Vetnisfrumeind hefur eina róteind í kjarna, enga nifteind og eina rafeind umhverfis. Vetniskjarni semeraðeinsróteind, er því eins og lítill segull með segulsvið umhverfis, nteð norður- og suðurpól. Við eðlilegar aðstæður þá vísa segulstefnur vetniskjarnanna í mismunandi áttir og upphefja þannig seguláhrif hvers annars. Þegar vetniskjarnar segulmagnast í segulómtæki þá vísar segulstefna þeirra í sömu eða gagnstæða stefnu og segulsvið tækisins, sjá mynd2. Þeirkjarnarsemhafasegulsvið ísömu stefnu eru heldur fleiri en hinir og myndar segulsvið þeirra segulmögnun líkamans. Þessi segulmögnun (Mn) hefur því sömu stefnu og segulsvið tækisins, en er mun minni að styrk. b) Mæling á segulmagni Segulómun gengur út á það að mæla þessa segulmögnun. Það er hægt ef segulmögnunin er hornrétt á segulsvið tækisins. Þeirri stöðuerhægtað ná með þvf að senda rafsegulbylgjur inn í líkamann. Ef rafsegulbylgjan er af ákveðinni tíðni, sem er Mynd 2. Við eðlilegar aðstæður vísa segulstefnur vetniskjarnanna í mismunandi áttir og upphefja þannig seguláhrif hvers annars. Þegar vetniskjarnarnir segulmagnast í segulómtæki þá vísar segulstefna þeirra í sömu eða gagnstæða stefnu og segulsvið tækisins. 24 LÆKNANEMINN 1 1991 44. árg.

x

Læknaneminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.