Læknaneminn - 01.04.1991, Síða 33

Læknaneminn - 01.04.1991, Síða 33
einungis er tekin mynd af þeim hlutum sem hreyfast með ákveðnum hraða, en annað þurrkast út. Samanburður á rannsóknum á háls- og höfuðæðum hafa sýnt myndir sem eru sambærilegar við stafræna slagæðarannsókn . Æðaskoðun, sem viðbót við venjulega "spin echo" rannsókn af heila tekur aðeins 20 mínútur. Kviðarhol Við rannsókn á kviðarholi gætir áhrifa öndunarhreyfinga, garnahreyfinga, hjartsláttar og blóðflæðis í myndgerðinni, en nú eru að koma á markað “púlsaraðir” senr koma í veg fyrir flesta myndgalla vegna hreyfinga í efri hluta kviðarhols. Allar æðar og afstaða þeirra til heilla og sjúkra líffæra sjást betur við MRI en TS og að auki má skoða það í öllum plönum. Þeir sem rannsaka lifrarsjúkdóma segjast ná betri árangri en með tölvusneiðmyndum (mynd 12). Þettaeruekki fullkannaðarstaðhæfingar, en ýmsir ífarandi sjúkdómar ( m.a hemochromatosis) sjást betur og eins æðasjúkdómar í eða við lifur. Almennt má þó segja að TS er betri rannsókn á efri hluta kviðarhols. Skuggaefni Þegar segulómrannsóknir komu í almenna notkun 1982 var talið, að engra “ skuggaefna” væri þörf (sbr. röntgenskuggaefni). Fljótlega kom í ljós að suma sjúkdóma var erfitt að greina án “skuggaefnis” t.d. meningioma. Paramagnetisk skuggaefni hafa verið þróuð fyrir segulómun, aðeins eitt er FDA viðurkennt - Gadolinum DPTA (MAGNEVIST R). Þau auka staðbundinn segulstyrk vetnisatómanna og stytta sérstaklega T1, róteindir gefa kröftugara merki og verða hvítar á mynd. Þetta er nokkuð sambærilegt útlits ogskuggaefnisupphleðslaíæxli áTSmynd en eðlisgrunnurerallurannar. Einnigerunniðafkappi að þróun “skuggaefna” fy'rir meltingarveg og lifur sem koma til með að bæta árangur við sjúkdómsgreiningar. Notkun segulómunartækis og umgengni við það Þeir tæknilegu þættir sem taka þarf tillit til í umhverfi segulómunartækis eru sterkt segulsvið og rafsegulbylgjur. Segulsviðið frá tækinu getur truflað rafmagnstæki og öll segulleiðandi efni (tölvudiskar og krítarkort) ef svonefnd segulmengun (þ.e.þar sem segulsviðiö frá tækinu er sterkaraen segulsvið jarðar) er of mikil. Öll tæki með miðlungsstærð seguls hafa frekar litla segulmengun, segulsviðið er jafnt sterkt segulsviði jarðar í um lOm fjarlægð. Vegna öryggis hefur verið miðað við seguhnengun upp á 0.5 mT (10 sinnum sterkaraen segulsvið Jarðar), m.a. vegnafólks sem notar hjartagangráð, og er hún mest í um 4 m fjarlægð frá miðju tækis. Sjúklinga með raf-, vél- eða seguldrifin ígrædd hjálpartæki eins og hjartagangráð má ekki rannsaka með MRI og reyndar rná fólk með slíka hluti ekki koma inn í rannsóknarstofuna, vegna þess að segulsviðið getur ruglað starfsemi slíkra tækja. Segulleiðandi málmhlutir mega ekki koma nær miðlungstóru tæki en 2 - 3 m. Annars gæti segulkraftur tækisins dregið þá til sín. Slík óhöpp komu fyrir í árdaga þessarar tækni en með viðeigandi eftirliti og réttri umgengni við tækið ætti slfkt ekki að koma fyrir. Sjúklingar sem koma í tækiðverðaað taka af sér alla málmhluti m.a. úrog skartgripi. Slfkirhlutir eru alls ekki varasamir í tækinum heldur geta þeir bjagað myndirnar þannig að þær eru ónothæfar. Málmhlutir í líkamanum eins og tann- fyllingar.gerviliðir og flestar aðgerðarklemmur eru hættulausir og valda litlum sem engum skemmdum á myndum.en skoða þarf hvert ti I vik sérstaklega, t.d. má alls ekki rannsaka sjúklinga með aðgerðarklemmur á intracranial æðagúl nema tryggt sé að klemman sé úr efni sem ekki segulmagnast. Framtíðin Gæði segulsins, staðsetningarsegla og loftneta hefur mikil áhrif á myndgæðin. Þessir þættir, ásamt LÆKNANEMINN 1 1991 44. árg. 31

x

Læknaneminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.