Læknaneminn


Læknaneminn - 01.04.1991, Blaðsíða 37

Læknaneminn - 01.04.1991, Blaðsíða 37
Handhverf lyf ný vandamál, nýir möguleikar Magnús Jóhannsson, Rannsóknastofu í lyfjafræði Handhverf lyf, hvað er það ? Handhverfur er þýðing á erlenda orðinu kíral eða chiral, en það orð þekkjum við líklega best úr samsetningunni kírúrg eða handlæknir. Tvær sameindir eru handhverfur þegar skyldleiki þeirra er sá sami og vinstri og hægri handar, eða m.ö.o. þegar þær eru spegilmyndir hvor af annarri. Slfk efni eru einnig kölluð stereóísómerar eða rúmísómerar. Þesskonar skyldleiki og eiginleikar sameinda eins og sykrunga og amínósýrna hafa verið þekktir í meira en 100 ár, en það er ekki fyrr en á allra síðustu árum að farið er að sinna þessum málum varðandi lyf. Astæður þess eru margar en þar vegur þungt að ekki hafa fyrr en nýlega verið þróaðar aðferðir til að mæla þéttni hvorrar handhverfu fyrir sig. Handhverf efni geta komið fyrir í náttúrunni sem hrein handhverfa (hreinn ísómeri) eða sem blanda tveggja handhverfa, oftast í hlutföllunum 1:1, og er slík blanda kölluð rasemisk blanda. Þau efni sem myndast í lifandi verunt eru nær alltaf hreinar handhverfur, en með tímanum breytast slík efni í rasemiska blöndu sem er eina stöðuga formið. Efni rasemiserast þó mjög mismunandi hratt og í náttúrunni getur slík breyting tekið frá nokkrum mínútum og upp í þúsundir ára. Aðferðir við að tákna handhverfurnar Það sem oftast gerir lyf, eða önnur efnasambönd, handhverf er að þau hafa handhverfa miðju, flöt, öxul, vafning eða annað þess háttar. Handhverf miðja er oftast kolefnisatóm sem hefur fjóra mismunandi hópa tengda við sig, sbr. mynd 1; en einnig getur verið um að ræða önnur atóm eins og P, S eða N. Ekki verður hér farið út í smáatriði varðandi þessa hluti en tekið skal fram að þessir eiginleikar liggja ekki alltaf í augum uppi þegar sameindabygging er skoðuð og þarf oft kunnáttu til að koma auga á þá. Sameind getur hæglega haft fleiri en einn handhverfan eiginleika, oftast handhverfar miðjur, og þá gildir að fjöldi hinna mismunandi handhverfa (rúmísómera) er 2", þar sem n táknar fjölda handhverfra miðja. Algengast er að um eina handhverfa miðju sé að ræða og er þá fjöldi handhverfanna 2 (21 = 2); einnig eru fáein dæmi um að handhverfar miðjur séu 2 og er þá fjöldi handhverfanna 4 (22 = 4). Aðferðir til að tákna hinar mismunandi handhverfur eða blöndur þeirra eru mjög á reiki en byggjast þó allar á forskeytum sem sett eru framan við nafn viðkomandi efnis. Ymsar tillögur um samræmingu hafa komið fram en engin þeirra hefur verið tekin upp almennt og búum við því við það að ýmismismunandi kerfi eru ínotkun. Héráeftir verður stuttlega gerð grein fyrir þeim helsu aðferðum sem notaðar eru. H H Mynd 1. Myndin sýnirbyggingu íbúprófens sem hefureina dæmigerða handhverfa miðju. Þessi miðja er kolefnisatóm, merkt með *, sem hefur 4 mismunandi hópa tengda við sig. Þetta gerir það að verkum að íbúprófen getur komið fyrir sem tvær handhverfur eða ísómerar. LÆKNANEMINN 1 1991 44. árg. 35
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Læknaneminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.