Læknaneminn


Læknaneminn - 01.04.1991, Qupperneq 46

Læknaneminn - 01.04.1991, Qupperneq 46
novo er fyrsta efnið sem sértækt er fyrir þessa framleiðslu efnið mevalonic sýra, sem mynduð er frá acetati, þ.e. acetyl CoA. Síðasta skref í myndun mevalonic sýru er þegar 3-hydroxý-3- metýlglútarýl CoA (HMG CoA) er breytt með aldol þéttingu í fyrrnefnda mevalonic sýru: —SCoA I CH, HO—C—CH3 COOH HMG CoA CHjOH CHj I 2NADPH + 2H*----► HO—C—CH3 + CoASH + 2NADP* I CHj I COOH Mevalonic acid Mynd 3. Síðasta skref í myndun mevalonic sýru. Upphaf þessa ferðalags má rekja til eftirfarandi atburðarásar: I lifrinni eru tengd saman þríglýseríð, kólesteryl estrar ásamt próteinhlutanum apolípópróteini B, og þannig myndast VLDL. Síðan er VLDL seytt út í blóðið. í háræðum losar ensímið lípóprótein lípasi fríar fitusýrur frá tríglýseríðunum í þessum komplex. Þannig myndast svokallað IDL (e. intermediate density lipoprotein). IDL er síðan umbreytt í LDL, en LDL er það form sent líkaminn tekur upp. Það gerist á þann hátt að LDL binst sérstökum LDL viðtökum, sem eru til staðar á nær öllum frumum líkamans. Þessirviðtakareru íhæstum styrk á steramyndandi vefjum, en flestireru þeir í lifur. Eftir bindingu LDL á viðtakana verður svo endocytosis á þeim komplex inn í frumuna, og flutningur á honum inn í lýsósóm. Þar verður hýdrólýsa: Við þetta er apolipoprotein B brotið niður og kólesteryl estrum LDL breytt í frítt kólesteról. Þetta fría form nýta frumurnar eins og áður var sagt í: Þetta hvarf er hvatað af ensíminu HMG CoA afoxara (e. reductase). Eins og síðar segir í þessum pistli, hefur þetta skref öðlast geysilegt mikilvægi með tilkomu nýrrar lyfjameðferðar við hyperkólesterólemiu. Nánar verður ekki farið út í de novo smfð kólesteróls, en áhugasömum er bent á lífefnafræðibókmenntir. Nú já, einmitt. Ein er þá ekki bara tóm vitleysa að vera að burðast með þetta kólesteról yfirleitt ? Alls ekki ! Hlulverk kólesteróls í efnabúskap lfkamans er þríþætt: I fyrsta lagi sem byggingarhluti í innanfrumuhimnum, og frumuhimnunni sjálfri. í öðru lagi sem forstig gallsýra. Raunar skilst kólesteról út í formi gallsýra og þá um mjógirni, en gallsýrumar eru svo endursogaðar aftur í enterohepatísku hringrásina. I þriðja lagi er kólesteról nýtt sem forstig ýmissa sterahormóna (kynhormónar, barksterar, aldósterón). Lifrin gegnir lykilhlutverki í efnaskiptum kólesteróls. Eins og áður er sagt ferðast kólesteról um í plasma bundið í lípópróteinunum VLDL og LDL. 1. Himnur 2. Gallsýrur 3. Sterahormón Magn þessa fría kólesteróls stýrir því hversu mikið kólesteról líkaminn myndar de novo, ásamt því að stýra magni LDL viðtakanna á yfirborði fruma. Þetta þýðir að þegar nægilegt magn af fríu kólesteróli hefur safnast fyrir í frumunum, fækkar LDL viðtökunum á frumuyfirborðinu. Þetta fyrirbæri er á enskri tungu nefnt “down regulation”, og hefur augljóslega mikla þýðingu þegar einstakl ingar hafa að staðaldri of há blóðgildi kólesteróls. Ein gerð lípópróteina er enn ónefnd en það er HI)L (e. high density hpoproteins). HDL hefur það hlutverk að bera kólesteról frá vefjum til lifrar. HDL hefurstundum veriðnefnt“góðakólesterólið”þarsem hagstætt virðist að hafa há gildi þess, en því er öfugt farið með LDL. Af hverju þetta stafar hefur enn ekki verið svarað til fullnustu. En hvernig er það eiginlega, fær niaður ekki hjartakveisu al öllu þessu kólesteróli ? Það er nú það. Svo mikið er víst að of hátt kólesteról erekki beinlínis hollt, og er talið hafamikil 44 LÆKNANEMINN 1 1991 44. árg.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Læknaneminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.