Læknaneminn - 01.04.1991, Síða 49

Læknaneminn - 01.04.1991, Síða 49
Þeir gallar eru á notkun probucols að það virðist ekki aðeins lækka LDLgildi heldureinnig HDLgildi, og einnig margir sem þessi meðferð er reynd á svara henni ekki. HMG CoA afoxara hindrarar eru hins vegar lyf sem gerbylt hafa meðferð við hyperkólesteról- emiu. Þetta eru lyf sem hindra áðurnefnt skref í de novo framleiðslu kólesteróls þegar HMG CoA er breytt í mevalonic sýru fyrir tilstilli ensímsins HMG CoA afoxara. Hindrun kólesterólmyndunarinnar fer fram í lifrinni og við það innleiðist fjölgun LDL- viðtaka á lifrarfrumum og LDL-kólesteról er tekið úr almennu blóðrásinni. Lovastatin, það lyf sem fyrst kom á markað í þessum flokki, lækkar LDL um 35- 45%, einnig í þeim er hafa hyperkólesterólemiu vegna ættgengrar kólesterólhækkunar. Að auki lækka þríglýseríðar um 15-20% og H DL virðist aukast um 5- 10%. Það sem mest er um vert er að nær allir svara meðferð með lovastatin, þótt stundum þurfi að gefa önnur lyf til viðbótar. Þetta lyf eroft notað með öðrum kólesteróllækkandi lyfjum. T.d. er algengt að nota lovastatin ásamt gallsýrubindandi lyfi, og er árangur slíkrar lyfjagjafar nijög góður. Aukaverkanir eru vægar við mikla hækkun á kólesteróli. Hækkun á transamínösum lifrar hefur sést. Sjaldgæf aukaverkun er vöðvaþroti (myositis), sem getur birst seni dreifðir eða staðbundnir vöðvaverkir ásamt hækkun á kreatín kínasa. Sést hefur alvarlegur vöðvaþroti með rákvöðvasundrun (rhabdomyolysis) og jafnvel nýrnabilun hjá sjúklingum sem taka lovastatin með nikótín sýru eða gemfibrozil. Þetta fyrirbrigði er sjaldgæft og öll tilfelli þessa sem tilkynnt hafa verið hafa gengið tilbaka þegar lovastatin gjöf hefur verið hætt. Pravastatin er ann að lyf í þesum flokki sem sett var á sérlyfjaskrá í ár og er frábrugðið lovastatini að því leyti að það er vatnssæknara og sértækara í verkun sinni á lifrarfrumur. Slfkt er æskilegt því hömlun á kólesterólmyndun íöðrum innkirtlumerekki æskileg. Vegna vatnssækinna eiginleika kemst pravastatin ekki yfir heila-blóð-þröskuld gagnstætt lovastatini sem lýst er að hafi valdið styttingu svefns. Ahrif pravastatins til lækkunnar á kólesteróli eru mjög svipuð og hjá lovastatini. Þannig er í raun eina áhyggjuefni manna af þessum lytjum langtímaáhrif þeirra, sökum þess hve stutt þau hafa verið á markaði. Gemfibrozil. Þetta lyf og lyf skyld þessu, sem eru afleiður klófíbrats, verka á mörgum stöðum í Iípóprótein hringrásinni. Klíniskt virðast þau hemja framleiðslu á VLDL, og auka VLDL hreinsun með því að styrkja virkni 1 ípóprótein lípasa. Þau Iækka þríglýseríðagildi í plasma um 20-30% og hækka HDL gildi um 10-20%. Áhrif á LDL gildi eru bæði minni og breytilegri, og þessi lyf eru því ekki fyrstu lyf í þeim tilgangi að lækka LDL gildi. Heimildir mæla með notkun þessara lyfja aðallega hjá þeim sjúklingum sem hafa hyperkólesterólemiu með hyperþríglýseríðemiu, og þá sérstaklega þegar þessir sjúkingar hafa einnig lág HDL gildi. Gemfibrozil þolist venjulega vel. Klófíbrat eykur hins vegar marktækt hættu á myndun gallsteina. B. Þjálfun (fyrri hluti). Þjálfun má skipta í tvo aðalflokka. Þol og kraftþjálfun. Þolþjálfun eða loltháð þjálfun kallast sú tegund þjálfunnar sem byggir á nýtingu orkukerfa sem ganga aðeins í návist súrefnis. Öll hreyfing eða þjálfun er í upphafi loftfirrt þar til líkaminn hefur “stillt” inn brennsluna á það sem mesta og auðbrennanlegasta orku gefur, eða fitu. Það liggur því í hlutarins eðli að þærgreinar semerumest Ioftháðareru þærsembyggja á stöðugri endurtekningu sömu hreyfinga án hvíldar. Þar eru helstar langhlaup, hjólreiðar, skíðaganga, þolfimi o.fl. Hér er tíminn sem í hreyfinguna fer lykillinn en ekki ákefðin (intensity) sem í æfingunni felst. Það er til dænris betra að geta hlaupið lengra á minni hraða til að brenna sem mestri fitu, heldur en að hlaupa styttra á meiri hraða. Brennslan fyrir hverja vegalengd er sú sama í hitaeiningum hversu hratt sem hlaupiðer. Þaðbrennastjafnmargarhitaeiningaráþví að hlaupa 1 km. á 10 km. hraða og vera 6 mín. að því og hlaupa sömu vegalengd á 5 km. hraða og vera 12 mín. að því. Þetta á að sjálfsögðu ekki við þegar verið er að keppa við tíma eða bæta úthald heldur þegar fitubrennsla er aðal málið. Áhrif þolþjálfunar á hjarta og æðakerfið er vel þekkt þar með talið á blóðfitu, LÆKNANEMINN 1 1991 44. árg. 47

x

Læknaneminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.