Læknaneminn - 01.04.1991, Page 56

Læknaneminn - 01.04.1991, Page 56
Svar við sjúkratilfelli á bls.33 Umræða. Allt virðist benda til að einkenni sjdkiings megi rekja til sjúkdóms í lifur. Venjulegt lifrarskann sýnir eyðu í upptöku lifrarinnar iateralt á hægri lifrarlappa. Tölvusneiðmynd staðfesti að um holrúm er að ræða. Þegar hér var komið sögu voru í meginatriðum 4 möguleikar í sjónmáli. í fyrsta lagi gat verið um að ræða sýkingu í lifur eða lifrarabscess. Annar möguleiki var æxli í lifur með drepi eða necrosis í miðjunni. Aðrir möguleikar eru annað hvort æðaflækja eða góðkynja vökvablaðra í lifur og orsök hitans væri að leita annars staðar. Til að greina þar á milli var gert hvítfrumuskann. Þessi rannsókn felst í þvíað tekiðerblóðsýni frásjúklingnum. hvítfrumurúr sýninu einangraðar og þær merktar með geislavirku technetium áður en þeim er sprautað aftur í æð. Venjulega hafa granulocytar skamma viðdvöl í blóðrás (um 1/2 sólarhring) áðuren þeireyðast í milti, lifur og merg. En þegar einhvers staðar er á kreiki graftrarsýking safnast granulocytar þangað (vegna chemotaxis) og sýkingarsvæðið lýsist upp á gammageislamynd. Isótópaskönnin af þessum sjúklingi sýna að framantil og neðantil í hægri lifrarlappa er svæði sem ekki inniheldur eðlilegan lifrarvef (eyða á ifirarskanni) og að granulocytar safnast í þetta svæði. Tölvusneiðmynd sýnir aftur að þarna er um að ræða holrúm. Hér er því um að ræða holrúm með greftri eða abscess. Niðurstaðan er því sú að sjúklingurinn hafi haft lifrarígerð. Bakterían sem ræktaðist úr blóðinu, Streptococcus milleri er einmitt vel þekkt af því að valda ígerðum, ekki síst í kviðarholi. Orsök lifrarabscessa má flokka á eftirfarandi hátt: 1. Gallvegauppruni. Þrengsli, steinar eða æxli í gallvegum, leiðir til gallvegasýkingar. 2. Portal uppruni. Sýking berst með portal bláæð. Þá er oftast staðbundin sýking annars staðar í kviðarholi, t.d. botnlangabólga eða diverticulitis. 3. Bein útbreiðsla, t.d. frá gallblöðrubólgu. 4. Via arteria hepatica frá fjarlægri sýkingu. 5. Bein implantation við lifraráverka. 6. Oviss uppruni (cryptogen). Um fjórðungur lifrarígerða fellur í þennan flokk. Okkar sjúklingur tilheyrir síðasta flokknum. Afdrif. Þegar greiningin þótti endanlega staðfest, var ákveðið að hefja aftur ampicillin meðferð og fékk hann alls 4 vikna meðferð. Varð fljótlega hitalaus og lifrarpróf fóru batnandi. Endurtekin tölvusneiðmynd 8 vikum síðar sýndi að abscessinn hafði að mestu horfið. Diagnosis. Abscessus hepatica cryptogenica (Str. milleri). 54 LÆKNANEMINN 1 1991 44. árg.

x

Læknaneminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.