Læknaneminn - 01.04.1991, Page 75

Læknaneminn - 01.04.1991, Page 75
P&Ó/SlA MÍANSÍN (MIANSERINUM) Nýtt íslenskt sérlyf TÖFLUR; N 06 A C 02 Hver tafla inniheldur Mianserinum INN, klóriö, 10 mg eða 30 mg. EIGINLEIKAR: Fjórhringlaga geödeyfðarlyf, sem hefurekki andkólinerg áhrif. Lyfið blokkar alfa-adrenerg viðtæki I taugaendum og eykur umsetningu noradrenalíns I heila. Míanserin frásogast hratt og næstum algjörlega frá meltingarvegi. Ekki hefur tekist að sýna fram á samband milli blóðþéttni og verkunar. Próteinbinding er um 90%. Helmingunartími er um 10—17 klst. Stöðug blóðþéttni (steady-state) næst eftir u.þ.b. 2 vikna meðferð. Lyfið umbrýst i lifur, en ekki er vitað hvort umbrotsefnin eru virk. Þau skiljast út með þvagi og saur. ÁBENDINGAR; Geðdeyfð, eínkum innlæg (endogen depression). FRÁBENDINGAR: Meðferð með MAO-hemjandi lyfjum minna en 14 dögum fyrír upphaf meðferöar. AUKAVERKANIR: Syfja, sem yfirleitt minnkar við áframhaldandi gjöf lyfsins. Lyfið gelur valdið truflun á blóðsykurgildum sykur- sjúkra. Lyfið virðist hafa minní áhrif á hjarta en önnur sambærileg lyf. Rétt er að gæta fyllstu varúðar við gjöf lyfsins hjá sjúklingum með hjartsláttaróreglu. Blóðþrýstingslækkun hefur veríð lýst, enn fremur svima og yfirliði, e.t.v. vegna blóðþrýstingslækkunar. Neutropenia og agranulocytosis geta komið fyrir. Krömpum hefur verið lýst og verður því að gæta varúðar við gjöf lyfsins hjá sjúkl- ingum með flogaveiki. MILLIVERKANIR: Varast ber að neyta áfengis samtímis töku lyfsins. VARÚÐ: Vara ber sjúklinga við því að aka vélknúnum ökutækjum eftir gjöf lyfsins. EITURVERKANIR: Mianserin hefur ekki eins alvarlegar eiturverkanir og þrihringlaga geðdeyfðarlyf. EINKENNI: Syfja, meðvit- undarleysi, hækkun eða lækkun blóðþrýstings, of hraður eða of hægur hjartsláttur, vítt eða þröngt Ijósop, uppköst, svimi og óregluhreyfingar (ataxia) hafa komið fyrir. Krampar og lifshættulegar hjartsláttartruflanir virðast ekki hafa verið eins mikið vanda- mál og eftir amitryptilin-eitranir MEÐFERÐ: Magatæming og magaskolun. Lyfjakol. Symptómatisk meðferð, SKAMMTASTÆRÐIR HANDA FULLORÐNUM: Venjulegur byrjunarskammtur er 30 mg á dag, sem aukinn er smám saman i 40—90 mg á dag. Lyfíð má gefa I einum skammti að kvöldi, eða skipta I tvo skammta, kvölds og morgna. Aldraðir þurfa oft minni skammta. SKAMMTASTÆRÐIR HANDA BÖRNUM: Lyfið er ekki ællað börnum. PAKKNINGAR: Töflur 10 mg: 100 stk. Töflur 30 mg: 50 stk.: 100 stk. LYFJAVERSLUN RÍKISINS BORGARTÚN 6, 105 REYKJAVfK, 623900 ■■■■■■■■■■■■■

x

Læknaneminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.