Læknaneminn - 01.04.1998, Síða 2
Svo hjartanlega samtaka
Tvö lyf sem efla áhrif hvors annars sett saman í eina töflu:
Lágmarks skammtar / Hámarks verkun
Lágmarks kostnaður / Hámarks fylgni
Dar'azíð
enalapríl hýdróklórtíazíð
I niðurstöðum íslenskrar rannsóknar* segir:
“í stuttu máli virðist lítið gagn í því að auka skammta Enalapríls og Hýdróklórtíazíðs í vægum
til meðalsvæsnum háþrýstingi umfram 10 mg + 12,5 mg á dag."
"Þessi niðurstaða styrkist enn frekar vegna vaxandi hjáverkana og kostnaðar við gjðf stærri
skammta."
REYKJAVlKURVEGI 78
220 HAFNARFJÖRÐUR
Úr Sérlyfjaskrá: TÖFLUR; C 02 L M 02. Hver tafla inniheldur: Enalaprilum INN, maleat, 10 mg, Hydrochlorothiazidum INN 12,5 mg. Eiginleikar: Blanda enalaprils og hýdróklórtíazíðs og hafa
þau eflandi áhrif hvort á annað. Enalapríl hamlar hvata, er breytir angiotensin I í angiotensin II, sem er kröftugasta æðasamdráttarefni líkamans. Enalapríl er forlyf. U.þ.b. 60% frásogast,
umbrotnar í lifur í enalaprílat, sem er hið virka efni. Áhrif enelapríls ná hámarki eftir 4-6 klst. og geta haldist í 24 klst. Helmingunartími er um 11 klst., en er mun lengri, ef nýrnastarfsemi er
skert. LyfiÖ útskilst í þvagi. Hýdróklórtíazíð blokkar enduruppsog natríumjóna í nýrnagöngum og eykur nýrnaútskilnaö natrlums, klóríðs, magnesíums, bíkarbónats og vatns. Minnkar
nýrnaútskilnað kalsíums. Lengd verkunar er 6-12 klst. Ábendingar: Hár blóðþrýstingur. Frábendingar: Ofnæmi fyrir öðru hvoru lyfinu. Lágt kalíum í sermi. Lifrar- eða nýrnabilun.
Þvagsýrugigt. Meðganga og brjóstagjöf: Má alls ekki nota lyfið á meðgöngu. ACE hamlar geta valdið fósturskemmdum. Lyfið skilst út í brjóstamjólk, en áhrif á barnið eru ólíkleg, þegar lyfið
er notað I venjulegum skömmtum. Varúð: Lyfið getur valdið of mikilli blóðþrýstingslækkun hjá sjúklingum sem misst hafa salt og vökva úr líkamanum. Lyfið getur hækkað blóðsykur hjá
sykursjúkum. Aukaverkanir: Algengar (>1%): Ofnæmi, hósti, svimi, höfuðverkur, sinadráttur, vöðvastirðleiki og þreyta, getuleysi. Hækkun þvagsýru og blóðsykurs, lækkun kalíums,
magnesíums og klóríðs í sermi. Sjaldgæfar (0,1-1%): Þreyta, slen, lágur blóðþrýstingur og yfirlið. Ógleði, niðurgangur. Húðútþot, ofnæmisbjúgur. Vöðvakrampar. Brengluð nýrnastarfsemi.
Kreatínín, urea, lifrarenzým og bilirúbln geta hækkað, en komast í fyrra horf, ef lyfjagjöf er hætt. Skammtastærðir handa fullorðnum: 1 tafla á dag. Skammtastærðir handa börnum: Lyfið
er ekki ætlað börnum. Pakkningar: 30 stk. (þynnupakkaö) 2097 kr. 100 stk. (þynnupakkað) 6226 kr. Afgreiöslutilhögun: R. Greiðsluþátttaka: B. Júnl 1995
'Þórður Harðarson, Árni Kristinsson, Jóhann Ragnarsson: Hver er ákjósanleg samsetning enalapríls og hýdróklórtíazíðs við háþrýstingi? Læknablaðið 1994; 80: 57-62.