Læknaneminn - 01.04.1998, Blaðsíða 45
Hægðatregöa meðal aldraðra.
moideum), vinstri ristli og jafnvel upp í þverristil. Þá er
greinilega mikil hægðatregða til staðar. Þensla verður á
kvið við uppsöfnun hægða í ristlinum og er hún oft
verkjalaus meðal háaldraðra og vitrænt skertra.
RANNSÓKNIR
Yfirlitsröntgenmyndatöku af kviðarholi þarf til að
greina hægðatregðu þegar engar hægðir þreifast í enda-
þarminum. Hægðastíflan getur þá legið ofar í ristlin-
um. Risaristill (megacolon) er oftast auðgreindur á
yfirlitsmynd.
Röntgen ristilmyndataka með innhellingu eða ristil-
speglun er gerð ef hægðabreyting er nýtilkominn, oft-
ast er þá miðað við síðustu 6-12 mánuði. Einnig er gerð
ristilmyndataka ef hægðatregðumeðferð skilar ekki ár-
angri, því þá vaknar grunur um þrengingu eða æxli í
ristlinum. Ristilpokar (diverticulosis) sjást oft við rönt-
gen myndatöku ásamt kröftugri ristilkarlamyndun
(haustrering) vegna ofvaxtar (hypertrophia) í vöðvalög-
um, og er það vísbending um langstæða hægðatregðu.
Risaristill (megacolon) greinist einnig með slíkri
myndatöku.
Endaþarms- eða ristilspeglun greina blóðþurrðar-
sjúkdóm í ristli (ischemic colon). Verkir samfara
hægðalosun vekja grun um slíkan sjúkdóm. Innri
gyllinæð greinist einnig með speglun.
Blóðrannsóknir hjálpa við orsakagreiningu á hægða-
tregðu. Hæmoglobin og natríum hjálpa við greiningu á
líkamsþurrki (dehydration) og kalíum, kalsíum, kreat-
inin, glucosi og TSH er hluti uppvinnslu á hægða-
tregðu (sjá orsakir).
MEÐFERÐ
Onnur en lyfjameðferð:
Að aulca trefjainntöku er oftast fyrsta meðferð
hægðatregðu, sérstaklega meðal yngri öldunganna.
Gróft brauð, All-Bran og sveskjur innihalda mikið af
trefjum og á öldrunarlækningadeildum er mikið not-
að af svo kölluðu trefjamauki.
Gæta þarf að því að vökvainntaka sé ríkuleg. Oft er
hún mæld og skráð (vökvaskema) en þannig er vökva
markvissara haldið að hinum aldraða. Reynt er að hafa
vökvainntöku ekki minni en 1500 ml á dag. Líkams-
Hægðalosuii er holl
Til marks um hvað hægðavenjur geta skipt
aldraða mildu máh, þá var hinn kunni hehn-
spekingur og sta:rðfi"eðingur Btu'lrand
Russel sannfærður mu, þó hann léti sér það í
léttu rúmi liggja, að langlífi sínu væri því að
þakka að hann losaði hægðir tvisvar á dag
(14).
14) Russcl B. In: Autobiography, London:
Alen & Unwin, 1970.
hreyfmgu er reynt að auka, en það er oft vandkvæðum
bundið vegna líkamlegrar fötlunar hins aidraða. Með
reglulegum klósettferðum er reynt að venja ristillinn á
að tæma sig reglulega, og er þá reynt að líkja eftir þjálf-
un þvagblöðrunar.
Reynt er að minnka lyfjanotkun, eða velja lyf sem
eldci valda hægðatregðu. Líkamlegir sjúkdómar sem
hugsanlega valda hægðatregðu eru meðhöndlaðir eftir
því sem við á.
Lyf: I sérlyfjaskránni eru hægðalyfin flokkuð skv. ATC
flokkun eftir klínískri verkun lyfjanna.
A 06 AC Rúmmálsaukandi lyf. Þessi lyf innihalda
trefjar sem binda vatn í ristlinum og auka þannig rúm-
mál hægðanna og mýkja þær. Þau eru notuð þegar
hægðirnar eru harðar og neysla trefja er ónóg. Þau eru
ekki vinsæl meðal aldraðra helst vegna þess að ríkuleg
vökvainntaka er mikilvæg til þess að þau verki mýkj-
andi. Þessi Iyf valda aldrei niðurgangi. Það lyf sem
nefnd eru í þessum flolcki eru Vi-Siblins en auk þess
eru vinsæl Husk og Colon Care.
A 06 AD Hœgðalyf með osmótíska verkun. Þessi lyf
draga vökva inn í ristilinn og mýkja þannig hægðirnar.
Þau eru því notuð þegar hægðirnar eru harðar og ofan-
greind meðferð skilar eldd árangri. Aðal hjáverkun
þeirra er gasmyndun og uppþemba, en ofnotkun þeirra
veldur niðurgangi. Nægir þá oft að minnka skammtinn
sem gefin er. Sorbitol mixtúra er iðnaðarvara sem not-
uð er í sælgætisgerð og því mun ódýrari en Laktúlosa
sem nefnd er í sérlyfjaskránni, og gerir sama gagn. Sali-
lax og Go Lightly eru lyf sem notuð eru með inntöku
til úthreinsunar á hægðum í ristli fýrir ristilmyndatöku
og speglun.
A 06AA Mýkjandi lyf. Paraffínolía til inntöku er not-
LÆKNANEMINN • 1. tbl. 1998, 51. árg.
43