Læknaneminn - 01.04.1998, Page 8
Þorvarður R. Hálfdanarson
/
Mynd 2. Járnskortsblóðleysi með microcytosis,
hypochromasiu, anisocytosis, poikilocytosis
og „blýantafrumu” en hán er stundum talin
dæmigerð fyrir þessa tegund blóðleysis.
um er að ræða bæði skort á járni og B12/fólati
samtímis. Almennt er RDW næmara fyrir micro-
cytiskum en macrocytiskum breytingum á RBK og til
lítils gagns ef ekki er um að ræða blóðleysi.
Blóðstrok. Hægt er að biðja um smásjárskoðun á
blóðstroki auk þess að fá venjubundinn blóðhag en þar
eð sú rannsókn er nokkuð tímafrek er ekki mælt með
henni sem rútínurannsókn enda ekki nærri alltaf þörf á
henni. I blóðstroki eru allar frumulínur metnar, ein-
stakar frumur skoðaðar og framkvæmd deilitalning á
HBK (diff) en nánar verður um það rætt síðar. Mynd
1 sýnir eðlilegt blóðstrok með yfirgnæfandi meirihluta
RBK , þremur HBK og allnokkrum blóðflögum.
Hér að neðan verður tæpt á því helsta sem fyrir
augun getur borið í rauðu blóðmyndinni. Það helsta
sem er athugað er stærð, litur og lögun RBK. Ef RBK
*
Mynd 3. Blóðstrok frá sjúklingi með mergæxli
(myeloma multiplex). Rouleaux myndun sést
greinilega ásamt einni plasmafrumu.
eru almennt lítil þá er talað um microcytosis en það
endurspeglast í lækkun á MCV og lýtur svipuðum lög-
málum en það skal ítrekað að MCV er meðaltal en lýsir
alls ekki einstökum frumum. Að sama skapi er talað
um macrocytosis ef stór RBK finnast. Ef RBK eru bæði
stór og sporöskjulaga (macro-ovalocytar) þá bendir það
til megaloblastisks blóðleysis vegna skorts á B12 og/eða
fólati. Anisocytosis er þegar RBK eru misstór og gefur
það svipaðar upplýsingar og hækkun á RDW.
Poikilocytosis þýðir mismunandi lögun RBK og sést
m.a. í blóðrofs- og megaloblastisku blóðleysi ásamt
myelodysplasiu. Ef um er að ræða óvenju föl blóðkorn
þá kallast það hypochromasia og það er dæmigert fyrir
járnskortsblóðleysi ásamt microcytosis (hypochromic
microcytic anemia) en járn er að sjálfsögðu nauðsynlegt
fyrir myndun hemóglóbíns og þar af leiðandi fyrir
eðlilegan þroska rauðra blóðkorna. Mynd 2 sýnir
6
LÆKNANEMINN • 1. tbl. 1998, 51. árg.