Læknaneminn - 01.04.1998, Page 54
Kjartan Orvar
• Brjóstsviði, nábítur • Sár kynging
• Þrálátur hósti • Hæsi
• Asthmi • Aspiration lungnabólga
• Brjósverkur
Tafla III. Einkenni við bakflæðissjákdóm.
sjúkdóma og síðan eðlileg speglun eða röntgenmynda-
taka til að hægt sé að greina þessa sjúkdóma. Vegna
þessa telur undirritaður mikilvægt að læknir sé við-
staddur þegar þrýstingsmæling er gerð þar sem mjög
margir þættir geta haft áhrif á niðurstöðu mælingarinn-
ar t.d. geta óeðlilegir vöðvasamdrættir komið fram ef
sjúklingur er mjög órólegur við rannsóknina sem með-
al annars gerir þessar rannsóknaraðferðir erfiðar í börn-
um.
24 TÍMA SÝRUSTIGSMÆLING
Það er eðlilegt að eitthvert bakflæði sé úr maga upp í
vélinda sérstaklega eftir stórar máltíðir. Með sýrustigsmæl-
ingu er athugað hvort óeðlilegt bakflæði er úr maganum
upp í vélinda sem getur þá gefið einkenni, venjulega
brjóstsviða en ýmis önnur einkenni eru tengd bakflæði,
sjá nánar í töflu III. Bakflæði er sjaldgæf orsök efri loft-
vegaeinkenna og því er mikilvægt að aðrar orsakir séu
fýrst útilokaðar áður en vélindað er rannsakað. A sömu
forsendum er mikilvægt að útiloka hjartasjúkdóma sem
orsök fýrir brjóstverk áður en reynt er að tengja orsök
verksins við vélindasjúkdóm.
Við sýrustigsmælinguna er grannur þráður lagður í
gegnum nefholið niður í vélinda og er reynt að staðsetja
enda þráðsins nákvæmlega 5 cm. ofan við neðri hring-
vöðva. Til þess að gera þetta nákvæmlega í fullorðnum
einstaklingi þarf að gera þrýstingsmælingu áður til að
staðsetja nákvæmlega efri mörk hringvöðvans. Sýru-
stigsneminn er síðan látinn liggja í einn sólarhring og
einstaklingurinn sem er skoðaður er beðinn um að ná
inn hefðbundnum degi með því að borða, vinna og
sofa líkt og hann venjulega gerir. Oll einkenni sem
tengst gætu bakflæði merkir hann inn á tölvu þannig að
hægt sé að tengja saman t.d. bakflæði eftir máltíð og
einkenni sjúklings með því að skoða merkingar á tölvu-
útskrifdnni.
A mynd 5 sést eðlilegt sýrurit. Eins og sést á þessari
Awoka and
pra idial_ fta
re Ate breikfast f ^
y ^
H ýjlT —l
9:00 am 8:00 am 7:00 am
Mynd 5■ Eðlilegt sýrubakflæði í heilbrigðum
einkennalausum einstaklingi. Það sést skamm-
vinnt bakflæði eftir máltíðir en áberandi eðlilegt
sýrustig yfir nóttina.
mynd þá er eðlilegt að eitthvert sýrubalcflæði sé til stað-
ar en ef heildartími þar sem sýrustig er lægra en pH 4
fer upp fýrir 4-5% þá er talað um óeðlilegt sýrubak-
flæði. Óeðlilegt sýrubakflæði (mynd 6a) framkallar t.d.
brjóstsviða eða nábít eftir máltíð. Bakflæði tengt út-
afliggjandi stöðu (mynd 6a) leiðir oftar til erfiðs sjúk-
dóms með myndum á þrengslum í vélinda af völdum
bólgunnar eða Barrett's slímhúðar.
I vissum tilvikum getur heildarsýrubakflæðistíminn
verið eðlilegur en augljós tengsl á milli sýrubakflæðis og
einkenna sem sjúklingur hefur merkt inn á tölvuna og
er þá talað um einkennavísi (symptom index). Ef sam-
band milli einkenna og sýrubaklæðis er meira en 50%
er talað um jákvæð tengsl. Slíkar mælingar eru afskap-
lega mikilvægar í tilvikum þar sem verið er að rannsaka
efri loftvegaeinkenni eins og asthmaköst og hósta eða
brjóstsverki þar sem búið er að útiloka hjartasjúkdóm
(mynd 7).
I töflu IV má sjá tillögu að uppvinnslu á kyngingar-
erfiðleikum og í töflu V er tillaga um greiningu brjósts-
verks þar sem hjartasjúkdómur hefur verið útilokaður.
LÍFEÐLISFRÆÐIRANNSÓKNIR Á MAGA
Truflun í starfsemi maga er erfitt að greina frá trufl-
unum í starfsemi efri hluta smáþarma sérstaklega
skeifugörn. Þetta orsakast af því að lífeðlisfræði maga-
tæmingar tengist mjög náið lífeðlisfræði hreyfinga í
skeifugörn og efsta hluta smáþarma, ,jejunum’. Þannig
geta einkenni um meltingarónot (dyspepsia) verið
52
LÆKNANEMINN • l.tbl. 1998,51. árg.