Bændablaðið - 24.08.2023, Blaðsíða 1
15. tölublað 2023 ▯ Fimmtudagur 24. ágúst ▯ Blað nr. 639 ▯ 29. árg. ▯ Upplag 33.000 ▯ Vefur: bbl.is
Heimsmeistaramót íslenska hestsins fór fram í Hollandi í byrjun mánaðarins. Þar náði íslenska landsliðið sögulegum árangri og vann til 16 gullverðlauna
og 5 silfurverðlauna. Hér fara þeir Elvar Þormarsson á Fjalladís frá Fornusöndum og Daníel Gunnarsson á Einingu frá Einhamri II sigursprettinn í 250 m
skeiði þar sem Elvar á Fjalladís varð heimsmeistari í greininni og Daníel á Einingu lenti í öðru sæti. – Sjá nánar á bls. 42–43 Mynd / Krijn Buijtelaar
Fyrirhugaðri hækkun gjaldskrár
Matvælastofnunar (MAST) hefur
verið harðlega mótmælt. Ekki
er ljóst hvort hækkunin nái til
minnstu heimasláturhúsanna.
Forsvarsmenn sláturhússins í
Seglbúðum hafa nú lýst því yfir
að ekki verði slátrað þar í haust
og öllu lokað, ekki síst vegna
boðara breytinga á gjaldskrá við
þjónustu dýralækna í sláturhúsum.
Muni sú hækkun margfalda þann
kostnaðarþátt.
Matvælaráðuneytið kynnti í mars
sl. drög að nýrri og endurskoðaðri
gjaldskrá Matvælastofnunar. Voru
drögin í samráðsgátt stjórnvalda
fram í aprílbyrjun en ráðuneytið
var ekki búið að tilkynna hver
lokalending málsins yrði þegar
Bændablaðið fór í prentun.
Barátta frá upphafi
Þórunn Júlíusdóttir og Erlendur
Björnsson, eigendur að Slátur
húsinu í Seglbúðum, settu inn
stöðuuppfærslu á Facebook þar
sem þau tilkynna að ekkert verði úr
slátrun hjá þeim í haust. Vinnslunni
og frystinum verður jafnframt
lokað. Ástæðurnar fyrir þessu eru
meðal annars breytingar á gjaldskrá
MAST fyrir þjónustu dýralækna í
sláturhúsum, en áætla má að sá
kostnaðarliður muni hækka um 800
prósent.
Við þetta bætist að frá síðustu
áramótum hefur verið ólöglegt að
urða lífrænan úrgang og var fyrirséð
að sláturhúsið myndi þurfa að standa
straum af flutningi um meðhöndlun
sláturúrgangs.
Í samtali við Bændablaðið segir
Þórunn að litlu sé við þessa stöðu
uppfærslu að bæta. Hún segir rekstur
lítils sláturhúss sem þessa hafa verið
barátta frá upphafi og með þessum
breytingum hafi komið endanlegt
rothögg. Mjög mikið þurfi að
breytast til þess að þau taki upp
rekstur sláturhússins á ný. Frá árinu
2014 hafi þau sinnt sauðfjárslátrun
og verkun fyrir um 20 aðila í Austur
og VesturSkaftafellssýslum. Um
1.000 lömbum hefur verið slátrað
haust hvert.
Oddný Anna Björnsdóttir, fram
kvæmdastjóri Samtaka smáfram
leiðenda matvæla og Beint frá býli,
segir þessa verðhækkun MAST
vera gríðarlegt högg. Hækkunin
muni gera bændum ókleift að
slátra í litlum sláturhúsum sem
vinna samkvæmt reglugerð um lítil
matvælafyrirtæki og hefðbundin
matvæli. Það eru sláturhús sem
slátra að hámarki 100 lömbum á
dag. Rekstrarkostnaður þeirra sé
þegar hár og þau ráði ekki við þessi
auknu útgjöld.
Gæti ógnað heimavinnslu
Stærri sláturhús muni líka finna
fyrir hækkunum og hún segir
félagsmenn sína óttast að það muni
hafa áhrif á heimtökugjald og þar
með kippa grundvellinum undan
heimavinnslu landbúnaðarafurða.
Oddný hefur verið í samtali
við matvælaráðuneytið og segir
sérfræðing þar fullyrða að
verðhækkun MAST muni ekki ná
til þeirra sem starfa samkvæmt
reglugerð um lítil sauðfjár og
geitasláturhús, þ.e.a.s. heima
slátrun með færri en 30 lömb á
dag.Það sé vegna þess að í þeirri
reglugerð standi að kostnaður
við dýralæknaeftirlit greiðist úr
ríkissjóði.
Hún segist þó bíða eftir svari frá
matvælaráðherra um hvort tryggt sé
að þessari grein reglugerðarinnar
verði ekki breytt ef fleiri bændur
fara í heimaslátrun, í ljósi þess
að stjórnvöld hafa gefið út að
stuðningur við landbúnað muni
ekki hækka.
Oddný spyr hvort ekki séu
tækifæri til að hagræða, til dæmis
með nútímatækni, til að koma í veg
fyrir þessa gífurlegu hækkun. Þar
bendir hún á að meðal annars væri
mögulegt að hafa eftirlit í gegnum
myndavélabúnað, sérstaklega í
minni sláturhúsum.
Hún segir gjaldskrárhækkunina
vera í miklu ósamræmi við
nýsamþykkta matvælastefnu og
landbúnaðarstefnu. Enn fremur
gangi þetta gegn því sem kemur
fram í ríkisstjórnarsáttmálanum.
Oddný segir Samtök smáfram
leiðenda matvæla og Beint frá
býli skora á matvælaráðherra að
endurskoða þessa ákvörðun, enda
sé hún á ábyrgð ráðuneytisins, ekki
undirstofnunar þess.
Herferð gegn landbúnaði
„Ljóst er að hér er um grundvallar
breytingu á innheimtu eftirlitsgjalda
að ræða sem felur í sér gríðarlegan
kostnað fyrir atvinnugreinina,“ segir
í umsögn Bændasamtaka Íslands
(BÍ) um gjaldskrárdrögin. „Við hjá
samtökunum veltum því hreinlega
fyrir okkur hvenær herferðin undir
yfirskriftinni „Landbúnaðurinn
borgar“ linni, því þetta þema er
farið að gera atvinnugreininni
gríðarlega erfitt fyrir, ofan á
viðbótarálögur sem samþykktar
voru á nýliðnu þingi,“ segir
Vigdís Häsler, framkvæmdastjóri
BÍ. Samtökin hafa farið fram á
við matvælaráðuneytið að málið
verði dregið til baka og sögðu
í umsögn sinni að drögin að
gjaldskránni myndu gera gegnsæi
og fyrirsjáanleika í gjaldtöku minni
en verið hefði.
Haustið 2020 féll þáverandi
landbúnaðarráðherra frá öllum
fyrirhuguðum gjaldskrárhækk
unum Matvælastofnunar vegna
áhrifa Covidfaraldursins á íslenska
matvælaframleiðendur. /ÁL - SÁ
Matvælastofnun:
Grundvöllur lítilla sláturhúsa brostinn
Örplast finnst í allri fæðukeðjunni
og safnast fyrir í vefjum lífvera.
Þótt reynt sé að stemma stigu við
plastframleiðslu og efla endurvinnslu
eykst framleiðsla plasts hröðum
skrefum í veröldinni og aðeins lítið
brot úrgangsplasts er endurunnið.
Plastmengunar verður nú alls staðar
vart á jörðinni. Við borðum ofursmáar
plastagnir og öndum þeim að okkur.
„Menn verða fyrir langvarandi
útsetningu á nanóplasti í lágum
styrk, nánast allt lífið,“ segir Sophie
Jensen, verkefnastjóri á sviði lífefna
hjá MATÍS. Ekki sé raunverulega
vitað hversu skaðlegt örplast sé heilsu
manna. „Við vitum að plast er að
valda dýralífi óbætanlegum skaða,
en vísindamenn eru aðeins byrjaðir að
skoða hvað það gerir heilsu manna.
Nanóplast er erfitt að greina miðað
við örplast og rannsóknir hafa ekki
kannað að fullu skaðleg heilsufarsáhrif
nanóplasts. Niðurstöður benda til þess
að nanóplast geti farið yfir verndandi
lífhimnur í líkamanum og þannig
komist í blóðrásina, fylgju, safnast
fyrir í heila og hugsanlega haft
skaðleg áhrif á fólk,“ segir hún.
/sá
– Sjá nánar á bls. 20–21
Plastmengun
alls staðar
14
Nýr Íslandsmeistari í hrútaþukli Nautatólg í húðvörur
30
Kartöflubú yfirleitt
fjölskyldubú
38 36
Réttarlistinn 2023