Bændablaðið - 24.08.2023, Blaðsíða 21
21Bændablaðið | Fimmtudagur 24. ágúst 2023
En niðurstöður benda til þess að
nanóplast geti farið yfir verndandi
lífhimnur í líkamanum og þannig
komist í blóðrásina, fylgju, safnast
fyrir í heila og hugsanlega haft
skaðleg áhrif á fólk,“ segir hún.
Alvise Vianello, dósent í efnafræði
við Álaborgarháskóla í Danmörku,
komst fyrir nokkrum árum að því
að allir plastmunirnir í vistarverum
okkar fylli lungu okkar smám saman
af örsmáum plastögnum. Með
öndunarvélmenni sýndi hann fram
á að það andaði að sér 11,3 bútum
af örplasti á klukkustund. Örplastið
er alls staðar, í matnum okkar,
andrúmsloftinu og vatninu.
Plastframleiðsla hraðvaxandi
Árið 2019 var plastframleiðsla
á heimsvísu um 460 milljónir
tonna, samkvæmt OECD Global
Plastics Outlook. Er því spáð að
miðað við núverandi þróun verði
heimsframleiðsla plasts komin í
1.100 milljónir tonna árið 2050.
Um 85% af öllu plasti endar á
urðunarstöðum eða sem óreglulegur
úrgangur. Af þeim sjö milljörðum
tonna af plastúrgangi sem myndast
hefur á heimsvísu hingað til hafa
innan við 10% verið endurunnin.
Sophie segir milljónir tonna
plastúrgangs tapast í umhverfinu.
Jafnframt sé plastúrgangur fluttur
þúsundir kílómetra til áfangastaða
þar sem hann er að mestu brenndur
eða urðaður.
Ár og vötn flytja plastúrgang frá
landi til sjávar og eiga því stóran
þátt í mengun hafsins. „Talið er að
um 1.000 ár séu valdar að næstum
80% af alþjóðlegri árlegri plastlosun
áa í hafið, sem er á bilinu 0,8 til 2,7
milljónir tonna á ári, með litlum
þéttbýlisám meðal þeirra mest
mengandi,“ segir hún.
Ríflega tveir milljarðar manna
búa í samfélögum þar sem engin
skipulögð úrgangslosun er við lýði.
Margt af þessu fólki býr við ár og
strandlengjur og losar sig við rusl og
úrgang þangað skv. Umhverfisstofnun
Sameinuðu þjóðanna. Þegar hinar
ríkari þjóðir selja plastsorp sitt til
millitekjulanda endar sumt af því í
sjó þar sem viðtakalöndin geta heldur
ekki meðhöndlað allan sinn úrgang á
umhverfisvænan máta.
Um það hversu mikið plast fari
árlega í sjó á heimsvísu, segir Sophie
að þrátt fyrir núverandi viðleitni sé
áætlað að 75 til 199 milljónir tonna
af plasti finnist nú í sjónum.
„Ef við breytum því ekki hvernig
við framleiðum, notum og förgum
plasti, gæti magn plastúrgangs
sem berst í vatnavistkerfi næstum
þrefaldast, úr 9-14 milljónum tonna
á ári árið 2016 í áætlaðar 23-37
milljónir tonna á ári árið 2040.“
Talið er að allt að 6% alls plast-
úrgangs á jörðinni endi í hafi.
Plastrusl í sjónum kemur að stórum
hluta frá landúrgangi, eða um 80%.
Eftirstöðvarnar, 20% úrgangsins,
koma frá uppsprettum í hafinu,
aðallega frá veiðarfærum og trollum.
Veiðarfæri eru talin nema um 18% af
öllum sjávarúrgangi.
Um það bil 36% af öllu plasti
sem er framleitt er notað í umbúðir,
þar með talið einnota plastvörur
fyrir matvæla- og drykkjarílát.
„Sígarettustubbar – þar sem síurnar
innihalda örsmáar plasttrefjar – er
algengasta tegund plastúrgangs sem
finnst í umhverfinu. Matarumbúðir,
plastflöskur, plastflöskulok, plast-
pokar, plaströr og -skeiðar eru
næstalgengustu hlutirnir. Mörg okkar
nota þessar vörur á hverjum degi,
án þess að hugsa um hvar þær gætu
endað,“ segir Sophie.
Meirihluti umbúðaplasts endar
með blönduðum úrgangi
Nokkuð ítarlegar upplýsingar er að
hafa um ráðstöfun plastumbúða á
Íslandi og byggja þær á upplýsingum
frá Úrvinnslusjóði, að sögn Birgittu
Stefánsdóttur, sérfræðings á sviði
loftslags og hringrásarhagkerfis
hjá Umhverfisstofnun. Litlar
upplýsingar sé þó að hafa um plast
annað en umbúðir. Árið 2021
voru 16.595 tonn umbúðaplasts
sett á markað, þar af 797 tonn
endurunnin hérlendis og 3.791 tonn
erlendis. Af því sem endurunnið
var erlendis voru 922 tonn brennd
með orkuvinnslu. „Gera má ráð
fyrir að afgangurinn, 11.085 tonn,
fari í urðun eða brennslu með
blönduðum úrgangi, það er að segja;
séu plastumbúðir sem ekki voru
flokkaðar frá,“ segir Birgitta.
„Varðandi plastúrgang annan
en umbúðir höfum við ekki
upplýsingar um hversu mikið
var sett á markað af plastvörum
öðrum en umbúðum. Miðað við
úrgangstölfræðina fóru um 4.174
tonn af plastúrgangi öðrum en
umbúðum í endurvinnslu, 207 tonn
voru urðuð hérlendis og 31 tonn var
brennt án orkunýtingar.“
Hún segir að ætla megi að um
40% af öllu plasti sem sett er á
markað í Evrópu séu umbúðir.
Um 20% af plasti er notað innan
byggingargeirans og tæplega 10%
í bílaiðnaði.
„Við höfum ekki upplýsingar um
það hversu mikið plast fer ekki í
ásættanlega ráðstöfun, sem sagt
hvorki í endurnýtingu né förgun,“
segir Birgitta jafnframt.
Aðgerða er þörf,
stórra sem smárra
„Við getum afþakkað einnota
plastvörur, eins og til dæmis
plaströr og plastflöskur, og
tekið með okkur margnota poka,
það eru frábær fyrstu skref,“ segir
Sophie Jensen.
„Einstaklingar og heimili geta
líka valið að sneiða hjá vörum
pökkuðum í plast og velja föt og
vörur framleiddar úr náttúrulegum
efnum.“ Það sem verði hins vegar
að gerast sé að stjórnvöld og
fyrirtæki þurfi undanbragðalaust
að marka heildstæða stefnu.
„Stjórnvöld um allan heim
verða að skrifa undir alþjóðlegan,
lagalega bindandi sáttmála, til að
ákvarða hvernig við notum plast
og förgum því. Framleiðendur
gegna líka mikilvægu hlutverki
hér – til dæmis með því
að breyta framleiðslu- og
vöruhönnunarlíkönum sínum
þannig að hægt sé að endurnýta
plast frekar en farga því strax,“
segir Sophie að lokum.
Með réttum aðgerðum væri hægt
að draga verulega úr plastúrgangi
á næstu áratugum en mælinga er
þörf til að sýna hvort árangur sé
að nást. Betri úrgangsstjórnun,
bæði staðbundið og á heimsvísu,
er bráðnauðsynleg.
Fróðlegt er að skoða gögn um
plastmengun á veraldarvísu á
vefnum ourworldindata.org, svo
dæmi sé tekið.
Fríform ehf.
Askalind 3,
201 Kópavogur.
562–1500
Friform.is.
Sumaropnun:
Mán. – Föst. 10–17
Laugardaga LOKAÐ
Hjarta heimilisins
Við hönnum innréttingar að þínum þörfum
2000 — 2022
Birgitta Stefánsdóttir, sérfræðingur á sviði loftslags og hringrásarhagkerfis
hjá Umhverfisstofnun, t.v. og Sophie Jensen, verkefnastjóri á sviði lífefna
hjá MATÍS, t.h.
„Eins og staðan er núna er plastframleiðsla að aukast á hverju ári og með aukinni plastmengun verður aukning
á plasti í fæðukeðjunni,“ segir Sophie Jensen hjá Matís. Mynd DM Forero
Með réttum aðgerðum væri hægt að draga verulega úr plastúrgangi á
næstu áratugum en mælinga er þörf til að sýna hvort árangur sé að nást.