Bændablaðið - 24.08.2023, Blaðsíða 55
55Bændablaðið | Fimmtudagur 24. ágúst 2023
Nánari upplýsingar
arborgir@arborgir.is, 482 4800
Eignarlóðir til sölu!
Mosabraut 9 - 6.230 fm
Mosabraut 11 - 5.710 fm
Samliggjandi lóðir. Fallegt
útsýni til Heklu, stutt í náttúru-
perlur og á golfvöllin á Hellu.
Mosabraut 9 - 6.230 fm
s r t 11 - 5.710 f
Samliggjandi lóðir. Fallegt útsýni
til Heklu, stutt í náttúruperlur
og á golfvöllinn á Hellu.
Gott byggin armag húsa á lóð,
hagstætt verð.
á ari up lýsingar
orgir@arborgir.is, . 482- 00
Hús fasteignasala, s. 497-1155
Snorri Sigurfinnsson, s. 864-8090
VEIÐISVÆÐI ÓSKAST
Vegna mikilla eftirspurna þá köllum við eftir nýjum veiðisvæðum í flóru
félagsins. Bæði stöðuvötn og rennandi vatn. Skoðum einnig veiðisvæði
á afskektum stöðum.
Veiðifélagið Fish Partner er í stöðugum vexti og leitast eftir fleiri
samstarfsaðilum um land allt óháð fisktegund og tegund vatnasvæðis.
Vinsamlegast hafið samband við Kristján í síma 898 3946 eða á
netfangið kristjan@fishpartner.com.
Hansen er stór
tækur korn og
fræframleiðandi,
óðalseigandi og
virkur í félags
málum bænda
á eynni. Hann
kvaðst hafa lært
og tileinkað sér
mjög snemma að
halda hlaðinu á
bænum snyrtilegu, því það hefði meiri
áhrif á líðanina en nokkurn mann óraði
fyrir. Ástæðan fyrir því að hann héldi
alltaf hlaðinu á bænum snyrtilegu væri
meðal annars sú að það væri það þá
fyrsta sem maður sér að morgni en
ekki hrópandi kall á tiltekt eða verk
sem er ólokið. Vildi Kofoed meina að
það væri mikilvægur áhrifaþáttur til að
hlúa að eigin sálufrið að vera laus við
ákall vinnustaðarins, sem er jafnframt
heimili, upp á hvern einasta morgun
þegar farið er á fætur.
Lífsspeki Thors Gunnars Kofoed
er um margt til eftirbreytni og getur
breytt hugarfar oft auðveldað lífið.
Óneitanlega fylgja því margir kostir
að búa nálægt vinnustaðnum, en aftur
á móti geta því fylgt margar áskoranir
því alltaf eru einhver verkefni ókláruð
og ýmsu þarf að sinna. Til að fá frí
verður maður að fara að heiman svo
vélar, hús, girðingar og tún hætti að
hrópa á athygli manns. Það er svo
ótrúlega lýjandi að vera einhvern
veginn aldrei búinn, ekki fyrr búinn
með eitt verk að þá kallar það næsta.
Jákvæðar og uppbyggilegar hugsanir
alla daga er val. Það er þó hægara
sagt en gert og enginn er búmaður
nema barmi sér var máltæki sem var
notað hér áður fyrr. Bændur þurfa að
búa bæði að góðu úthaldi og seiglu
í sínu starfi og hið íslenska viðhorf
„þetta reddast“ hefur trúlega bjargað
geðheilsu margra. Það var að minnsta
kosti tilgáta Sigmundar Sigfússonar,
geðlæknis á Akureyri, sem var frábær
í sínu fagi og mikill mannvinur. Hann
taldi þetta viðhorf hjálplega geðheilsu
Íslendinga og með því tækist okkur
yfirleitt að gleyma því slæma en halda
frekar í tiltrú á betri tíma.
Eitt er að halda hlaðinu hreinu en
annað er að taka til í kollinum á sér.
Þar, eins og á öðrum stórbúum, ægir
öllu saman, allt frá gersemum til algers
óþarfa. Hugurinn er nefnilega alveg
stórmerkilegur, hann getur haldið
manni uppteknum við neikvæðar
hugsanir án útgöngu eða lausna. Það
ágerist gjarnan þegar maður leggst
út af að kvöldi, allt fer í gang og
rússíbaninn fer af stað. Við þurfum að
ákveða að vera bílstjórar í okkar eigin
lífi, fara í „ökuskóla tilfinninganna“
eins og ég vil kalla það. Í þeim skóla
þarf að læra að greina hugsanaóreiðu
og gera æfingar. Til að mynda er gott
að ímynda sér skúffu fulla af alls konar
dóti og drasli sem þarfnast tiltektar en
þar ægir öllu saman líkt og í kollinum
þínum. Eins og þú gerir venjulega þá
er skúffan opnuð, einn hlutur tekinn
fram í einu og ákveðið hvað á að gera
við hann. Á sama hátt tekur þú „eina
hugsun“ og ákveður hvað þú ætlar að
gera við hana, annaðhvort losa þig við
hana sem þýðir að gleyma þessu, eða
geyma áfram í skúffunni sem þýðir að
þú ætlir ekki að vinna neitt meira með
hana, bara geyma áfram eða eiga hana
og gera að minningu. Á þennan hátt
er hægt að vinna sig smám saman í
gegnum tilfinningarússíbanann.
Það skrýtna við þessa tiltekt er sú
tilhneiging okkar til þess að eiga erfitt
með að henda slæmum tilfinningum.
Viljinn til þess að halda í þær er ótrúlega
sterkur en jafnframt sársaukafullur. Í
því felst ákveðin þráhyggja sem verður
til þess eins að það er verið að spinna
sterkan þráð sem erfitt er að rekja
upp og hugsunin festist í kollinum.
Sjálfsvinnan og tiltektin felst í því að
láta af þessum neikvæðu hugsunum
og þegar þær skjóta upp kollinum þá
skal setja upp stöðvunarskyldumerkið
og stoppa hugsun. Síðan þarf maður
að velja hvort maður vilji hafa þessar
hugsanir með í för eða skilja þær eftir
í vegkantinum og halda áfram. Í þeirri
vinnu þarf maður að vera hreinskilinn
gagnvart eigin tilfinningum, reyna að
skilja af hverju þær eru erfiðar og
ákveða framtíð þeirra. Bílstjórinn
ræður alltaf, þannig er það, en hann
þarf að fylgja umferðarreglunum í
ökuskóla tilfinninganna, því þá er
lífsleiðin bæði auðveldari og öruggari.
Halla Eiríksdóttir,
stjórnarmaður BÍ,
hjúkrunarfræðingur og
sauðfjárbóndi.
Bændageð:
Tifinningatiltekt
Halla
Eiríksdóttir.
AF VETTVANGI BÆNDASAMTAKANNA
REYKJAVÍK AKUREYRI 590 5100 klettur.is
Lyftu á
gæðum
„Ég er þeirrar skoðunar að lífið sé að öllu jöfnu gott, byrja daginn með
bros á vör geng út í daginn og hef hlaðið snyrtilegt því það hjálpar mér
að halda í þessa jákvæðni í lífinu.“ Þannig komst Thor Gunnar Kofoed,
stórbóndi í Bornholm í Danmörku, að orði þegar hann var að kynna
búskaparhætti sína fyrir austfirskum bændum.