Bændablaðið - 24.08.2023, Blaðsíða 64
64 Bændablaðið | Fimmtudagur 24. ágúst 2023
Árin færast hratt yfir og mið-
öldrunin gengur vel. En svo
byrjar að smella í öllum liðum og
líkurnar á því að geta lesið inni-
haldsupplýsingar gleraugna-
laus eru hverfandi. Það þýðir að
það er þýðingarlaust að þráast
lengur við. Það þarf að borða
meira salat.
Hingað til hefur fullkominn
skammtur af grænmeti sennilega
verið paprika og sveppir með
pepperóníinu á pitsur og súrar
gúrkur á hamborgara.
En nú er svo komið að það er
bara ekki nóg og þá er eins gott að
búa til salat fyrir snemmmiðaldra
menn. Menn eins og mig.
Til að ferskmiðaldra maður
eins og sá sem þetta skrifar geti
borðað salat sem aðalrétt þarf
tvennt eða sennilega þrennt, alla
vega tvennt og hálft:
Sæmilega dressingu, smá
prótein og þetta hálfa, pínulítið
kolvetni – alla vega til að byrja
með.
Salatið getur verið nokkurn
veginn hvað sem er en ágætis
grunnur er laufsalat eins og
rósasalat, Romain, Grand, kínakál
eða Iceberg. Grænkál er svo líka
svakalega hollt svo ekki sé minnst
á spínatið. Tómatar og radísur
eru líka mjög góð viðbót við
grunninn.
Svo má djassa salatið upp með
því sem til er eða þykir sæmilegt á
bragðið. Papríka, hvítkál, agúrka
og allt þetta helsta er voða hollt
og gott.
Siggi majónes
Trixið með salat fyrir byrjendur
er að saxa það smátt. Þannig er
enginn vandræðagangur með stór
lauf og dressingin blandast vel í
hvern munnbita.
Salatlífið verður bara miklu
hentugra til átu og bara betra
þegar smátt er skorið. Talandi
um dressingu þá er ákjósanlegt
að hún innihaldi svolitla fitu svo
hún hjúpi kálið og svo smá sýru
til að vega upp á móti fitunni.
Klassískt kombo er ólífuolía, edik
og sinnepssletta þeytt eða hrist
saman. Sinnepið hjálpar olíunni
og edikinu að hanga saman þrátt
fyrir að vera beinlínis olía og vatn.
En í miðaldramanna-salati
byggist dressingin í kringum
gamla góða mæjónesið. Mæjónes
er jú nokkurn veginn bara stöðug
fitublanda.
Er þó fullþykkt til að fara beint
út í kálið og líka pínu ógirnilegt.
Það er því ákjósanlegt að þynna
mæjónesið nokkuð. Mátulega
súran þynni er hægt að finna í
til dæmis límónusafa en einnig
er hægt að nota safann af súrum
gúrkum, ólífum eða einhverju
öðru sýrðu góðgæti.
Smá salt og smá sinnep skaða
heldur ekkert.
Búrgeisar
Til að fara ekki of bratt í salatliðið
er gott að nýta það sem hinn
snemmmiðaldra þekkir. Til dæmis
með því að búa til salatskálar úr
kunnuglegum réttum.
Það er hægt að gera taco-salat
með alls konar salatblöðum,
tómötum og avókadó. Toppað
með dressingu byggðri á
sýrðum rjóma í staðinn fyrir
mæjónesunni. En hið fullkomna
miðaldramanna-salat er þó
auðvitað ostborgarasalat.
Svona förum við að:
Grilla eða steikja hamborgara-
platta, bræða yfir hann ost og
láta taka sig á meðan salatið er
undirbúið. Saxa niður salatblöð,
lauk, tómata og góða súra gúrku.
Hræra saman mæjónesi og
safanum af súru gúrkunum, sirka
í hlutföllunnum einn partur mæjó
á móti einum parti af súrsafa. Þá
hálfum parti af góðu amerísku gulu
sinnepi. Smá salt og pipar eftir
smekk. Skera borgarann í kubba og
hræra út í laufin.
Punkturinn yfir i-ið kemur svo
með steiktum brauðteningum.
Saxa franskbrauð eða jafnvel
– hamborgarabrauð. Steikja
brauðbitana upp úr klípu af smjöri
við frekar miðlungshita.
Þegar teningarnir eru byrjaðir
að brúnast og verða stökkir er
svo hægt að léttsteikja nokkur
sesamfræ fyrir þá sem vilja Big-
mac gæði á salatið.
MATARKRÓKURINN
Miðaldramanna-salat
Með framtíðina fyrir sér
Hann Greipur Guðni
er hress og kátur níu
ára strákur sem þykir
skemmtilegt að kíkja á
sveitabæi.
Nafn: Greipur Guðni
Hilmarsson.
Aldur: 9 ára.
Stjörnumerki: Hrútur.
Búseta: Reykholt,
Biskupstungum.
Skóli: Bláskógaskóli.
Skemmtilegast í skólanum:
Frímínútur.
Áhugamál: Fótbolti.
Tómstundaiðkun: Kíkja á
sveitabæi.
Uppáhaldsdýrið: Ljón kom fyrst
upp en íslenskt er geit.
Uppáhaldsmatur: Hamborgari og
grjónagrautur.
Uppáhaldslag: Króatía og
Finnland í Eurovision 2023.
Uppáhaldslitur: Fjólublár.
Uppáhaldsmynd: King Kong og
Jurassic Park.
Fyrsta minningin:
Þegar ég hélt að brúnn blettur í
sætinu á gröfunni hans pabba væri
kúkur eftir að hann var stoppaður
af löggunni fyrir hraðakstur.
Hvað er það skemmtilegasta sem
þú hefur gert: Fara til Tenerife og
óvissuferð til Vestmannaeyja.
ERFINGJAR LANDSINS
Setja skal inn tölur frá 1–9, í eyðurn ar. Sama talan má ekki koma fyrir tvisvar í línu lárétt og lóð rétt
- og heldur ekki innan hvers reits sem afmarkaður er af sverari lín um.
SUDOKUÞRAUTIR Bændablaðsins
Þung Þyngst
Létt Miðlungs
Við hvetjum sem flesta til að hafa samband ef ykkur langar að vera með!
Hafið samband: sigrunpeturs@bondi.is
Salat þarf ekki að vera vont. Allavega ekki alvont. Mynd / Hari
Haraldur Jónasson
haradlur@gmail.com
Trixið með salat
fyrir byrjendur er að
saxa það smátt. Þannig er
enginn vandræðagangur
með stór lauf og dress-
ingin blandast vel í hvern
munnbita ...“