Bændablaðið - 24.08.2023, Blaðsíða 66

Bændablaðið - 24.08.2023, Blaðsíða 66
66 Bændablaðið | Fimmtudagur 24. ágúst 2023 Skömmu eftir að fjörutíu ár eru liðin frá útgáfu fyrstu plötu hennar fyllir nú drottning poppsins sextíu og fimm ár hér á jörð. Söngkonan Madonna Ciccone fæddist þann 16. ágúst árið 1958 í Michigan, Bandaríkjunum, en foreldrar hennar voru önnur kynslóð innflytjenda bæði ítalskra og svo fransk-kanadískra. Var kaþólsk trú í hávegum höfð innan fjölskyldunnar sem taldi hvorki meira né minna en sex börn. Móðir Madonnu lést er hún var fimm ára, en í kjölfarið kvæntist faðir hennar ráðskonu heimilisins og eignaðist með henni tvö börn. Madonnu mislíkaði þessi ráðahagur föður síns og fór það ekki framhjá neinum. Kom það sterklega í ljós á unga aldri að þarna væri á ferðinni manneskja sem léti heyra í sér ef henni mislíkaði. Þótt trúin virðist vera stór hluti tilveru hennar og virðing við strang- kaþólskan föður hennar í þeim efnum, fer hún sínar eigin leiðir. Lagið Papa dont preach sem kom út árið 1986 tileinkaði hún sambandi sínu við föður sinn sem hefur gegnum tíðina verið heldur stormasamt. Seint á áttunda áratugnum hóf Madonna feril sinn sem dansari en ekki leið á löngu þar til hún vakti athygli bak við hljóðnemann. Íklædd blöndu af ögrandi undirfatnaði, netsokkabuxum, blúndum, skreytt trúarlegum skartgripum, fór tilvera hennar ekki framhjá neinum, enda vildi hún koma því á framfæri að hægt væri að sýna kynþokka jafnframt því að standa föstum fótum á sínu. Hún varð þekkt fyrir djarfan klæðaburð og sjálfstæði, fyrirmynd hverrar konu. Mætti segja að hún hafi brotið blað í kvenréttindasögunni, ýtt réttilega undir tilveru andlegs frelsis og sjálfstæðis kvenna til jafns við karlmenn. Aftur til fortíðar Á verðlaunaafhendingu MTV Video Music Awards árið 1984 mætti hún gallvösk í hvítum alklæðnaði, tjullpilsi, sokkabuxum og korseletti, með Boy Toy beltissylgju. Þar flutti hún meðal annars lagið Like a Virgin sem fellur hvorki í gleymsku né dá þeirra sem á hlýddu. Er lagið titillag samnefndrar plötu sem hefur selst í yfir 20 milljónum eintaka, þá ein mest selda plata allra tíma. Í dag er Madonna líklegast sú söngkona sem hefur selt hvað flestar plötur á heimsvísu. Dansað yfir línuna Madonna hættir þó aldrei að dansa á línunni og hefur jafnvel farið yfir hana allhressilega, a.m.k. ef litið er til upphafs tíunda áratugarins, bæði í hegðun og klæðaburði. Sem dæmi má nefna tónlistar- myndband hennar við lagið Justify My Love frá árinu 1990. Þar er að finna afar kynþokkafulla senu þar sem hún ýtir enn og aftur við hinni heilögu mynd kaþólsku kirkjunnar með því að hafa hið heilaga trúartákn, krossinn, danglandi um háls elskhuga sinna. Nokkrum árum síðar, 1993, á sviði í Púertó Ríkó fór hún höndum um fána landsins á klámfenginn hátt og vakti afar mikla reiði áhorfenda. Ekki löngu síðar var Madonnu boðið í spjallþátt Jay Leno sem þá var einn vinsælasti spjallþáttur Bandaríkjanna. Þar færði hún þáttastjórnandanum vinsæla nærbuxur sínar og bauð honum að þefa að vild. Sú hegðun þótti fara yfir öll mörk og meira að segja aðdáendum hennar þótti of langt gengið, þarna væri mögulega ferli hennar lokið. Ekki öll nótt úti enn Madonna lét þó hvergi bugast og einbeitti sér um tíma að því að styrkja fátæka listamenn til sýningahalds. Á seinni hluta tíunda ára- tugarins þótti henni upplagt að túlka forsetafrúna Evitu Peron í samnefndri mynd, en sú kona hafði m.a. mikil afskipti af kvenréttindum og vegna hennar var m.a. kosningaréttur argentínskra kvenna viðurkenndur. Með nýjum áratug urðu nýir tímar. Rétt fyrir aldamótin síðustu sneri Madonna sér að austrænni dulspeki og Kabbalah-trú. Komu áhrif þessara tíma sterklega í ljós á ímynd hennar og listrænu ferli eins og margir kannski muna eftir á sjöundu stúdíóplötu hennar, Ray of Light, sem gefin var út 1998. Sama ár stofnaði hún góðgerðar- samtökin The Ray of Light Foundation. Meginmarkmið þeirra er að stuðla að friði, jafnrétti og menntun fyrir alla, auk þess sem sérstök áhersla er lögð á valdeflingu kvenna, menntunarátak, alþjóðlega þróun og ýmis mannúðarátök. Þetta var þó engin nýlunda því alla tíð hefur gustað af henni í hinum ýmsu baráttumálum. Má þar nefna réttindi HIV smitaðra svo og hópa innan LBGQT en einnig velferð barna frá þróunarríkjunum, en önnur góðgerðarsamtök sem mætti nefna, samtökin Raising Malawi, eiga að vinna að eflingu menntaaðstöðu þarlendis. Tilefni til að fagna Enn þann dag í dag fer Madonna ótroðnar slóðir. Sextíu og fimm ára gömul býr hún ásamt hluta barna sinna í Lissabon og tæplega þrítugum ástmanni sínum, boxaranum Josh Popper. Hún stefnir á tónleikaferðalag undir nafninu Celebration í tilefni 65 ára afmælis síns – og lætur hvergi deigan síga þótt árin líði. /SP Urtönd er minnsta önd Evrópu og þá jafnframt langminnsta andartegundin sem verpur hér á Íslandi. Hún er útbreidd um allt land, helst á láglendi í mýrum, tjörnum, skurðum, ám og flóum. Þessi litla buslönd er afar kvik og hraðfleyg. Þær eru nokkuð félagslyndar utan varptíma og ekki óalgengt að sjá þær í litlum hópum. Engu að síður eru þær afar styggar og fljótar að koma sér í felur ef þær verða fyrir ónæði. Líkt og aðrar buslendur éta þær fræ, plöntur og skordýr sem þær hálfkafa eftir. Urtendur eru að mestu farfuglar, stofninn er um 3.000–5.000 pör og er áætlað að um 1.000 fuglar dvelji hérna yfir veturinn. Þeir fuglar sem fara frá landinu hafa vetursetur aðallega á Bretlandseyjum en einnig Vestur-Evrópu. Mynd og texti / Óskar Andri Víðisson FRÆÐSLA Tíska: Hver er þessi stúlka? Að ofan má sjá Madonnu íklædda dressi sínu frá MTV hátíðinni árið 1984 og á neðri myndinni er hún öllu settlegri, árið 1998. Nýleg mynd af söngkonunni ásamt börnunum hennar sex. Eitt umtalaðasta dress Madonnu, eftir tískuhönnuðinn Jean Paul Gaultier, árið 1990.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.