Bændablaðið - 24.08.2023, Page 66
66 Bændablaðið | Fimmtudagur 24. ágúst 2023
Skömmu eftir að fjörutíu ár eru
liðin frá útgáfu fyrstu plötu hennar
fyllir nú drottning poppsins sextíu
og fimm ár hér á jörð.
Söngkonan Madonna Ciccone
fæddist þann 16. ágúst árið 1958
í Michigan, Bandaríkjunum, en
foreldrar hennar voru önnur kynslóð
innflytjenda bæði ítalskra og svo
fransk-kanadískra. Var kaþólsk trú í
hávegum höfð innan fjölskyldunnar
sem taldi hvorki meira né minna en
sex börn. Móðir Madonnu lést er hún
var fimm ára, en í kjölfarið kvæntist
faðir hennar ráðskonu heimilisins
og eignaðist með henni tvö börn.
Madonnu mislíkaði þessi ráðahagur
föður síns og fór það ekki framhjá
neinum. Kom það sterklega í ljós á
unga aldri að þarna væri á ferðinni
manneskja sem léti heyra í sér ef
henni mislíkaði.
Þótt trúin virðist vera stór hluti
tilveru hennar og virðing við strang-
kaþólskan föður hennar í þeim efnum,
fer hún sínar eigin leiðir. Lagið Papa
dont preach sem kom út árið 1986
tileinkaði hún sambandi sínu við
föður sinn sem hefur gegnum tíðina
verið heldur stormasamt.
Seint á áttunda áratugnum hóf
Madonna feril sinn sem dansari en
ekki leið á löngu þar til hún vakti
athygli bak við hljóðnemann. Íklædd
blöndu af ögrandi undirfatnaði,
netsokkabuxum, blúndum, skreytt
trúarlegum skartgripum, fór tilvera
hennar ekki framhjá neinum, enda
vildi hún koma því á framfæri
að hægt væri að sýna kynþokka
jafnframt því að standa föstum
fótum á sínu.
Hún varð þekkt fyrir djarfan
klæðaburð og sjálfstæði, fyrirmynd
hverrar konu. Mætti segja að hún hafi
brotið blað í kvenréttindasögunni, ýtt
réttilega undir tilveru andlegs frelsis
og sjálfstæðis kvenna til jafns við
karlmenn.
Aftur til fortíðar
Á verðlaunaafhendingu MTV Video
Music Awards árið 1984 mætti
hún gallvösk í hvítum alklæðnaði,
tjullpilsi, sokkabuxum og korseletti,
með Boy Toy beltissylgju. Þar flutti
hún meðal annars lagið Like a Virgin
sem fellur hvorki í gleymsku né dá
þeirra sem á hlýddu.
Er lagið titillag samnefndrar plötu
sem hefur selst í yfir 20 milljónum
eintaka, þá ein mest selda plata allra
tíma. Í dag er Madonna líklegast sú
söngkona sem hefur selt hvað flestar
plötur á heimsvísu.
Dansað yfir línuna
Madonna hættir þó aldrei að
dansa á línunni og hefur jafnvel
farið yfir hana allhressilega,
a.m.k. ef litið er til upphafs tíunda
áratugarins, bæði í hegðun og
klæðaburði.
Sem dæmi má nefna tónlistar-
myndband hennar við lagið
Justify My Love frá árinu 1990.
Þar er að finna afar kynþokkafulla
senu þar sem hún ýtir enn
og aftur við hinni heilögu
mynd kaþólsku kirkjunnar
með því að hafa hið
heilaga trúartákn, krossinn,
danglandi um háls elskhuga
sinna. Nokkrum árum síðar,
1993, á sviði í Púertó Ríkó
fór hún höndum um fána
landsins á klámfenginn
hátt og vakti afar mikla reiði
áhorfenda.
Ekki löngu síðar var
Madonnu boðið í spjallþátt
Jay Leno sem þá var einn
vinsælasti spjallþáttur
Bandaríkjanna. Þar færði
hún þáttastjórnandanum
vinsæla nærbuxur sínar og
bauð honum að þefa að vild.
Sú hegðun þótti fara
yfir öll mörk og meira að segja
aðdáendum hennar þótti of langt
gengið, þarna væri mögulega ferli
hennar lokið.
Ekki öll nótt úti enn
Madonna lét þó hvergi bugast og
einbeitti sér um tíma að því að styrkja
fátæka listamenn til sýningahalds.
Á seinni hluta tíunda ára-
tugarins þótti henni upplagt að túlka
forsetafrúna Evitu Peron í samnefndri
mynd, en sú kona hafði m.a. mikil
afskipti af kvenréttindum og vegna
hennar var m.a. kosningaréttur
argentínskra kvenna viðurkenndur.
Með nýjum áratug urðu nýir
tímar. Rétt fyrir aldamótin síðustu
sneri Madonna sér að austrænni
dulspeki og Kabbalah-trú. Komu
áhrif þessara tíma sterklega í ljós
á ímynd hennar og listrænu ferli
eins og margir kannski muna eftir á
sjöundu stúdíóplötu hennar, Ray of
Light, sem gefin var út 1998.
Sama ár stofnaði hún góðgerðar-
samtökin The Ray of Light
Foundation. Meginmarkmið þeirra
er að stuðla að friði, jafnrétti og
menntun fyrir alla, auk þess sem
sérstök áhersla er lögð á valdeflingu
kvenna, menntunarátak, alþjóðlega
þróun og ýmis mannúðarátök.
Þetta var þó engin nýlunda því
alla tíð hefur gustað af henni í hinum
ýmsu baráttumálum. Má þar nefna
réttindi HIV smitaðra svo og hópa
innan LBGQT en einnig velferð
barna frá þróunarríkjunum, en önnur
góðgerðarsamtök sem mætti nefna,
samtökin Raising Malawi, eiga að
vinna að eflingu menntaaðstöðu
þarlendis.
Tilefni til að fagna
Enn þann dag í dag fer Madonna
ótroðnar slóðir. Sextíu og fimm
ára gömul býr hún ásamt hluta
barna sinna í Lissabon og tæplega
þrítugum ástmanni sínum,
boxaranum Josh Popper. Hún stefnir
á tónleikaferðalag undir nafninu
Celebration í tilefni 65 ára afmælis
síns – og lætur hvergi deigan síga
þótt árin líði. /SP
Urtönd er minnsta önd Evrópu og þá jafnframt langminnsta andartegundin sem verpur hér á Íslandi. Hún er útbreidd um allt land, helst á láglendi í mýrum, tjörnum, skurðum, ám og flóum. Þessi litla buslönd
er afar kvik og hraðfleyg. Þær eru nokkuð félagslyndar utan varptíma og ekki óalgengt að sjá þær í litlum hópum. Engu að síður eru þær afar styggar og fljótar að koma sér í felur ef þær verða fyrir ónæði. Líkt
og aðrar buslendur éta þær fræ, plöntur og skordýr sem þær hálfkafa eftir. Urtendur eru að mestu farfuglar, stofninn er um 3.000–5.000 pör og er áætlað að um 1.000 fuglar dvelji hérna yfir veturinn. Þeir fuglar
sem fara frá landinu hafa vetursetur aðallega á Bretlandseyjum en einnig Vestur-Evrópu. Mynd og texti / Óskar Andri Víðisson
FRÆÐSLA
Tíska:
Hver er þessi stúlka?
Að ofan má sjá Madonnu íklædda
dressi sínu frá MTV hátíðinni árið
1984 og á neðri myndinni er hún öllu
settlegri, árið 1998.
Nýleg mynd af söngkonunni ásamt börnunum hennar sex.
Eitt umtalaðasta dress Madonnu,
eftir tískuhönnuðinn Jean Paul
Gaultier, árið 1990.