Bændablaðið - 24.08.2023, Blaðsíða 35
35Bændablaðið | Fimmtudagur 24. ágúst 2023
Tangarhöfða 1 - 110 Reykjavík - 551-5464
www.wendel.is - wendel@wendel.is
HILLTIP
VETRARBÚNAÐUR
____________________
SNJÓTENNUR, FJÖLPLÓGAR,
SALT - OG SANDDREIFARAR
Rafrænt stjórnarkjör
21.-28. ágúst 2023
RAFRÆNT stjórnarkjör til aðalstjórnar Lífeyrissjóðs bænda fer fram á
sjóðfélagavef á vefsvæði sjóðsins www.lsb.is dagana 21. – 28. ágúst n.k.
og eru átta í framboði um fjögur sæti í aðalstjórn sjóðsins.
Í framboði eru Bjartur Thorlacius, Bryndís Gunnlaugsdóttir, Einar Ófeigur
Björnsson, Erla Hjördís Gunnarsdóttir, Halldór Frímannsson,
Helgi Jóhannesson, Jóhann Már Sigurbjörnsson og Vigdís Häsler.
Á vef sjóðsins www.lsb.is er kynning á frambjóðendunum.
Allir sjóðfélagar sem hafa greitt til Lífeyrissjóðs bænda og eiga hjá honum
réttindi hafa atkvæðisrétt við stjórnarkjörið. Innskráning er með rafrænum
skilríkjum eða íslykli.
Sjóðfélögum gefst einnig kostur á að greiða atkvæði kl. 9-14 virka daga á
skrifstofu sjóðsins á meðan kosning stendur yfir.
Aukaársfundur Lífeyrissjóðs bænda verður haldinn að Stórhöfða 23, 4. hæð,
Reykjavík, fimmtudaginn 31. ágúst 2023 og hefst kl. 11:00. Á fundinum verða
kynntar niðurstöður rafræna stjórnarkjörsins og tillögur um breytingar á
samþykktum sjóðsins.
Lífeyrissjóður bænda
Stórhöfða 23 | 110 Reykjavík
Sími 563 1300 | lsb@lsb.is | www.lsb.is
Kornið enn grænt
Bessi segir að kornið hafi verið
sett niður um mánaðamótin apríl/
maí en klaki og bleyta í jörðu hafi
tafið fyrir niðursetningu en þó
hafi náðst að setja kornið niður að
stærstum hluta fyrir rigningarnar í
maí. „Þroski kornsins er seinna á
ferðinni en venjulega, kornið er enn
grænt núna seinnihlutann í ágúst,
en ætti að vera að byrja að þroskast
og gulna. Fyllingin er misjöfn. Við
þurfum hlýjar og góðar næstu vikur
til að ná betri þroska en veðurfarið
hefur ekki verið okkur hliðhollt
hingað til. Útlitið er því ekki bjart,
þó svo að kornið hafi ekki frosið
til skaða, þá er ekki mikill þroski
né fylling.“
Bessi, sem er með umfangsmikla
nautgriparækt, getur samt sem
áður nýtt hluta af korninu sem
viðhaldsfóður. „Ég mun slá og rúlla
hluta af korninu, það sem styst er
komið í þroska, og nýta það sem
viðhaldsfóður fyrir holdakýr. Það
er það eina sem hægt er að gera í
stöðunni, það verður mjög létt og
lélegt fóður, meira trénisfóður, en
hægt er að blanda því saman við
annað fóður. Ég mun reyna að bíða
með að þreskja skárri hlutann af
korninu og freista þess að það nái
þroska og fyllingu. Þetta verður
tvísýnt, því nú er einungis tæpur
mánuður í þreskingu.“
Skapa þarf betri umgjörð
fyrir greinina
Kornrækt á Íslandi er ekki áhættulaus,
frekar en í öðrum löndum en hér er
allra veðra von, og hafa kornbændur
talað fyrir því að koma á fót
tryggingakerfi.
„Stjórnvöld hafa lýst yfir vilja að
auka og efla kornrækt á Íslandi. Það
væri því rökrétt samhliða aukningu í
kornrækt að koma á fót einhvers konar
tryggingakerfi fyrir kornbændur, hvort
sem menn kaupi tryggingar sjálfir eða
settur verði á fót samtryggingarsjóður.
Ef auka á kornrækt á Íslandi, þar sem
skilyrðin eru tæp veðurfarslega séð,
þá er það ekki mjög hvetjandi fyrir
bændur að auka enn meir kornrækt ef
við stöndum svo einir uppi með tjónið
þegar illa fer.“
Enn frekari rannsóknir
Bessi telur það mikilvægt að
stjórnvöld standi einnig að frekari
rannsóknum og kynbótum á korni,
að það verði þróuð yrki sem standist
enn betur íslenskt veðurfar. „Það hefur
náðst góður árangur í kornkynbótum
undanfarin ár og það er mikilvægt að
halda því áfram svo við stöðnum ekki.
Það er einnig nauðsynlegt að skapa
betri rekstrarskilyrði og umgjörð fyrir
greinina, það myndi tryggja kornrækt
hérlendis til framtíðar,“ segir Bessi
að lokum.
Bessi Freyr Vésteinsson, bóndi í Hofsstaðaseli í Skagafirði, segir þroska
kornsins vera seinna á ferðinni en venjulega og nú vanti hlýja og sólríka daga
til að ná upp þroska. Mymd / Aðsend