Bændablaðið - 24.08.2023, Qupperneq 50

Bændablaðið - 24.08.2023, Qupperneq 50
50 Bændablaðið | Fimmtudagur 24. ágúst 2023 Bændasamtökin gengu til endur- skoðunar á búvörusamningum á þeim forsendum að landbúnaður sé ein af grunnstoðum íslensk samfélags, og að meginhlutverk atvinnugreinarinnar sé framleiðsla á fjölbreyttum búvörum með áherslu á að byggja undir grunn fæðuöryggis, styrkja áfallaþol samfélagsins, viðhalda matvælaöryggi og stuðla að sjálfbærni. Búvörulög Búvörulög leggja grunn að starfs- skilyrðum landbúnaðarins. Eitt af meginmarkmiðum búvörulaga er að stuðla að framförum og aukinni hagkvæmni í framleiðslu, vinnslu og sölu búvara til hagsbóta fyrir framleiðendur og neytendur. Í búvörulögum segir enn fremur að kjör þeirra sem stunda landbúnað skuli vera í sem nánustu samræmi við kjör annarra stétta. Þetta hefur verið eitt af leiðarljósum í kröfum BÍ við endurskoðun samninganna. Búvörusamningar Búvörusamningar eru gerðir á grundvelli búvörulaga og er með samningunum heimilt að semja um framleiðsluskilyrði, stuðning og stjórn á magni búvara. Í samræmi við búvörulögin eru það Bændasamtökin sem fara með fyrirsvar framleiðenda. Í markmiðum búvörusamninga kemur fram að bændur skuldbinda sig til að framleiða landbúnaðar- afurðir og að sameiginlegt markmið bænda og ríkisvaldsins er að stuðla að þróun atvinnugreinarinnar. Þá ber ríkinu að tryggja afkomu bænda og starfsskilyrði í landbúnaði. Þjóðaröryggisstefna Markmið þjóðaröryggisstefnu er að tryggja sjálfstæði, fullveldi og friðhelgi landamæra Íslands, öryggi borgaranna og vernd stjórnkerfis og grunnvirkja samfélagsins. Hún felur m.a. í sér að stjórn- völdum ber að vernda mikilvæga innviði og styrkja áfallaþol sam- félagsins út frá fæðu- og matvæla- öryggi. Alþingi hefur einnig í sömu stefnu sett sér það markmið á alþjóðavettvangi að berjast gegn hungri. Áherslur stjórnvalda Við upphaf samningaviðræðna gerðu Bændasamtökin ráð fyrir því að áherslur stjórnvalda myndu byggja á því sem kemur fram í stjórnarsáttmála og nýlega sam- þykktri landbúnaðarstefnu til ársins 2040 og að þær áherslur myndu endurspeglast í fjármálaáætlun fyrir árin 2024-2028. Það er hins vegar ekki endilega raunin en í fjármálaáætluninni er ekki gert ráð fyrir frekari framlögum í búvörusamninga. Hefur þessi afstaða stjórnvalda komið fulltrúum bænda verulega á óvart enda telur BÍ það ekki vera í samræmi við búvörulög eða stjórnarsáttmálann. Auk þess sem slík nálgun er ekki líkleg til árangurs eigi að ná markmiðum nýsamþykktrar landbúnaðarstefnu til ársins 2040. Stjórnarsáttmáli Í stjórnarsáttmála má finna eftirfarandi áherslur varðandi landbúnað: Sett verða metnaðarfull markmið um að auka hlutfall hollra og næringarríkra innlendra matvæla til að treysta fæðuöryggi. Með öflugri, innlendri matvælaframleiðslu er stuðlað að heilnæmi matvara og auknu matvælaöryggi til að viðhalda góðri stöðu Íslands varðandi sýklalyfjaónæmi. Tryggja þarf framhald aðgerðaáætlunar um matvælaöryggi og vernd búfjárstofna. Við endurskoðun búvörusamninga verður lögð áhersla á að tryggja fæðuöryggi á Íslandi með því að efla innlenda land- búnaðarframleiðslu. Stuðningur hins opinbera verður samhæfður með það að markmiði að styrkja og fjölga stoðum landbúnaðar á grunni sjálfbærrar nýtingar í þágu loftslagsmála, umhverfis og náttúruverndar og fjölbreytni í ræktun. Aukinni framleiðslu á grænmeti verður náð með föstu niðurgreiðsluhlutfalli á raforkuverði til ylræktar og sérstökum stuðningi við útiræktun í gegnum búvörusamninga. Mótuð verður heildstæð, tímasett aðgerðaáætlun til eflingar lífrænnar framleiðslu og akuryrkju. Landbúnaðarstefnan Þann 1. júní síðastliðinn urðu tímamót þegar Alþingi samþykkti í fyrsta skipti þingsályktun um landbúnaðarstefnu, en þeirri stefnu er ætlað að móta stefnu fyrir atvinnugreinina til ársins 2040. Landbúnaðarstefnan er sett með því meginmarkmiði að efla og styðja íslenskan landbúnað og styrkja stoðir hans til framtíðar með sjálfbæra þróun að leiðarljósi. Jafnframt kemur fram í stefnunni að framtíðarsýn í landbúnaði taki meðal annars til samfélags og samkeppnishæfni sem felst til að mynda í því að: • tryggja fæðuöryggi og að landnotkun utan þéttbýlis feli í sér vernd góðs landbúnaðarlands • að framleiðsla verði arðbær og samkeppnishæf og tryggi byggðafestu og uppbyggingu þekkingar í samfélagi • að eðlileg nýliðun og kynslóða- skipti í landbúnaði verði tryggð. AF VETTVANGI BÆNDASAMTAKANNA Endurskoðun búvörusamninga 2023: Á hverju byggir samtalið? Í núgildandi búvörusamningum er tiltekið að síðari endurskoðun eigi að fara fram á árinu 2023. Formlegar viðræður hófust seinni partinn í mars 2023 og við upphaf sumars var búið að funda um áherslumál allra búgreina sem aðkomu eiga að búvörusamningum. Bændasamtökin hafa lagt upp í viðræðurnar annars vegar á þeim lagalega ramma sem búvörusamningar byggja á og hins vegar út frá áherslum stjórnvalda sem koma m.a. fram í stjórnarsáttmála, landbúnaðarstefnu og fjármálaáætlun 2024-2028. M ik ilv æ g ve rk ef ni Fo rg an gu r 2a. Niðurfelling tolla frá 3. ríkjum. Niðurfelling tolla hafi ekki neikvæð áhrif á verð og/eða framboð íslenskra landbúnaðarvara.  2b. Eftirlit með tollframkvæmd Raunverulegt og virkt eftirlit verði með framkvæmd tollverndar. 2c. WTO Tryggt verði að tollverndin skili sínu markmiði.  Uppfæra þarf magntolla/ verðtolla (uppf. 1995) 2d. ESB tollkvótar Tryggt verði  að  umfang þeirra verði endurskoðað. 1a. Viðbrögð við tíma- bundnum aðfangahækkunum Beinn stuðningur við innlenda framleiðslu á sama grundvelli og Áburðar- og Sprettgreiðslur 2022. 1b. Til að ná markmiðum land- búnaðarstefnunnar • Beinn stuðningur við innlenda framleiðslu þarf að tryggja afkomu bænda. • Aukin framlög til uppbyggingar. • Nýsköpun og þróun til að auka útflutningsverðmæti. • Rannsókn og menntun. • Allar aðgerðir boðaðar í stefnunni þurfa að vera að fullu fjármagnaðar. 1. Beinn stuðningur 2. Tollvernd 3a. Upprunamerking • Tryggja aukinn stuðning við Íslenskt staðfest. • Þurfum rg. um kröfur til merkinga á vörum unnum úr dýrum eða dýra- afurðum á grundvelli sjónarmiða um velferð dýra.  3b. Hagtölusöfnun landbúnaðarins Grundvallaratriði að komið verði á sameiginlegum hagtölugrunni um allt sem snýr að landbúnaði. 3c. Einföldun regluverks Nauðsynlegt að slík greining fari fram. 3d. Hagræðing í afurðageiranum Styðjum markmið þess svo lengi sem hagræðingin skili sér til neytenda og bænda 3e. Loftslagsmál Mikilvægt er að forma með skýrum hætti þær aðgerðir sem landbúnaðurinn þarf að ráðast í til að draga úr losun og tryggja fjármögnun. 3f. Tryggingamál Unnið verði að leið C í skýrslu starfshóps ráðherra 3g. Eftirlit með innflutningi Efla þarf eftirlitið til að tryggja að sömu kröfur séu gerðar til innfluttra og innlendra land- búnaðarafurða. 3h. Lágmarksbirgðir Lágmarksbirgðir verði skilgreindar af þjóðaröryggisráði í samræmi við tillögu skýrslu forsætisráðuneytis 3. Starfsumhverfi Nautgriparæktin, sauðfjárræktin og garðyrkjan eru með sérstaka samninga um sinn stuðning. Áherslur þessara búgreina hafa verið á aukið fjármagn inn í búvörusamninga í ljósi þeirra miklu aðfangahækkana sem orðið hafa síðustu misseri. Myndir / smh Hér má sjá yfirlit yfir helstu aðgerðir. Landbúnaðar- stefnan er sett með því meginmarkmiði að efla og styðja íslenskan landbúnað og styrkja stoðir hans til framtíðar með sjálfbæra þróun að leiðarljósi.“
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.