Bændablaðið - 24.08.2023, Blaðsíða 62

Bændablaðið - 24.08.2023, Blaðsíða 62
62 Bændablaðið | Fimmtudagur 24. ágúst 2023 Bændablaðið tók að þessu sinni til prufu nýjan sexhjóla vinnubíl frá kanadíska framleiðandanum Can- Am. Þetta er einfalt vinnutæki með mikla burðar- og drifgetu. Traxter er á margan hátt sér á báti, en starfsmenn Ellingsen lýsa tækinu sem stærri, öflugri og öruggari útgáfu af sexhjólunum sem eru algeng í sveitum landsins. Þegar tækið er skoðað að utan virðist það vera stækkuð útgáfa af sexhjóli, nema með sætum og veltigrind í stað hnakks. Þó uppsetningin sé á margan hátt svipuð, þá deilir Traxter sárafáum íhlutum með sexhjólunum frá Can-Am. Grindin, fjöðrunarbúnaðurinn og drifrásin eru sérstaklega endurhönnuð og styrkt til að þola þann aukna þunga og álag sem þessu tæki fylgir. Búnaður í lágmarki Þegar sest er um borð er fátt sem tekur á móti manni, enda er þetta algjörlega strípuð útgáfa af Traxter og greinilegt að peningurinn hefur farið í drifbúnað í stað lúxus. Engar dyr eru á veltigrindinni, heldur er taunet við hvorn inngang, sem haldið er uppi með plastsmellu. Bíllinn er með þrjú sæti, með merkilega þægilegum og mjúkum svampi. Þau eru klædd með vatnsheldu áklæði. Hvert sæti er með sitt þriggja punkta öryggisbelti. Í mælaborðinu er ein stöng fyrir gírana og eru tveir gírar áfram og einn aftur. Stiglaus reimskiptingin sér svo um að halda vélarsnúningnum réttum. Engin kúpling kemur við sögu. Traxter er ekki með neinn millikassa og eru öftustu fjögur hjólin alltaf læst í drifi. Hægt er að setja í sexhjóladrif með einum takka. Ökutækið er mun liprara en mætti ætla og verður ekkert stífara þegar framhjóladrifið er virkjað. Drifgeta umfram væntingar Þegar Traxter er tekinn til kostanna á grófum slóða, tekur nokkurn tíma að átta sig á hversu öflugt tækið í rauninni er. Undirritaður er vanur venjulegum jeppum og byrjaði á að keyra varlega yfir grjót og djúpar holur. Þegar leið á prufuaksturinn jókst sjálfstraustið þó til muna og hraðinn samkvæmt því. Ófærur, sem undirritaður hefði ekið yfir á 15-20 kílómetra hraða á óbreyttum jeppa, þoldu vel 50-60 kílómetra hraða á þessu tæki. Hvert einasta hjól er með sjálfstæða fjöðrun og miklum hreyfanleika. Traxter nær því að halda sér ótrúlega stöðugum og mjúkum þegar brunað er yfir hörmulegt yfirborð. Mýktin verður jafnvel meiri þegar hraðinn eykst. Samanborið við jeppa, þá ræður Traxter við margfalt brattari brekkur, enda með þrjá öxla og mun léttari. Í þessum prufuakstri var tekist á við brekku með meira en 45 gráðu halla á köflum og lausu yfirborði og komst bíllinn upp án mikilla láta. Næst var reynt við lengri og brattari brekku, en þar fundust takmörk drifgetunnar. Þar sem Traxter er rásfastur og stöðugur, þá var lítið mál að bakka niður án þess að koma sér í sjálfheldu eða óttast að velta tækinu. Ekki gerður fyrir þjóðvegi Tekinn var stuttur rúntur á góðum malarvegi. Þar reynist Traxter prýðilegur upp að 70 kílómetra hraða. Þó bíllinn komist hraðar, þá fer upplifunin að vera óþægileg þar sem ökumaðurinn er nær alfarið óvarinn fyrir vind. Hávaðinn verður jafnframt það mikill að ómögulegt er að eiga samskipti við sessunautinn. Ekki var reynt á akstur á malbiki, enda bíllinn ekki ætlaður í slíka notkun. Öflugur pallur Ekki er hægt að segja frá mörgu þegar kemur að ytra byrði tækisins, enda hefur öllum óþarfa verið haldið í lágmarki. Örstutt grænt húddið og ljósin mega þó eiga það að vera smekklega hönnuð.Það sem mestu máli skiptir á Traxter er pallurinn. Þó hann virðist ekki stór, þá er hann með sambærilegt innra mál og amerískir pallbílar og komast tvö Euro-bretti leikandi á þverveginn. Skjólborðin eru með sterkri stálgrind og eru föst, nema dregnir séu fram skiptilyklar. Burðargeta farartækisins er 771 kílógramm, sem þýðir að bíllinn getur auðveldlega burðast með heyrúllu á pallinum. Dráttargetan er jafnframt 1.360 kílógrömm. Bændur og aðrir sem vinna við erfiðar aðstæður úti í náttúrunni, geta leyst af hólmi fjölmörg tæki með Traxter. Pallurinn er með hlerapumpu, en samkvæmt upplýsingum frá Ellingsen á hann að létta undir við að sturta, jafnvel þó pallurinn sé með fullfermi. Vélin og skiptingin eru staðsett rétt aftan við ökumannshúsið, undir pallinum. Þegar pallinum er lyft upp, þá er sérlega gott aðgengi til að sinna viðhaldi. Tölur Helstu mál í millímetrum eru: Lengd, 3.915; breidd, 1.625; og hæð, 1.981. Þyngd ólestaðs ökutækis er 886 kílógrömm. Verð með vsk. er 5.990.000 krónur. Að lokum Traxter sexhjóla vinnubíllinn er flott tæki þar sem burðar- og drifgeta er í algjörum forgangi. Einfaldleikinn er mikill og lítur út fyrir að ekki hafi verið lögð króna í óþarfa búnað. Ökutækið er torfæruskráð og kemur því ekki til greina sem vinnutæki í þéttbýli. VÉLABÁSINN Ástvaldur Lárusson astvaldur@bondi.is – Prufuakstur á Can-Am Traxter HD10 6x6 Can-Am Traxter HD10 6x6 vinnubíllinn er gerður til að þjóna mjög skýrum tilgangi: Burðast með farm um torfærar slóðir og er öllum óþarfa búnaði sleppt. Hönnuðir Can-Am hafa þó ekki veitt afslátt á útlitshönnun. Myndir / ÁL Ökumannshúsið er með nákvæmlega það sem þarf og ekkert meira. Þó sætin líti ekki út fyrir að vera merkileg, þá eru þau sérlega þægileg. Pallurinn á Traxter 6x6 er með svipuð mál og amerískir pallbílar og má bera 771 kílógramm. Fjöðrunarkerfið er mun öflugara en í venjulegum jeppum. Aðgengið að vélinni er með allra besta móti.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.