Bændablaðið - 24.08.2023, Blaðsíða 24
24 Bændablaðið | Fimmtudagur 24. ágúst 2023
Þann 12. ágúst síðastliðinn fór fram
ein fjölmennasta Gleðiganga sem
hefur átt sér stað hérlendis og var
yfirskrift hátíðahaldanna „Baráttan
er ekki búin“.
Gleðigangan er hápunktur hinna
árlegu Hinsegin daga, þarsem
sameinast lesbíur, hommar, tví- og
pankynhneigðir, trans fólk, intersex
fólk og aðrir hinsegin einstaklingar
ásamt fjölskyldum og vinum, með það
fyrir augum að staðfesta tilveru sína og
minna á baráttumál sín.
Auk mannfjöldans var um metfjölda
hópa að ræða, rúm fjörutíu atriði skráð
í gönguna, bæði vagnar og hópar.
Gengið var frá Hallgrímskirkju niður
Skólavörðustíginn, áfram Bankastrætið
og inn Lækjargötuna. Slíkur var
fjöldinn að ekki komust allir sem vildu
á hátíðarsvæði Hljómskálagarðsins er
göngunni lauk, þó segja megi að allir í
nærliggjandi umhverfi gætu notið þess
sem upp á var boðið er Páll Óskar tryllti
lýðinn eins og honum einum er lagið.
Ekki er lengra síðan en tæpur fjórð-
ungur aldar frá því að Gleðigangan
hófst með pomp og prakt. Undanfari
hennar má segja að hafi verið
Frelsisganga samkynhneigðra á vegum
Samtakanna ́ 78 er haldin var á árunum
1993-4. Þar komu saman um sjötíu
manns en lítið var um að fjölmiðlar
veittu þessu átaki athygli. Kemur
fram á upplýsingasíðu hinsegin daga,
að „... Samtökin ´78 efndu til fyrstu
kröfugöngunnar í Reykjavík árið 1993
og var þá gengið niður Laugaveg, síðan
upp Hverfisgötu og safnast saman í
kvikmyndahúsinu Regnboganum þar
sem göngufólk horfði á kvikmyndina
The Times of Harvey Milk. Ári síðar,
1994, sameinuðust Samtökin ´78 og
Félagið, félag samkynhneigðra og
tvíkynhneigðra, um kröfugöngu með
sama sniði sem endaði á útihátíð við
Lindargötu þar sem félögin höfðu
bæði aðstöðu sína.“ Þátttakan var
heldur dræm, viðbrögð bæði fjölmiðla
og þátttakenda þótti ekki standast
væntingar og því var sú ákvörðun tekin
að hlé skyldi tekið um sinn.
Baráttan hefst
Samtökin ’78, elsti starfandi félags-
skapur hinsegin fólks hérlendis síðan í
maí 1978, hefur þó ítrekað staðið fyrir
málefnum og réttindabaráttu sinna
félagsmanna. Helsti hvatamaður að
stofnun samtakanna var leikarinn og
tónlistarmaðurinn Hörður Torfason,
sem fyrstur Íslendinga lýsti opinberlega
yfir kynhneigð sinni í viðtali við
tímaritið Samúel haustið 1975. Viðtalið
varð afdrifaríkt og í kjölfarið var haft
eftir Herði; „... Afleiðingarnar voru mér
algjör vitundarvakning og ég ákvað að
láta kné fylgja kviði og láta draum minn
rætast um að stofna baráttufélag um
réttindi okkar samkynhneigðra. Það
gekk ekki átakalaust fyrir sig en tókst
loks á endanum þann 9. maí 1978.“
Rétt er að taka fram að Félagið,
réttindafélag tví- og samkynhneigðra,
var stofnað vorið 1993 er útséð var um
að tvíkynhneigðir fengju inngöngu í
Samtökin ´78. Kemur fram í viðtali
Alþýðublaðsins árið 1995, við Eystein
Traustason, einn félagsmanna, að innan
Samtakanna hafi ekki veist rými til
opna fyrir málefni og baráttumál
tvíkynhneigðra, heldur væri skýrt og
skorinort í félagslögunum að til að
fá inngöngu í Samtökin þyrfti maður
að vera hommi eða lesbía – engin grá
svæði þar. Félagið var því stofnað til
þess að veita málefnum tvíkynhneigðra
hljómgrunn og í Félaginu voru bæði
sam- , gagn- og tvíkynhneigðir, enda
um mannréttindafélag að ræða, ofar
öllu. Lendingin varð þó sú að Félagið
og Samtökin ́ 78 sameinuðust og undir
þeim hatti má í dag finna sístækkandi
flóru kynhneigða og kynvitunda.
Velsæmi landsmanna misboðið
Áhugaverð er þrjóska ráðamanna til að
úthýsa þessum hópi þjóðarinnar.
Valdbeiting forsvarsmanna eins
stærsta og áhrifamesta fjölmiðils
landsins, útvarpsins, kom skýrt í ljós er
Samtökin ́ 78 sáu sér gott til glóðarinnar
og ætluðu að auglýsa félagsfund á
miðlum ljósvakans árið 1981. Hljóðaði
auglýsingin svo: „Lesbíur, hommar!
Munið fundinn í kvöld. Samtökin ́ 78.“
Tóku starfsmenn hljóðvarps
auglýsingadeildar ríkisútvarpsins
ekki beinlínis undir ágæti þessara
skilaboða og báru fyrir sig að þetta
svokallaða útvarp allra landsmanna
hefði í fyrirrúmi að halda íslenskri
tungu hreinni auk þess að standa vörð
um íslenska menningu.
Í ljósi þess gætu orðin „lesbía“
og „hommi“ gengið fram
af hlustendum, brotið í bága við
almennt velsæmi heilagra landsmanna
og engin lifandi leið að hlýða á slíkan
dónaskap. Fengu Samtökin ´78 því
póstlagt svar samdægurs frá Andrési
Björnssyni, þáverandi útvarpsstjóra
Ríkisútvarpsins, þar sem hann útlistar
neitunina fyrir félagsmönnum.
Takmörk velsæmis voru þó
nokkur og í framhaldinu kom í ljós
að nýyrðin lesbía og hommi áttu ekki
upp á pallborðið hjá Íslendingum.
Bentu auglýsingadeildir fjölmiðla
í kjölfarið hughreystandi á að nota
mætti orðið kynvillingar þess í stað.
Neitun ríkisútvarpsins var nefnilega
ekki einsdæmi, en m.a. sá dagblaðið
DV sér ekki annað fært en að neita
„kynvilltum“ félagsmönnum um
að auglýsa hjá sér, ef nota ætti þessi
ógurlegu orð. Það er ánægjulegt að segja
frá því að í dag hafa þessi þá ósæmilegu
orð, hommi og lesbía, hlotið fastan sess
í íslenskri tungu auk þess að á
vefsíðunni www.otila.is má finna
ógrynni upplýsinga til viðbótar sem
fólk gæti þarfnast útskýringa á.
Bak við linsuna
Meðfram ólgu áttunda og níunda
áratugarins hóf Hrafnhildur nokkur
Gunnarsdóttir að feta veg kvikmynda-
gerðar. Hóf hún fyrstu tökur þess
sem átti upphaflega að verða heimildar-
mynd um baráttu samkynhneigðra fyrir
jöfnum mannréttindum, en verkefnið
vatt upp á sig og yfir þrjá áratugi
festi Hrafnhildur á filmu það sem
eru í dag ómetanlegar heimildir sögu
samkynhneigðra á Íslandi sem og þróun
íslensks samfélags.
Glöggir lesendur muna ef til vill
eftir sjónvarpsþáttunum Svona fólk sem
sýndir voru á RÚV árið 2019 um
réttindabaráttu samkynhneigðra á
Íslandi – en þar fengu áhorfendur örlitla
innsýn í þann heim.
Hrafnhildur hefur alla tíð verið
einn af stólpum hinsegin samfélags og
gegndi m.a. formennsku Samtakanna
´78 á árunum 2005-7. Eitt veigamesta
hlutverk hennar sem formaður var að
koma því til leiðar að transfólk fengi
formlega að ganga í félagið og að
barátta fyrir réttindum þeirra yrði hluti
af markmiði félagsins. Að sama skapi
fengu tvíkynhneigðir líka sitt pláss,
þrettán árum eftir lætin árið 1994.
Staðfest samvist
Á meðan tilveruréttur hinsegin fólks fór
vaxandi fylgdu almenn mannréttindi
ekki endilega þeim vexti. Hérlendis
var þó samkynja pörum veitt leyfi
til að skrá sig í staðfesta samvist
árið 1996, en óheimilt að gifta sig.
Viðhorfsbreyting íslensks samfélags
var þó gífurleg vegna þess skrefs – á
jákvæðan hátt að mestu.
Lögfestur réttur samkynhneigðra
til frumættleiðinga var leiddur í
lög í júní árið 2006 en áður höfðu
stjúpættleiðingar samkynhneigðra para
verið leyfðar frá aldamótunum.
Hérlendis var það svo loksins
árið 2010 að hjúskaparlög tóku gildi
sem heimiluðu hjónaband tveggja
einstaklinga af sama kyni.
Þrátt fyrir ánægju vegna þessarar
lagabreytingar var ekki öll baráttan
unnin því samhliða henni bauð
þjóðkirkjan prestum sínum að synja
samkynhneigðum pörum um hjóna-
vígslu á grundvelli persónulegra
ástæðna – og var sú heimild ekki
afnumin fyrr en fimm árum síðar.
Baráttu mannréttinda og almennrar
tilveru er enn hvergi lokið. En áfram er
haldið. Auðvitað. /SP
MENNING
VARAHLUTIR Í
KERRUR
Vagnhöfða 7, 110 Reykjavík | Sími 517 5000 | stalogstansar.is
st’ al og
Bílabúðin
Stál og stansar
Gleðigangan 2023:
Baráttan er ekki búin
Frá Frelsisgöngu samkynhneigðra árið 1994. Mynd / Bára Kristinsdóttir
Bréfaskipti milli Samtakanna '78
og Ríkisútvarpsins árið 1981 þar
sem útvarpsstjóri neitar að auglýsa
félagsfund þeirra fyrrnefndu.
Viðburðadagatal frá 24. ágúst:
21.–27. ágúst Bæjarhátíð Suðurnesjabæjar
24.–27. ágúst Í túninu heima Bæjarhátíð Mosfellsbæjar.
25.–27. ágúst Akureyrarvaka Menningarhátíð á Akureyri.
25. ágúst Blús milli fjalls og fjöru Blúshátíð á Patreksfirði
26. ágúst Kjötsúpuhátíðin á Hvolsvelli
1.–3. september Ljósanótt Menningar/tónleika- og fjölskylduhátíð
Reykjanesbæjar.
7.–9. september Októberfest SHÍ Stærsta tónlistarhátíð stúdenta,
haldin í Vatnsmýrinni í Reykjavík.
7. október Menningar- og hrútadagur Raufarhafnar
12.–15. október Málþing skógarbænda Varmaland Borgarfirði.
28. október Kjötsúpudagurinn Skólavörðustíg í Reykjavík, haldinn
fyrsta vetrardag ár hvert.
2.–4. nóvember Iceland Airwaves Tónlistarhátíð í Reykjavík