Bændablaðið - 24.08.2023, Blaðsíða 46
46 Bændablaðið | Fimmtudagur 24. ágúst 2023
LÍF&STARF
Vallanes á Fljótsdalshéraði. Á miðri mynd má sjá nýja kyndiaðstöðu í smíðum sem verður komin í notkun í lok sumars. Myndir / HGS
Lífræn grænmetisrækt:
Orkuskipti í Vallanesi
Í Vallanesi á Fljótsdalshéraði
hefur í rúma þrjá áratugi verið
stunduð lífræn grænmetisrækt af
ýmsu tagi.
Bændur í Vallanesi, þau
Eymundur Magnússon og Eygló
Björk Ólafsdóttir, eru frumkvöðlar
á marga vísu og bjóða upp á
heilnæmar vörur sem fáanlegar
eru í búðum landsmanna víðast
hvar. Eru vöruflokkar þeirra
orðnir fjölmargir, allt frá korni til
krukkukrása yfir til olíu og auðvitað
hefðbundins grænmetis. Vörur frá
Vallanesi hafa verið seldar undir
vörumerkinu „Móðir jörð“ við
góðan orðstír.
Á jörðinni hafa skjólbelti
verið ræktuð frá 1983 og í dag
eru þau samanlagt níu kílómetrar
að lengd, staðsett vítt og breitt
um ræktunarland Vallaness. Auk
skjólbelta hafa þau ræktað skóg frá
1989 og allt í kring má núorðið sjá
vöxtulegan skóg gægjast til himins.
Skjólbeltunum að þakka
Eymundur hefur það á orði að
með tilkomu skjólbeltanna hafi
veðurfar í Vallanesi breyst svo
mikið að það væru engu líkara en
að landið hafi færst nær Evrópu.
Það er skjólbeltunum fyrst og
fremst að þakka að þau geti
ræktað svo ríkulega á jörðinni.
Ávinningur skógarins í formi hita
er meiri en skjóláhrifin ein og sér.
Komdu við í sýningarsalinn okkar að Krókhálsi 9 eða skoðaðu úrvalið og kynntu
þér kosti langtímaleigu á sixtlangtimaleiga.is. Einnig getur þú haft samband við
viðskiptastjóra Sixt í síma 540 2222 eða á vidskiptastjori@sixt.is
B
irt m
eð fyrirvara um
m
ynd- og textabrengl.
Innifalið í langtímaleigu:
Þjónustuskoðanir Tryggingar Hefðbundið viðhald Vetrardekk DekkjaskiptiBifreiðagjöld
(Tesla Model Y Long Range bíður eftir þér!)
Brostu hringinn!
Tesla Model Y
Long Range
• 100% rafmagn
• Drægni allt að 533 km.
• Fjórhjóladrifinn
• Dráttarkrókur
Hlynur Gauti Sigurðsson
hlynur@bondi.is
Orkuskiptin felast í því að koma upp viðarkyndingu.
Bændurnir í Vallanesi, þau Eygló Björk Ólafsdóttir og Eymundur Magnússon,
selja vörur undir merkjum Móður jarðar.