Bændablaðið - 24.08.2023, Blaðsíða 51

Bændablaðið - 24.08.2023, Blaðsíða 51
51Bændablaðið | Fimmtudagur 24. ágúst 2023 Í landbúnaðarstefnunni eru tíu meginviðfangsefni í 32 liðum sem samþykkt eru af Alþingi til að ná fram framtíðarsýninni. Sem dæmi um þessi viðfangsefni má nefna eftirfarandi atriði: • Skilgreindar lágmarksbirgðir matvæla verði í landinu á hverjum tíma, sem og aðföng til framleiðslunnar. • Við töku ákvarðana um landnotkun verði fæðuöryggi þjóðarinnar haft að leiðarljósi. • Styrktar verði stoðir fjár- hagslegrar afkomu framleiðenda sem einnar af undirstöðum fæðuöryggis. Áherslur Bændasamtakanna Áherslur BÍ í viðræðum við stjórnvöld snúa fyrst og fremst að beinum stuðningi við bændur. Einnig hefur verið lögð áhersla á atriði sem tengjast tollvernd og almennu starfsumhverfi landbúnaðar. Yfirlit yfir helstu aðgerðir má sjá á töflu hér til hliðar. Áherslur búgreinanna Nautgriparæktin, sauðfjárræktin og garðyrkjan eru með sérstaka samninga um sinn stuðning. Áherslur þessara búgreina hafa verið á aukið fjármagn inn í búvörusamninga í ljósi þeirra miklu aðfangahækkana sem orðið hafa síðustu misseri. Það er mat BÍ að full þörf sé á sambærilegum aðgerðum á þessu ári eins og ráðist var í árið 2022 með sértækum stuðningi við landbúnaðinn (sprettsgreiðslur). Einnig liggur fyrir krafa um að endurskoða verðlagsgrundvöll hjá kúabændum og sauðfjárbændum. Ein af megináherslum garð- yrkjunnar snýr að því að hætta að binda beingreiðslur C (niðurgreiðsla á rafmagni) við pott heldur festa fjármagn til endurgreiðslu við 95%. Aðrar búgreinar hafa aðkomu að endurskoðun búvörusamninga í gegnum rammasamning auk þess sem hver og ein búgrein hefur lagt fram áhersluatriði sem lögð hafa verið til grundvallar í samtali við stjórnvöld. Í raun má segja að megináherslur allra búgreina snúist að því að horfa til afkomu þeirra. Aðgerðaáætlun til 5 ára á grundvelli landbúnaðarstefnunnar Bændasamtökin hafa kallað eftir því við matvælaráðuneytið að fimm ára aðgerðaáætlun á grundvelli landbúnaðarstefnunnar líti dagsins ljós. Slík aðgerðaáætlun þarf að vera með sama sniði og byggðaáætlun þar sem eru skýr markmið, aðgerðir sem eru að fullu fjármagnaðar í fjárlögum og ábyrgð verkefna skýrt skilgreind. A Wendel ehf. Tangarhöfða 1, 110 Reykjavík, S:551 5464 - wendel@wendel.is www.wendel.is Hilltip Icestriker 900–1600L Salt og sanddreifari í tveim stærðum fyrir stóra pallbíla og minni vörubíla. Rafdrifinn 12V. Hilltip Icestriker 380–550L Salt og sanddreifarari í tveim stærðum, fyrir minni pallbíla. Rafdrifinn 12V. Hilltip Icestriker 600 TR Rafdrifinn kastdreifari fyrir dráttarvélar m/öflugum efnisskömmtunarbúnaði. Hilltip Snowstriker VP Fjölplógur fyrir pallbíla, minni vörubíla og jeppa. Fáanlegur í 185–240 cm breidd. Hilltip Snowstriker SP Snjótönn fyrir pallbíla, minni vörubíla og jeppa. Fáanleg í 165–240 cm breidd. Hilltip Fjölplógur MVP Fjölplógur fyrir ameríska pallbíla t.d. RAM 3500, GMC 3500 og FORD 350. Ein af megináherslum garðyrkjunnar snýr að því að hætta að binda beingreiðslur C (niðurgreiðsla á rafmagni) við pott heldur festa fjármagn til endurgreiðslu við 95%. Auglýst eftir umsóknum um jarðræktarstyrki og landgreiðslur Opið er fyrir rafrænar umsóknir í Afurð (www. afurd.is) fyrir jarðræktarstyrki og landgreiðslur fyrir árið 2023. Jarðræktarstyrkir Styrkhæf ræktun er ræktun grass, korntegunda til dýrafóðurs og manneldis, ræktun olíujurta, þar með talin ræktun jurta til framleiðslu á líf- dísil, enda sé hratið nýtt til fóðurs. Einnig ræktun grænfóðurs til beitar og uppskeru á ræktunarári. Beit búpenings telst ígildi uppskeru og því styrk- hæf, einnig nýting kornhálms og annarra jurta til uppræktunar jarðvegs í útiræktun grænmetis. Ræktun vetraryrkja sem sáð er um mitt sumar og endurræktun túna er tekin út á ræktunarári. Þau sem stofnuðu umsókn í júní sl. vegna fyrir- framgreiðslu vegna kornræktar geta nú farið inn Stjórnarráð Íslands Matvælaráðuneytið í umsóknina í Afurð og lokið skráningu hennar í samræmi við framkvæmdir á yfirstandandi ári. Fyrirframgreiðsla styrks dregst frá þeirri upphæð sem greidd verður í desember nk. Landgreiðslur Skilyrði fyrir landgreiðslum er uppskera til fóður- öflunar á ræktuðu landi sem umsækjanda er heimilt að nýta. Ef einungis hluti þess lands sem sótt er um styrk út á gefur uppskeru, skal skrá sérstaklega fjölda þeirra hektara. → Umsóknir berist á afurd.is Bændasamtökin telja þær kröfur sem gerðar hafa verið við samningaborðið aðeins endurspegla þær skyldur sem ríkisvaldið hefur þegar tekist á hendur með búvöru- lögum, markmiðum búvöru- samninga og samþykktrar landbúnaðarstefnu. Ljóst má vera að núverandi staða þar sem til að mynda framleiðsla hefur heldur dregist saman, nýliðun er erfið og álögur eru sífellt auknar er ekki gott veganesti til að ná markmiðum landbúnaðar- stefnunnar árið 2040. Því er aðgerða þörf strax á haustþingi og þar verða samningsaðilar bænda sem eru matvælaráðuneytið og fjármálaráðuneytið að tala fyrir aðgerðum í samræmi við það sem samþykkt hefur verið á Alþingi. Efndir fylgi orðum Það er mat BÍ að full þörf sé á sambærilegum aðgerðum á þessu ári eins og ráðist var í árið 2022 með sértækum stuðningi við landbúnaðinn (sprettsgreiðslur).“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.