Bændablaðið - 24.08.2023, Blaðsíða 64

Bændablaðið - 24.08.2023, Blaðsíða 64
64 Bændablaðið | Fimmtudagur 24. ágúst 2023 Árin færast hratt yfir og mið- öldrunin gengur vel. En svo byrjar að smella í öllum liðum og líkurnar á því að geta lesið inni- haldsupplýsingar gleraugna- laus eru hverfandi. Það þýðir að það er þýðingarlaust að þráast lengur við. Það þarf að borða meira salat. Hingað til hefur fullkominn skammtur af grænmeti sennilega verið paprika og sveppir með pepperóníinu á pitsur og súrar gúrkur á hamborgara. En nú er svo komið að það er bara ekki nóg og þá er eins gott að búa til salat fyrir snemmmiðaldra menn. Menn eins og mig. Til að ferskmiðaldra maður eins og sá sem þetta skrifar geti borðað salat sem aðalrétt þarf tvennt eða sennilega þrennt, alla vega tvennt og hálft: Sæmilega dressingu, smá prótein og þetta hálfa, pínulítið kolvetni – alla vega til að byrja með. Salatið getur verið nokkurn veginn hvað sem er en ágætis grunnur er laufsalat eins og rósasalat, Romain, Grand, kínakál eða Iceberg. Grænkál er svo líka svakalega hollt svo ekki sé minnst á spínatið. Tómatar og radísur eru líka mjög góð viðbót við grunninn. Svo má djassa salatið upp með því sem til er eða þykir sæmilegt á bragðið. Papríka, hvítkál, agúrka og allt þetta helsta er voða hollt og gott. Siggi majónes Trixið með salat fyrir byrjendur er að saxa það smátt. Þannig er enginn vandræðagangur með stór lauf og dressingin blandast vel í hvern munnbita. Salatlífið verður bara miklu hentugra til átu og bara betra þegar smátt er skorið. Talandi um dressingu þá er ákjósanlegt að hún innihaldi svolitla fitu svo hún hjúpi kálið og svo smá sýru til að vega upp á móti fitunni. Klassískt kombo er ólífuolía, edik og sinnepssletta þeytt eða hrist saman. Sinnepið hjálpar olíunni og edikinu að hanga saman þrátt fyrir að vera beinlínis olía og vatn. En í miðaldramanna-salati byggist dressingin í kringum gamla góða mæjónesið. Mæjónes er jú nokkurn veginn bara stöðug fitublanda. Er þó fullþykkt til að fara beint út í kálið og líka pínu ógirnilegt. Það er því ákjósanlegt að þynna mæjónesið nokkuð. Mátulega súran þynni er hægt að finna í til dæmis límónusafa en einnig er hægt að nota safann af súrum gúrkum, ólífum eða einhverju öðru sýrðu góðgæti. Smá salt og smá sinnep skaða heldur ekkert. Búrgeisar Til að fara ekki of bratt í salatliðið er gott að nýta það sem hinn snemmmiðaldra þekkir. Til dæmis með því að búa til salatskálar úr kunnuglegum réttum. Það er hægt að gera taco-salat með alls konar salatblöðum, tómötum og avókadó. Toppað með dressingu byggðri á sýrðum rjóma í staðinn fyrir mæjónesunni. En hið fullkomna miðaldramanna-salat er þó auðvitað ostborgarasalat. Svona förum við að: Grilla eða steikja hamborgara- platta, bræða yfir hann ost og láta taka sig á meðan salatið er undirbúið. Saxa niður salatblöð, lauk, tómata og góða súra gúrku. Hræra saman mæjónesi og safanum af súru gúrkunum, sirka í hlutföllunnum einn partur mæjó á móti einum parti af súrsafa. Þá hálfum parti af góðu amerísku gulu sinnepi. Smá salt og pipar eftir smekk. Skera borgarann í kubba og hræra út í laufin. Punkturinn yfir i-ið kemur svo með steiktum brauðteningum. Saxa franskbrauð eða jafnvel – hamborgarabrauð. Steikja brauðbitana upp úr klípu af smjöri við frekar miðlungshita. Þegar teningarnir eru byrjaðir að brúnast og verða stökkir er svo hægt að léttsteikja nokkur sesamfræ fyrir þá sem vilja Big- mac gæði á salatið. MATARKRÓKURINN Miðaldramanna-salat Með framtíðina fyrir sér Hann Greipur Guðni er hress og kátur níu ára strákur sem þykir skemmtilegt að kíkja á sveitabæi. Nafn: Greipur Guðni Hilmarsson. Aldur: 9 ára. Stjörnumerki: Hrútur. Búseta: Reykholt, Biskupstungum. Skóli: Bláskógaskóli. Skemmtilegast í skólanum: Frímínútur. Áhugamál: Fótbolti. Tómstundaiðkun: Kíkja á sveitabæi. Uppáhaldsdýrið: Ljón kom fyrst upp en íslenskt er geit. Uppáhaldsmatur: Hamborgari og grjónagrautur. Uppáhaldslag: Króatía og Finnland í Eurovision 2023. Uppáhaldslitur: Fjólublár. Uppáhaldsmynd: King Kong og Jurassic Park. Fyrsta minningin: Þegar ég hélt að brúnn blettur í sætinu á gröfunni hans pabba væri kúkur eftir að hann var stoppaður af löggunni fyrir hraðakstur. Hvað er það skemmtilegasta sem þú hefur gert: Fara til Tenerife og óvissuferð til Vestmannaeyja. ERFINGJAR LANDSINS Setja skal inn tölur frá 1–9, í eyðurn ar. Sama talan má ekki koma fyrir tvisvar í línu lárétt og lóð rétt - og heldur ekki innan hvers reits sem afmarkaður er af sverari lín um. SUDOKUÞRAUTIR Bændablaðsins Þung Þyngst Létt Miðlungs Við hvetjum sem flesta til að hafa samband ef ykkur langar að vera með! Hafið samband: sigrunpeturs@bondi.is Salat þarf ekki að vera vont. Allavega ekki alvont. Mynd / Hari Haraldur Jónasson haradlur@gmail.com Trixið með salat fyrir byrjendur er að saxa það smátt. Þannig er enginn vandræðagangur með stór lauf og dress- ingin blandast vel í hvern munnbita ...“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.