Bændablaðið - 24.08.2023, Qupperneq 55

Bændablaðið - 24.08.2023, Qupperneq 55
55Bændablaðið | Fimmtudagur 24. ágúst 2023 Nánari upplýsingar arborgir@arborgir.is, 482 4800 Eignarlóðir til sölu! Mosabraut 9 - 6.230 fm Mosabraut 11 - 5.710 fm Samliggjandi lóðir. Fallegt útsýni til Heklu, stutt í náttúru- perlur og á golfvöllin á Hellu. Mosabraut 9 - 6.230 fm s r t 11 - 5.710 f Samliggjandi lóðir. Fallegt útsýni til Heklu, stutt í náttúruperlur og á golfvöllinn á Hellu. Gott byggin armag húsa á lóð, hagstætt verð. á ari up lýsingar orgir@arborgir.is, . 482- 00 Hús fasteignasala, s. 497-1155 Snorri Sigurfinnsson, s. 864-8090 VEIÐISVÆÐI ÓSKAST Vegna mikilla eftirspurna þá köllum við eftir nýjum veiðisvæðum í flóru félagsins. Bæði stöðuvötn og rennandi vatn. Skoðum einnig veiðisvæði á afskektum stöðum. Veiðifélagið Fish Partner er í stöðugum vexti og leitast eftir fleiri samstarfsaðilum um land allt óháð fisktegund og tegund vatnasvæðis. Vinsamlegast hafið samband við Kristján í síma 898 3946 eða á netfangið kristjan@fishpartner.com. Hansen er stór­ tækur korn­ og fræframleiðandi, óðalseigandi og virkur í félags­ málum bænda á eynni. Hann kvaðst hafa lært og tileinkað sér mjög snemma að halda hlaðinu á bænum snyrtilegu, því það hefði meiri áhrif á líðanina en nokkurn mann óraði fyrir. Ástæðan fyrir því að hann héldi alltaf hlaðinu á bænum snyrtilegu væri meðal annars sú að það væri það þá fyrsta sem maður sér að morgni en ekki hrópandi kall á tiltekt eða verk sem er ólokið. Vildi Kofoed meina að það væri mikilvægur áhrifaþáttur til að hlúa að eigin sálufrið að vera laus við ákall vinnustaðarins, sem er jafnframt heimili, upp á hvern einasta morgun þegar farið er á fætur. Lífsspeki Thors Gunnars Kofoed er um margt til eftirbreytni og getur breytt hugarfar oft auðveldað lífið. Óneitanlega fylgja því margir kostir að búa nálægt vinnustaðnum, en aftur á móti geta því fylgt margar áskoranir því alltaf eru einhver verkefni ókláruð og ýmsu þarf að sinna. Til að fá frí verður maður að fara að heiman svo vélar, hús, girðingar og tún hætti að hrópa á athygli manns. Það er svo ótrúlega lýjandi að vera einhvern veginn aldrei búinn, ekki fyrr búinn með eitt verk að þá kallar það næsta. Jákvæðar og uppbyggilegar hugsanir alla daga er val. Það er þó hægara sagt en gert og enginn er búmaður nema barmi sér var máltæki sem var notað hér áður fyrr. Bændur þurfa að búa bæði að góðu úthaldi og seiglu í sínu starfi og hið íslenska viðhorf „þetta reddast“ hefur trúlega bjargað geðheilsu margra. Það var að minnsta kosti tilgáta Sigmundar Sigfússonar, geðlæknis á Akureyri, sem var frábær í sínu fagi og mikill mannvinur. Hann taldi þetta viðhorf hjálplega geðheilsu Íslendinga og með því tækist okkur yfirleitt að gleyma því slæma en halda frekar í tiltrú á betri tíma. Eitt er að halda hlaðinu hreinu en annað er að taka til í kollinum á sér. Þar, eins og á öðrum stórbúum, ægir öllu saman, allt frá gersemum til algers óþarfa. Hugurinn er nefnilega alveg stórmerkilegur, hann getur haldið manni uppteknum við neikvæðar hugsanir án útgöngu eða lausna. Það ágerist gjarnan þegar maður leggst út af að kvöldi, allt fer í gang og rússíbaninn fer af stað. Við þurfum að ákveða að vera bílstjórar í okkar eigin lífi, fara í „ökuskóla tilfinninganna“ eins og ég vil kalla það. Í þeim skóla þarf að læra að greina hugsanaóreiðu og gera æfingar. Til að mynda er gott að ímynda sér skúffu fulla af alls konar dóti og drasli sem þarfnast tiltektar en þar ægir öllu saman líkt og í kollinum þínum. Eins og þú gerir venjulega þá er skúffan opnuð, einn hlutur tekinn fram í einu og ákveðið hvað á að gera við hann. Á sama hátt tekur þú „eina hugsun“ og ákveður hvað þú ætlar að gera við hana, annaðhvort losa þig við hana sem þýðir að gleyma þessu, eða geyma áfram í skúffunni sem þýðir að þú ætlir ekki að vinna neitt meira með hana, bara geyma áfram eða eiga hana og gera að minningu. Á þennan hátt er hægt að vinna sig smám saman í gegnum tilfinningarússíbanann. Það skrýtna við þessa tiltekt er sú tilhneiging okkar til þess að eiga erfitt með að henda slæmum tilfinningum. Viljinn til þess að halda í þær er ótrúlega sterkur en jafnframt sársaukafullur. Í því felst ákveðin þráhyggja sem verður til þess eins að það er verið að spinna sterkan þráð sem erfitt er að rekja upp og hugsunin festist í kollinum. Sjálfsvinnan og tiltektin felst í því að láta af þessum neikvæðu hugsunum og þegar þær skjóta upp kollinum þá skal setja upp stöðvunarskyldumerkið og stoppa hugsun. Síðan þarf maður að velja hvort maður vilji hafa þessar hugsanir með í för eða skilja þær eftir í vegkantinum og halda áfram. Í þeirri vinnu þarf maður að vera hreinskilinn gagnvart eigin tilfinningum, reyna að skilja af hverju þær eru erfiðar og ákveða framtíð þeirra. Bílstjórinn ræður alltaf, þannig er það, en hann þarf að fylgja umferðarreglunum í ökuskóla tilfinninganna, því þá er lífsleiðin bæði auðveldari og öruggari. Halla Eiríksdóttir, stjórnarmaður BÍ, hjúkrunarfræðingur og sauðfjárbóndi. Bændageð: Tifinningatiltekt Halla Eiríksdóttir. AF VETTVANGI BÆNDASAMTAKANNA REYKJAVÍK AKUREYRI 590 5100 klettur.is Lyftu á gæðum „Ég er þeirrar skoðunar að lífið sé að öllu jöfnu gott, byrja daginn með bros á vör geng út í daginn og hef hlaðið snyrtilegt því það hjálpar mér að halda í þessa jákvæðni í lífinu.“ Þannig komst Thor Gunnar Kofoed, stórbóndi í Bornholm í Danmörku, að orði þegar hann var að kynna búskaparhætti sína fyrir austfirskum bændum.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.