Bændablaðið - 19.10.2023, Side 39
39Bændablaðið | Fimmtudagur 19. október 2023
Tangarhöfða 1 - 110 Reykjavík - 551-5464
www.wendel.is - wendel@wendel.is
HILLTIP
VETRARBÚNAÐUR
____________________
SNJÓTENNUR, FJÖLPLÓGAR,
SALT - OG SANDDREIFARAR
Fyrsta djásnið selt
Nýlega dró svo til tíðinda
í sögu félagsins þar sem
Hraunar frá Sauðárkróki,
fyrsta djásnið, var seldur.
Blendnar tilfinningar
gerðu vart við sig hjá
Djásnakonum, gleði en
líka ákveðinn tregi að sjá á
bak hestinum, en Hraunar
er í góðum höndum og
framtíðin spennandi.
„Það kom á daginn að
tarotlögn Hraunars er
að rætast, allt hefur sinn
tíma,“ segir Margrét.
Valnefnd Djásnanna hefur þegar
hafið leit að nýjum hesti, þeim þriðja
sem verður í eigu félagskvenna, og
verið er að skoða Worldfeng enn og
aftur og rifja upp kynbótasýningar
sumarsins. Margrét segir að það séu
margir spennandi folar sem koma til
greina, svo er spurning hvort þeir eru
til sölu.
Hestarnir eru valdir gaumgæfilega
og hefur félagið eins og áður segir
sett sér nokkur viðmið þegar kemur
að vali á stóðhestum. „Við leitum að
stóðhestsefni sem við sjálfar myndum
vilja nýta í okkar ræktun, að hann
gæti verið faðir reiðhesta okkar í
framtíðinni. Þó nokkrar innan okkar
raða hafa einmitt notað Hraunar til
ræktunar og afkvæmi undan honum
virðast lofa mjög góðu,“ segir
Margrét.
Ásókn í félagið
Ákveðið var að bjóða til sölu 60 hluti
í fyrsta stóðhestinum sem keyptur var.
„Það var auðvitað svolítið bratt að
fara af stað með þetta og selja alla 60
hlutina en núna er ásókn í að komast í
félagið. Þær sem þegar eiga hest hafa
forgang með að kaupa hlut í næsta
hesti, svo hópurinn er ekkert endilega
að þenjast mikið út.
En stundum vilja einhverjar
selja hlut og þá er einhver hreyfing
á félagatalinu en hún er ekki mikil,“
segir Margrét. Hlutirnir í Hrafnari
eru einnig 60 og það virðist vera tala
sem gengur vel upp að halda utan um
og selja. Þó það sé ekki ófrávíkjanleg
regla að konur komi að öllu sem
varðar hesta Djásnanna þá hefur það
æxlast svo að konur hafa hingað til
verið í aðalhlutverki í tamningu og
þjálfun bæði Hraunars og Hrafnars
hvernig sem framhaldið verður.
Vonin kemur manni langt
Margrét segir að þó gleðin sé í
fyrirrúmi þá sé þetta ekkert bara grín.
„Við ætlum okkur að gera sem mest
úr þeim hestum sem við eigum. Við
vöndum valið og fylgjum þeim vel
eftir, en eins og aðrir sem standa í
hrossarækt þá rekumst við á alls konar
óvæntar hindranir, það gengur ekkert
endilega allt upp eins og maður ætlar.
Skemmtilegast er að stúdera og spá í
framtíðinni áður en farið er að temja
hrossin, vonin kemur manni svo langt
og veitir hugmyndafluginu vængi.
Svo bara fer sem fer,“ segir Margrét.
Að lokum segir Margrét
að það að skoða ættir hrossa í
WorldFeng sé góð afþreying.
„Það er afskaplega gaman að
skoða ættir hrossa og velta fyrir sér
eiginleikum sem erfast. Mikilvægt er
að þakka þeim sem hafa haft elju til að
rækta hross á Íslandi í gegnum tíðina
og ná fram kynbótum af hugsjón. Við
Djásnakonur erum afar þakklátar og
erum spenntar að halda áfram að
rækta hross og eiga frambærilega
stóðhesta. Fjörið er rétt að byrja.
Það virðist fara vel saman að nýta
veraldlegar leiðir og andlegar til að
leggja línur í ræktunarstarfi, það er
allavega mjög skemmtilegt.“
Hrafnar frá Hrafnshóli, knapi Birta Ingadóttir.
HRAUNAR
Fyrir norðan í sumar með hryssur í hólfi
Hraunar sælunnar naut, frelsinu feginn.
Nú stikar hann stórum á vatnsbretti og víbragólfi
í vor mun hann sýna mátt sinn og megin.
HRAFNAR
Í Rangársþings ranni vex allt og dafnar,
reistur er Oddhóll og grasið allt fanngrænt.
Fyrir Djásnirnar Diddi, fóstrar nú Hrafnar,
dálítið efins um að tarot sé hestvænt.
Höf. Áslaug Sólbráð