Bændablaðið - 14.12.2023, Blaðsíða 8
8 Bændablaðið | Fimmtudagur 14. desember 2023
FRÉTTIR
VERKLEG KENNSLA
SKRÁNING HAFIN OG Á GAMLA VERÐINU
Í REYKJAVÍK, AKUREYRI,
OG Á SAUÐÁRKRÓKI
Skráning á aktu.is
MEIRAPRÓF Í FJARFUNDI
HEFST 11. JANÚAR
MEIRAPRÓF
ALLIR RÉTTINDAFLOKKAR
FJARKENNSLA
2
HELGAR
3
HELGAR
Færri hryssur í blóðtöku
– Yfirlit um starfsemi Ísteka árið 2023
M agn blóðs sem safnað var í
blóðtöku á fylfullum hryssum stóð
í stað á milli áranna 2 0 2 2 og 2 0 2 3 .
Fjöldi blóðtökuhryssa á Íslandi í
ár var 4.088 og hefur þeim fækkað
örlítið frá því í fyrra þegar þær voru
4.141 talsins. Starfsstöðvarnar voru
níutíu talsins líkt og í fyrra, að því
er fram kemur í yfirliti frá Ísteka
ehf. um starfsemi fyrirtækisins á
blóðtökutímabilinu í ár.
Þar kemur fram að skilaverð
blóðs úr meðalhryssu hafi verið um
112.000 kr. án vsk. sem er hækkun
frá því í fyrra þegar það var 95.000
krónur. Að meðaltali fóru hryssur
5,1 sinni í blóðtöku en alls var tekið
blóð í ríflega 24.000 skipti.
Þar er jafnframt sagt að hlutfall
úrvalsgóðra hryssna fari stækkandi,
en skilgreining þeirra eru þær sem
eru tækar í blóðtöku sjö og átta
sinnum. „Hlutfall þeirra var 54,7%
á nýliðnu tímabili en 47,7% að
meðaltali á viðmiðunartímabilinu.
Bændur stunda kröftuga framþróun
í þessum búskap sem lýtur jú sömu
lögmálum og annar búskapur,
afurðir hámarkaðar með sem
fæstum gripum. Heilbrigði þeirra
og heilsa spilar þar lykilhlutverk.
Frjósemi hryssnanna í ár var yfir
85% sem er töluvert betri en sést
almennt í hrossarækt ( 70–80% ) .
Blóðnytjabúskapurinn kemur einnig
vel út í flestum öðrum samanburði,
svo sem í almennu heilsufari
stofnsins og í þroska folaldanna.“
E ftirlit h aft með starfseminni
Bæði dýralæknar og starfsmenn Ísteka
hafa eftirlit með öllum blóðtökum.
Að öðru eftirliti segir í skýrslunni
að eftirlitsdýralæknir á vegum Ísteka
hafi heimsótt um 40% starfsstöðva
á tímabilinu auk heimsókna að vetri
til. Þá hafi eftirlitsaðilar á vegum
erlendra kaupenda á lyfjaefni Ísteka
heimsótt þriðjung bænda. Einnig
hafði Matvælastofnun eftirlit með
starfseminni.
„Blóðtaka fer fram 12 dagsparta
ár hvert hjá hverjum bónda og
byggt á ofangreindum tölum um
eftirlitstíðni hefur meðalbóndinn mátt
eiga von á um tveimur formlegum
eftirlitsheimsóknum í ár á þessu 12
daga tímabili,“ segir í skýrslunni.
V innumaður fé kk t iltal
Samkvæmt reglugerð nr. 90/ 2022
um blóðtöku úr fylfullum hryssum
sem fylgt var í sumar ber að skrá öll
frávik sem verða við blóðtöku, þar
með talið tilvik um áberandi ótta eða
streitu hjá merunum.
Skráð frávik voru 144 talsins
samkvæmt skýrslunni og voru
endurtekin frávik skráð hjá átján
hryssum, fjórtán með tvö frávik og
fjórar með þrjú frávik. „Ráðleggingar
Ísteka eru að eigendur hryssna, þar
sem skráð eru frávik þrisvar sinnum
eða oftar, þjálfi hryssuna betur áður
en hún er tekin til blóðtöku aftur eða
finni henni nýtt framtíðarhlutverk.
Fyrir mistök gáfu 2 hryssur blóð
9 sinnum. Þeim varð ekki meint
af því.“ Þá var eitt tilvik skráð
sem „ofbeiting valds“ og varðaði
það ungan vinnumann sem fékk í
kjölfarið tiltal að því er fram kemur í
skýrslunni. „Hrossum var ekki hætta
búin af frávikinu en Ísteka lítur það
þó alvarlegum augum og brýnir fyrir
öllum að höfuðáhersla sé ávallt lögð
á virðingu og nærgætni í umgengni
við hryssurnar.“
Sex h ry ssur drápu st
Sex hryssur drápust á blóðtöku-
tímabilinu samkvæmt skýrslu Ísteka
en þar er fullyrt að ekki væri hægt
að tengja dauðsföllin við blóðtöku.
Þrjár hryssur voru krufnar
og niðurstaða þeirra leiddi í ljós
að ein hafði drepist úr hrossasótt,
en „í hinum tveimur tilvikunum
fékkst ekki skýring á dánarorsök
og þar með ekki hvort hún tengdist
blóðtöku“.
Ellefu slys á hrossum voru
skráð á blóðtökutímabilinu og
samkvæmt skýrslunni tengdust tvö
þeirra blóðtöku. Sautján veikindi
voru tilkynnt og tengdust níu þeirra
blóðtöku viðkomandi grips.
„Í öllum tilfellum jafnaði hryssa
sig fljótt og vel, ýmist með eða án
aðkomu dýralæknis.“ Í skýrslunni
má einnig finna kafla um hryssur á
vegum Ísteka.
Þar kemur fram að fyrirtækið
hafi haldið um 3 00 hryssum í
blóðnytjum í ár í fimm hópum á
þremur stöðum á landinu og telji það
rífleg 6% af heildarfjölda hryssna.
„Meðalhryssan í stóðum Ísteka gaf
5,9 einingar og 6,6 sé eingöngu
miðað við fyljaðar hryssur. Þetta er
nokkuð yfir landsmeðaltalinu sem
var [ ...] 5,1 og 6,1 í sömu röð.“
/ ghp
F j ö ld i b ló ð t ö k uh ryssa á Í sland i í á r v ar 4 .0 8 8 . A ð m eð alt ali fó ru h ryssur 5 , 1
sinni í blóðtöku en alls var tekið blóð í ríflega .000 skipti. Mynd /g h p
Eyja- og Miklaholtshreppur:
Þurrkun á korni gekk vel
– 70 tonn þurrkuð í þurrkstöð sem bændur á fimm jörðum keyptu
F yrsta starfsár G ullkorn þ urrkun
ehf. byrj aði með sóma og tókst
nýj um eigendum vel að að læ ra á
tæ kj abúnaðinn.
Þetta segir Karen Björg
G estsdóttir, framkvæmdastjóri
félagsins og bóndi á Kaldárbakka
í Kolbeinsstaðahreppi. Á bak við
fjárfestinguna standa jafnframt
bændur frá Hundastapa á Mýrum,
Brúarhrauni og Snorrastöðum
í Kolbeinsstaðahreppi, ásamt
Stakkhamri í Eyja- og Mikla-
holtshreppi.
Sjötíu tonn af korni fóru í gegnum
þurrkstöðina í haust, en Karen
segir það vel undir afkastagetu
þurrkarans, sem er átján rúmmetrar
að stærð. Þurrkstöðin eigi að ráða
við talsvert magn þó Karen nefni
ekki nákvæma tölu. T il að byrja með
standi aðallega til að þurrka bygg, en
svo megi skoða aðrar korntegundir.
Lélegt kornár kom í veg fyrir
fulla nýtingu á þurrkstöðinni, en
margir bændur hafi ýmist ekki getað
sett niður sáðkorn eða ekki fengið
uppskeru að neinu magni. Að þessu
sinni hafi einungis þeir bændur sem
stóðu á bak við kaupin nýtt stöðina
en til standi að hún verði nýtt til að
þjónusta fleiri bændur á svæðinu.
Karen telur mikilvægt að hafa fleiri
valkosti en að sýra allt bygg.
G eymsluplássið við stöðina dugði
vel fyrir það korn sem þurrkað var
í haust. Með kaupum á stöðinni
fylgdi bíll til kornflutninga, sem opni
möguleika á að blása korninu beint
upp í síló heima á bæjunum. Þá ætli
bændurnir að valsa korn sem verði
sett í stórsekki. Stefnt sé að því að
stöðin standi undir kostnaði sem allra
fyrst og ætli allir eigendurnir að efla
eigin kornrækt. Sárafá vandamál hafi
komið upp og verkefnalistinn fyrir
næsta haust sé ekki langur. / Á L
Karen Björg estsdóttir framkv mdastjóri ullkorns þurrkunar ehf.
Þ urrk st ö ð in. Myndir / Á L
Niðurskurður á Stórhóli:
Ásættanlegar
bótagreiðslur
S korið var niður fé á bæ num
S tórhóli í Húnaþ ingi vestra á
fimmtudaginn, vegna riðutilfellis
sem þ ar greindist í haust.
Hafa bændur undirritað
samning við matvælaráðuneytið
um bætur, þar sem gert er ráð fyrir
ræktunaráætlun á nýjum stofni með
verndandi arfgerðir gegn riðu.
Rúmlega hundrað kindur voru
arfgerðagreindar á bænum með
verndandi eða mögulega verndandi
arfgerðir gegn riðusmiti og var því
hlíft við niðurskurðinum, samkvæmt
nýrri nálgun í baráttunni gegn
riðuveiki í sauðfé.
H æ rri afurðatjónsb æ tur
Að sögn G arðars Vals G íslasonar,
bónda á Stórhóli, var sett upp
ræktunaráætlun í samstarfi við
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins
sem var skilyrði fyrir því að hægt
væri að hlífa þessum kindum
og byggja upp nýjan stofn með
verndandi arfgerð. „Við erum sátt við
niðurstöðuna, það er mikill munur á
samtalinu við ráðuneytið nú og þegar
við lentum í riðu í desember 2006
þegar allri hjörðinni var fargað, sem
var um 550 fjár.
Við fáum nú afurðatjónsbætur
til lengri tíma en bara tveggja ára
til að standa straum af uppbyggingu
á nýjum stofni á meðan það ferli
er í gangi, en þær bætur lækka í
samræmi við stærri bústofn og aukna
framleiðslu á bænum.“
H eimilt að aflé tta
einang run eftir tv ö ár
Á meðan uppbyggingin stendur yfir
eru í gildi takmarkanir, til að mynda
þarf allt fé sem hlíft var undan
niðurskurði að vera innan fjárheldra
girðinga á bænum í allt að sjö ár frá
niðurskurði. Enda er skylt að rækta
upp hjörðina á þessum sjö árum með
það að markmiði að hún verði ónæm
fyrir riðu.
Þrátt fyrir sjö ára takmörkunartíma
er Matvælastofnun heimilt að aflétta
einangrun þegar 75 prósent hluti
hjarðarinnar ber hina verndandi ARR/
ARR-arfgerð og afgangurinn er með
verndandi samsætu og mögulega
verndandi samsætu í arfgerðinni.
Þó aldrei fyrr en að tveimur árum
liðnum frá niðurskurði og að önnur
skilyrði hafi verið uppfyllt.
Bændur þurfa að standa skil á
upplýsingagjöf til Matvælastofnunar
og leyfa sýnatökur á bænum.
Veittur er stuðningur við kaup á fé
með verndandi arfgerð og á meðan
uppbyggingu stendur.
Vegna hinnar nýju nálgunar er
slakað á kröfum um tiltekin atriði
hreinsunar og niðurrifs í fjárhúsum,
þó bændurnir þurfi að hlíta ströngum
reglum varðandi þrif og sótthreinsun.
/ s m h
aríanna va agnarsdóttir og
arðar alur íslason á Stórhóli.