Bændablaðið - 14.12.2023, Blaðsíða 14
14 Bændablaðið | Fimmtudagur 14. desember 2023
FRÉTTIR
Aðgerðaráætlun:
Hlutfall af lífrænt vottuðu land-
búnaðarlandi verði 10% árið 2040
– Formaður framleiðenda í lífrænum búskap fagnar áætlun stjórnvalda en þykir tíminn of langur til að ná markmiðum
G efin hafa verið út drög að fyrstu
íslensku aðgerðaráæ tluninni til
eflingar lífræ nnar matvæ la-
framleiðslu.
Íslensk stjórnvöld hafa fram
til þessa ekki sett sér markmið
um hlutfall lífræns vottaðs lands
af landbúnaðarlandi á Íslandi, en
með útgefinni aðgerðaráætlun er
nú stefnt að því sem meginmark-
miði að hlutfallið verði tíu prósent
árið 2040.
Þetta hlutfall hefur á undan-
förnum árum verið metið vel undir
einu prósenti á Íslandi. Evrópu-
sambandið hefur í tengslum við
landbúnaðarstefnu sína, Farm
to Fork, sett sér markmið um að
hlutfall af lífrænu landbúnaðarlandi
í löndum sambandsins verði komið
í 25 prósent árið 203 0. Þetta hlutfall
var talið vera 10 prósent árið 2021.
Stuðning saðg erðir v ið
framleiðendur frá 2 0 2 7
Aðgerðaráætlunin var unnin í
matvælaráðuneytinu en hún byggir
á tillögu U mhverfisráðgjafar
Íslands sem var falið að vinna
að undirbúningi áætlunarinnar í
september 2022. Hún samanstendur
af 14 tölusettum aðgerðum sem
eru á ábyrgð matvælaráðuneytisins,
auk átta annarra aðgerða sem
heyra undir önnur ráðuneyti. Hún
liggur nú í Samráðsgátt stjórnvalda
til umsagnar.
T ímarammi aðgerða sem miða
að beinum stuðningi við fram-
leiðendur er í flestum tilvikum frá
árinu 2027, eftir að endurskoðað
stuðningsfyrirkomulag við land-
búnað hefur tekur gildi, með vísan
til íslensku landbúnaðarstefnunnar.
Ski lv irkar i aðlögu narstuðningu r
y fir lengr i tíma
Fyrsta aðgerðin miðar að því að
endurskoða núverandi aðlögunar-
stuðning í þeim tilgangi að gera
hann skilvirkari og lengja tímabilið.
Í stað núverandi aðlögunarstyrkja
verði boðið upp á fimm til sjö ára
aðlögunarstuðning. Styrkir verða
einnig veittir yfir tveggja til þriggja
ára tímabil til að mæta kostnaði nýrra
framleiðenda vegna lögbundinnar
aðlögunar að lífrænni framleiðslu
undir eftirliti vottunarstofu.
Meðal annarra aðgerða má nefna
að kannað verður sérstaklega að
lífrænum framleiðendum verði
greitt sérstakt álag á almennar
stuðningsgreiðslur, eftir aðlögunar-
tímabil, að framleiðendum verði
boðnir sérstakir fjárfestinga- og
tækjastyrkir, afurðastöðvum verði
boðnir sérstakir styrkir til að mæta
auknum kostnaði og að tryggja
verði að gerðar verði nauðsynlegar
greiningar á möguleikum notkunar
á lífræns efnis til áburðar- og
fóðurgerðar.
G ert er ráð fyrir að aðgerðar-
áætlunin verði endurskoðuð eigi
sjaldnar en á fimm ára fresti, í
fyrsta skiptið ekki seinna en 1.
janúar 2029.
Í sland er eftirbát ur
annarra þj óða
Eygló Björk Ó lafsdóttir er formaður
VOR ( Verndun og ræktun ) – félag
um lífræna ræktun og framleiðslu.
Hún segir það mjög ánægjulegt
að búið sé að leggja fram þessi
drög að fyrstu aðgerðaráætlun
hér á landi sem snýr að lífrænni
matvælaframleiðslu.
„Þetta er þýðingarmikið skref
fyrir alla. Ísland er eftirbátur annarra
þjóða í umfangi lífræns vottaðs
landbúnaðarlands, það hefur sýnt
sig í öðrum löndum að markmið
og aðgerðaráætlun stjórnvalda hefur
hvað mest áhrif á vöx t og framgang á
þessu sviði. VOR hefur oft bent á að
það eru margir sem þurfa að koma
að þessu verkefni, það þarf aðgerðir
frá ýmsum hliðum.
Drögin taka á helstu þáttum
sem þurfa að vera til staðar, það
er endurskoðun á styrkjakerfinu,
markaðsstarfi, leiðbeiningar og
annar stuðningur við framleiðendur,
sem og fræðslumál sem reyndar
heyra undir annað ráðuneyti en eru
einnig mjög mikilvæg undirstaða
fyrir nýliðun. Af þeim 14
aðgerðum sem þarna eru tilteknar
er fjármögnun þó ekki alveg skýr
sem væntanlega er í ljósi þess að
nýir búvörusamningar munu líta
dagsins ljós árið 2027. Margir gera
þær væntingar að þeir muni losa um
ákveðna stífni í núverandi kerfi og
endurspegli ný viðfangsefni á sviði
landbúnaðar. VOR mun leggja
áherslu á að aðgerðaráætlunin,
þegar hún liggur fyrir endanlega,
komi sem fyrst til framkvæmda,“
segir Eygló.
O f rú mur tími
Eygló telur að það sé heldur
rúmur tími, að setja markið á að
þessi tíu prósent náist ekki fyrr
en árið 2040. „Evrópusambandið
er í tíu prósentum í dag en okkur
hefur fundist að það ætti að vera
raunhæft fyrir Ísland að ná þessu
markmiði á 10 árum. Það er fullt
tilefni til að hefja skipulagða vinnu
í þá veru að gera Ísland meira
gildandi í lífrænni framleiðslu með
tilheyrandi tækifærum fyrir íslenska
bændur um leið og áhrif á umhverfi
og lýðheilsu eru mjög jákvæð.“/ s m h
E ygló Bj ö rk Ó lafsd ó t t ir.
Kaupfélag Skagfirðinga:
Þungur rekstur sláturhúsa
Í byrj un desember tók S igurður
B j arni R afnsson til starfa sem
sláturhússtj óri hj á K aup fé lagi
S kagfirðinga ( K S ) .
U m nýja stöðu er að ræða innan
KS sem varð til eftir að Ágúst
Andrésson lét af störfum sem
forstöðumaður kjötafurðasviðs, eftir
27 ára starfsaldur þar innanbúðar.
„Ég er mjög ánægður yfir því að
vera kominn aftur til Kaupfélags
Skagfirðinga, þetta er eins og að
koma aftur heim eftir gott sumarfrí.
Það að fá tækfæri til að koma aftur
til starfa við kjötafurðastöðina var
vissulega áskorun sem erfitt er að
segja nei við, ég var búinn að vera
framleiðslustjóri hér í 18 ár og þekki
nú innviðina nokkuð vel. Nú kem
ég aftur ferskur til starfa og hlakka
til að takast á við þau verkefni sem
bíða,“ segir Sigurður.
Sé r um dagl egan reks tur
á Sauðárkr óki
Sigurður segir að hann muni sjá um
allt sem viðkemur daglegri stjórnun
í sláturhúsinu á Sauðárkróki og svo
um öll samskipti við Sláturhús
Kaupfélags Vestur-Húnvetninga á
Hvammstanga, sem er í helmingseigu
KS. Stórgripasláturhúsið á Hellu,
sem einnig er í eigu KS, verður
undir stjórn kjötvinnslunnar Esju
gæðafæðis, sem er dótturfyrirtæki
KS. „Með nýjum mönnum verða
vissulega einhverjar breytingar og
vissulega komum við til með að
endurskoða með hvaða hætti það
verður, en enn sem komið er hafa
ekki verið teknar neinar ákvarðanir
hvernig við ætlum að standa að þessu
en stefnan er að þjónusta bændur og
alla okkar viðskiptamenn eins vel
og hægt er.“
M ögu leikar opn ast með v innslu
og s ölu h liðarafurða
Spurður um rekstrarskilyrði og
-afkomu sláturhúsa í dag, segir
Sigurður að þótt staðan sé ekki
björt sem stendur séu möguleikar í
augsýn. „Rekstrarumhverfi slátur-
húsa á Íslandi er verulega þungt og
við verðum að leita allra leiða til að
ná að hagræða eins og hægt er.
Ég er sannfærður um að með
samvinnu um úrvinnslu og sölu á
öllum hliðarafurðum sem fellur til
í landinu þá opnist möguleikar til
hagræðingar og bara það að geta
selt vörurnar í stað þess að borga
fyrir förgun, þar getum við gert
betur í krafti stærðarinnar og með
því er hugsanlega hægt að bæta
rekstrarafkomu sláturhúsa.
Það er því miður svo að sauðfé
heldur áfram að fækka og allt útlit
fyrir að því fækki enn frekar og
við verðum að bregðast við því
og leita leiða til að gera slátrun
á eins hagkvæman hátt og ef það
þýðir fækkun á sláturhúsum þá
er það skylda okkar að skoða alla
möguleika sem eru í boði þar en
gæta þess að þjónustan við bændur
og aðra viðskiptamenn verði ávallt
eins góð og kostur er.
Það er klárlega fullt af krefjandi
verkefnum fram undan. það þarf að
velta við fullt af steinum, líta í öll
horn, skoða alla möguleika hvar er
hægt að gera betur svo við getum
skilað af okkur betri afurðum og
afkomu.“ / s m h
Sigurð ur Bj arni R afnsson.
Sam k v æ m t að gerð ará æ t luninni á að k anna sé rst ak ar st uð ningsgreið slur,
fj á rfest inga- og t æ k j ast yrk i fyrir lí fræ na fram leið end ur.
nú fáanleg
á netinu og í bókabúðum
panta á
www.saltforlag.is
C.S. LEWIS