Bændablaðið - 14.12.2023, Qupperneq 16
16 Bændablaðið | Fimmtudagur 14. desember 2023
U mræ ða um hvali og hvalveiðar
fór varla framhj á nokkrum
manni síðastliðið sumar og snerist
að hluta til um hvort við æ ttum
að veiða hvali eða ekki.
U mræðan var
að mestu á
t i l f i n n i n g a -
legum nótum
og snerist um
hvernig hvalir
væru veiddir
og þá hvort þær
væru mannúð-
legar eða ekki.
Hvergi komu
fram, svo greinarhöfundi sé kunnugt
um, sæmilegar upplýsingar um
stöðu hvalastofna við Ísland eða
í Norður-Atlantshafi. T il að bæta
úr því fengum við G uðjón Má
Sigurðsson, doktor í sjárvarlíffræði
og sérfræðing í hvalarannsóknum
hjá Hafrannsóknastofnun, í viðtal.
H elstu h v alasto fnar v ið Í sland
Hvalir skiptast í tvær tegundir,
tannhvali annars vegar og
skíðishvali hins vegar. Skíðishvalir
sía sjóinn með skíðum sínum og
nærast á dýrasvifi sem og smærri
tegundum fiska, s.s. síli og loðnu, en
þar slæðast einnig með stærri fiskar.
T annhvalir nýta tennurnar til
veiða sem eru aðallega ýmsar
tegundir fiska, smokkfiska og
kolkrabba, og sumir þeirra, s.s.
háhyrningar, veiða aðra hvali og
seli. Steypireyður er langstærsta
dýr jarðar og vegur allt að 200
tonnum. Dýrið verður allt að 100
ára og kynþroski verður um 15 ára
aldur. Aðalfæðan eru svifdýr ýmiss
konar og fæðuþörf dagsins er um 4
tonn. Aðrir helstu skíðishvalir við
landið eru langreyður, hnúfubakur
og hrefna. Hafrannsóknastofnun
gefur út veiðiráðgjöf á hrefnu og
langreyði. Langreyðum er að fjölga
en hrefnu hefur heldur fækkað
við landið og er líkleg skýring
að fæðustofnar hennar, einkum
sandsíli, hafa dregist saman við
Ísland en á sama tíma hefur þeim
fjölgað við Jan Mayen.
Helstu tannhvalir við landið
eru búrhvalur, háhyrningar,
andanefja, hnísa, grindhvalur og
höfrungategundirnar hnýðingur og
leiftur. Búrhvalurinn er stærstur
og heldur sig mest í úthafinu en af
einhverjum ástæðum er hann ein
algengasta tegund hvalreka, það
er að segja að hann reki dauður að
ströndum landsins.
Staða flestra h v alasto fna er g óð
Meðal umhverfisverndarsamtaka,
einkum erlendis, er talað um að
hvalir séu í útrýmingarhættu. En hver
er staða þeirra tegunda sem halda
sig við Ísland? ,,Það er bara hægt að
segja að þeir séu allir í ágætu standi,
jafnvel mjög góðu ástandi. Flestir
hvalastofnar hafa stækkað mjög
mikið síðan við byrjuðum að telja
þá fyrir um það bil 3 5 árum. Sumir
hvalastofnar hafa margfaldast, eins
og hnúfubakurinn.
Það er helst steypireyðurinn sem
hefur ekki alveg tekið við sér. Hann
var veiddur ansi harkalega niður en
hann er mjög langlífur og fjölgar
sér hægt. Það tekur bara tíma að
hann nái sér upp í fyrri styrk,“ segir
G uðjón Már.
R annsók nir á h v ölum
Farið er í hvalatalningar á átta ára
fresti að sumarlagi til að leggja mat
á stofnstærð og útbreiðslu en lítið
er vitað um útbreiðslu á veturna.
Þá hefur verið reynt að meta
fæðusamsetningu hvala með því að
ná lífsýni úr húð þeirra.
Með því er unnt að greina hvað
dýrið hefur verið að éta síðustu
mánuði. Veiðar Hvals hf. á langreyð
hafa veitt sérfræðingum aðgang að
magasýnum til að skoða samsetningu
fæðu en einnig er fæðuval hrefnu
þekkt frá fyrri rannsóknum. Minna
er vitað um fæðusamsetningu þeirra
hvala sem ekki eru veiddir, svo sem
hnúfubaks, sem fjölgað hefur mikið
við Ísland
Aldursgreining tannhvala fer fram
með því að skoða tennur þeirra en
aldur hjá skíðishvölum er metinn
með því að telja aldurshringi í
eyrnamergi. ,,Í framtíðinni verður
vonandi hægt að fylgjast betur með
hvölum, til dæmis með því að telja þá
úr drónum og að skjóta í þá merkjum
sem senda staðsetningu og aðrar
upplýsingar til gervihnatta,“ segir
G uðjón Már.
V eiðar á h v ölum
Flestir hvalastofnar við Ísland
myndu þola veiðar út frá öllum mæli-
kvörðum. Hafrannsóknastofnun
gefur út veiðiraðgjöf á hrefnu
og langreyð sem er mjög varkár,
eða innan við 0,5% af stofnstærð.
Alþjóðahvalveiðiráðið fer síðan
yfir ráðgjöfina en þar situr fólk sem
er bæði með og á móti hvalveiðum.
,,Hvalveiðar Íslendinga eru
sjálfbærar og hafa engin áhrif á
stofnstærð þeirra hvalategunda sem
veiddar eru við landið. Flestir aðrir
hvalastofnar eru stórir og myndu
þola hóflegar veiðar ef vilji væri
fyrir slíku,“ segir G uðjón Már.
H nú fub ak ur o g lo ðnuv eiðar
Hnúfubakur hefur fjölgað sér mikið
við landið. Í fyrstu talningu, fyrir
um 3 5 árum, voru þeir um 1.000 en
nú eru þeir einhvers staðar á milli
10–15.000 talsins. Þeim hefur því
fjölgað gríðarlega.
Í fyrstu voru þeir aðallega
á sumrin á loðnuslóð norður
af landinu en nú halda þeir
til hér stóran hluta ársins og
fylgja loðnugöngu suður með
austurströndinni og vestur um og
inn í Breiðafjörð á veturna.
Sjómenn hafa haldið því fram
að hnúfubakur éti gríðarlegt
magn af loðnu og sé einn áhrifa-
valdur minnkandi loðnugengdar
við landið.
Hvað segir G uðjón Már um
það? ,,Það er erfitt að fullyrða um
það. Við eigum magasýni úr hrefnu
og langreyð en ekki úr hnúfubak.
Við getum því ekki sagt mikið um
hvað hann er að éta, en við vitum
að hann fylgir loðnunni. Nýlega
var birt grein þar sem heildarát
sjávarspendýra í Norður-Atlantshafi
er metið 13 milljónir tonna á ári.
Þar af er áætlað að hnúfubakar
við Ísland séu að éta rúmlega 1,3
milljónir tonna. Það er áreiðanlega
töluverður hluti þess loðna enda
fylgir hnúfubakurinn loðnunni. En
við höfum einfaldlega ekki gögn til
að fullyrða neitt meira um þetta. T il
þess vantar rannsóknir.“
E n h v ernig enda h v alir líf sitt?
Í ljósi umræðu um ómannúðlegt
dráp hvalveiðimanna á hval, er
eitthvað vitað um hvernig hvalir
enda líf sitt? ,,Nei, það er ekki
mikið vitað um það. En því eldri
sem þeir verða eru þeir viðkvæmari
fyrir sýkingum og sjúkdómum og
á endanum geta þeir ekki étið eða
andað og drepast þannig. Það er
líka þannig að þegar þeir eru orðnir
veikburða þá ráðast háhyrningar
eða hákarlar á þá og drepa.
Hákarlategundir hér við land
eru ekki mikið þekktar af því að
drepa, mun frekar af því að éta
hræ. Háhyrningar eru aftur á móti
þekktir af því að fara um í hópum
og drepa hvali, einkum smáhveli og
seli. Það virðist vera að sumir hópar
háhyrninga veiði frekar hvali og
seli en aðrir hópar séu frekar á eftir
síld og öðrum uppsjávarfiskum.
En hér við Ísland eru þeir meiri
tækifærissinnar og éta bæði fisk
og sjávarspendýr.“
Sig urg eir B ry njar Kristg eirsso n,
b ú f r æ ð i n gu r o g f r a m k v æ m d a s t j ó r i
V i n n s l u s t ö ð v a r i n n a r í
V e s t m a n n a e y j u m .
Hvalastofnar við Ísland eru í góðu ástandi
– Guðjón Már Sigurðsson, hvalasérfræðingur hjá Hafrannsóknastofnun, tekinn tali
rlitið sýnir helstu hvalastofna við Ísland og í mið orður- tlantsha á tlaðan fjölda mestu lengd hámarksaldur og
kynþroska. Á tlað er að hvalir í orður- tlantsha éti um milljónir tonna af svi ski og öðrum sjávarspendýrum.
uðjón ár Sigurðsson.
Hnúfubakur hefur fjölgað sér mikið við landið. Í fyrstu talningu fyrir 5 árum voru þeir um .000 en nú eru þeir á
milli 0 5.000 talsins. Mynd/W ik ip edia
Sigurgeir Brynjar
Kristgeirsson.
Steypireyður 00 0 0 - 00 0 - 0 .000
Langreyður 0 0 - 00 0 - 0 .000
Hnúfubakur 0 50 - 0 5 - 0 .000
Sandreyður 0 0 - 0 0.000
Hrefna 0 50 - 0 .000
Á tlaður fjöldi samtals .000
Hámarks Mesta lengd Hámarks- Áætlaður fjöldi við Ísland
þyngd-tonn metrar aldur, ár Kynþroski (mið N-Atlandshaf)
Skíðishvalir
Búrhvalur 0 0 0 - 0 - 0 0.000
Háhyrningur 0 0 50 - 0 0 - 5 5.000
ndanefja 5 0 0 - 0 - 0.000
rindhvalur 0 - 50.000
Hnýðingur 00 kg 50 - 0 5 .000
Leiftur 00 kg 0 - .000
Hnísa 0 kg 0 - .000
Á tlaður fjöldi samtals .000
Hámarks Mesta lengd Hámarks- Áætlaður fjöldi við Ísland
þyngd-tonn metrar aldur, ár Kynþroski (mið N-Atlandshaf)
annhvalir
NYTJAR HAFSINS