Bændablaðið - 14.12.2023, Side 52
52 Bændablaðið | Fimmtudagur 14. desember 2023
HURÐIR
Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is
• Stuttur afhendingartími
• Hágæða íslensk
framleiðsla
• Val um fjölda lita í
RAL-litakerfinu
• Vindstyrktar hurðir
Bílskúrs- og iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir með gönguhurð
Bílskúrshurðir
Hurðir í trékarma
Tvískiptar hurðir
Smíðað eftir máli
Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf
Nýverið gaf M agnús J oc hum
P álsson, meistaranemi í ritlist,
út sína fyrstu ljóðabók sem hlaut
nafnið M annakjöt.
Hrífur bókin lesandann með
sér á ferð um þær dökku hliðar
mannkyns sem við öll könnumst
við að einhverju leyti.
Segir höfundur kveikjuna
að bókinni kjötframleiðslu og
slátrunaraðferðir, en frekari
hugmyndavinna leiddi hann svo
að tengslum mannslíkamans sem
kjöts og þeirri neikvæðu firringu og
neyslu sem frá okkur kemur. T engir
eitt ljóðanna við lensku nútímans
sem felur í sér að segja frá alls konar
áföllum og af breyskri hegðan sinni.
Segir þar frá manni, sem í
almenningsvagni tekur upp á því
að fletta ofan af sjálfum sér, bæði
í andlegri og líkamlegri merkingu,
hamfletta sig. Fer svo að fólkið sem
situr með honum í vagninum er farið
að þreifa á líffærum hans til þess að
upplifa að fullnustu þau áföll sem
maðurinn hefur orðið fyrir.
Lýsir höfundur bókinni sem
dystópískri framtíðarsýn þar sem
allt fer til fjandans, gegnum-
gangandi tengingar þar sem allt
fer úr böndunum.
Mannakjöt vekur lesandann
til umhugsunar og málar sterka
hugræna upplifun í bland við
skemmtilegan leik að orðum.
Var Magnús Joc hum P álsson
annað tveggja skálda er hlutu
Nýræktarstyrk íslenskra bókmennta
nú í ár, sem veittur er til að hvetja
nýhöfunda til frekari dáða. /S P
M agnús J oc hum
Pá lsson.
Bækur:
Mannakjöt fyrir jólin
S amúel J ónsson, bóndi í S elár-
dal, skildi eftir sig merkilega
arfleifð sem var að hruni
komin þegar velunnarar hófu
endurreisnarstarf.
Í nýrri bók um Samúel, Steyptum
draumum, er fjallað um líf hans og
list og ljósi varpað á hver þessi maður
var „sem byggði einn síns liðs þessar
sérkennilegu byggingar og listaverk
á þessum afskekkta stað á hjara
veraldar, byggingar sem voru eins og
stokknar út úr ævintýri eða komnar um
langan veg utan úr heimi ...“, eins og
segir í formála Ó lafs J. Engilbertssonar,
ritstjóra bókarinnar.
B y g g ði k irk ju y fir altaristöfluna
Samúel Jónsson var fæddur 1884 og
lést 1969. Hann var bóndi á Brautarholti
í Selárdal í Ketildalahreppi í Arnarfirði.
Á bókarkápu segir: „Hann er
einn þekktasti alþýðulistamaður
sem Ísland hefur alið − þó ekki hafi
verið fjallað um hann að neinu ráði
í bókum um myndlist.
Samúel var sjálflærður í listinni,
en sem ungur maður teiknaði hann
talsvert og málaði með vatnslit og
olíulit. Listaferill hans hófst þó ekki
fyrir alvöru fyrr en hann hafði efni
á að kaupa sement fyrir ellilífeyrinn
í þeim tilgangi að reisa listasafn og
höggmyndagarð og svo bættist kirkja
við, með býsönskum turni sem hann
byggði einn síns
liðs, kominn hátt á áttræðisaldur. Þá
kom vel í ljós að Samúel var mikill
verkfræðingur í sér.
Kirkjuna reisti Samúel þegar
sóknarnefndin vildi ekki þiggja
altaristöflu sem hann hafði málað fyrir
Selárdalskirkju.“
M örg v erk g latast
„Fjallað er um ævi og listsköpun Samúels
og birtar myndir af verkum hans sem
flest eru í einkaeigu, en mörg hafa
glatast. Einnig eru birtar myndir sem
sýna Samúel á síðustu árum hans á
Brautarholti og myndir af listasafninu
eftir lát hans.
Jafnframt segir af endurreisnar-
starfinu frá því Félag um endurreisn
listasafns Samúels var stofnað
1998.“
Allur ágóði af sölu bókarinnar rennur
til áframhaldandi endurreisnarstarfs
og til verndar verkum Samúels. /sá
Selárdalur:
Meistari ævintýrabygginga
Ólafur J .
E ngilb ertsson.
Veislumatur:
Hunangsleginn hestshaus
Í V eislumat landnáms-
aldar eru margar
forvitnilegar uppskriftir.
Þær voru settar saman
á grundvelli nútíma-
þekkingar á lífi fólks á
Íslandi á árabilinu 870
til 930.
Bókin kom nýlega út
hjá Drápu og eru höfundar
hennar þeir Kristbjörn
Helgi Björnsson sagnfræðingur, Ú lfar
Finnbjörnsson matreiðslumeistari og
Karl P etersson ljósmyndari.
Íslendingasögurnar eru ekki
margorðar um þær matarhefðir
sem voru við lýði á fyrstu öldum
Íslandsbyggðar. Þar var ekki aðeins
súrmatur, soðning og bragðlaust
kjöt heldur kunnu menn að elda
góðar steikur og bragðgóðan fisk.
Kristbjörn rannsakaði matartilvísanir
í Íslendingasögunum og bar
þær saman við þá þekkingu á
matarvenjum landnámsaldar
sem fornleifafræðin hefur
bætt við.
Ú lfar leitaði fanga víða
og setur í bókinni fram
uppskriftir að veislumat
landnámsfólksins og Karl
ljósmyndaði kræsingarnar.
Farið er í bókinni yfir
ræktun og hráefni á landnámsöld,
nýtingu kornmetis, sjávarfangs og
kjötmetis og gerð mjólkurmatar.
Jafnframt er farið stuttlega yfir þær
Íslendingasögur þar sem leitað var
fanga.
Meðal forvitnilegra uppskrifta
er t.d. grillaður hunangshjúpaður
hestshaus, rostungssúpa, sauðakjöts-
súpa með sílamávseggi, grillaður
geirfugl, grilluð álft og mjöður. /sá
Jólamatarmarkaður Íslands
í Hörpu um helgina
J ólamatarmarkaður Íslands
verður haldinn í H örpu í
R eykjavík um næstu helgi.
Þá koma bændur, smáfram-
leiðendur matvæla og sjómenn
í borgina til að kynna sínar
vörur þar sem áhersla verður á
uppruna matvælanna, umhyggju
framleiðenda fyrir sínum afurðum
og upplifun neytenda.
Þær Eirný Sigurðardóttir og
Hlédís Sveinsdóttir hafa haldið
markaðinn í anda Slow Food-
hugsjónarinnar fyrir jólin ár hvert
allt frá árinu 2012, fyrstu tvö árin
fyrir utan verslunina Búrið í Nóatúni
en síðan í Hörpu.
Að sögn Eirnýjar er
hugmyndin að tengja
neytendur beint við
framleiðendur og bjóða
matvörur þar sem
slagorð Slow Food hefur
verið haft í hávegum við
framleiðsluna, „G ood,
C lean and Fair“.Við
höfum það til dæmis sem reglu að
framleiðandi vöru verður að vera á
markaðnum til að miðla þekkingu,
svara spurningum og fá tengingu við
neytendur. Margir framleiðendur hafa
verið með okkur frá upphafi og hafa
mótað viðburðinn
með okkur. En
alltaf gaman að
bjóða nýja framleiðendur
velkomna í matarmarkaðs-
fjölskylduna. Af þeim sem
koma nýir á markaðinn
er gaman að segja
frá geitabændunum á
Brúnastöðum í Fljótum
sem koma í fyrsta skiptið með
ostaframleiðslu sína,“ segir Eirný.
Aðgangur á markaðinn er ókeypis
báða dagana, laugardag 16. og
sunnudag 17. desember, en opið er
frá kl. 11-17. /smh